Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Síða 4
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
Utilega hjá Fálkum 4.-5. apríl
Hópurinn kom saman við
Skátaheimilið klukkan fimm á laug-
ardeginum. Auk Einars Amar sveitar-
foringja og Fálkanna, þá var Davíð
Friðgeirsson félagi í Björgunarfélaginu
og HSSR með í för.
Farið var upp skarðið ofan við
Hásteinsblokkina og þaðan á Há. Síðan
var gengið sem leið lá upp á Klif. Eftir
að búið var að koma upp tjöldum fengu
menn sér að borða. Einar Örn og Davíð
sýndu listir sínar á bensínprímus og var
tvíréttaður kvöldverður hjá þeim, aðrir
elduðu sér núðlusúpur.
Eftir matinn var farið í göngu. Byrjað
var á því að ganga austur að Helgafelli
þar sem Inkarnir voru í útilegu. Þegar
þangað var komið hvíldu menn sig. Svo
var gengið niður með Eldfelli, skokkað
frá Eldfelli, framhjá Sorpu og niður að
Fiskiðju. Á meðan skokkað var, voru
Fálkar frá vinstri: Víkingur, Ivar Örn, Páll ívar, Einar Örn, Hlynur og
Hafþór. Davíð tók myndina ofan úr mastrinu á Klifi
.
kyrjaðir hermisöngvar í stíl við þá sem
hermenn syngja í bíómyndunum.
Eftir stutt stopp í Veitingaskálanum
hjá honum Þorkeli var aftur haldið á
brattann. Farin var hefðbundin leið
uppá Klif að þessu sinni. Uppá Klifi
bjuggu menn sig undir svefninn og
ræddu um drauga og annað sem menn
ræða á tunglbjörtu kvöldi. Fálkarnir
sváfu í tjöldum en Davíð og Einar Öm
undir berum himni.
Snemma um morguninn þurftu Davíð
og Einar að yfirgefa hópinn. Hinir sváfu
lengur. Eftir morgunmatinn skoðuðu
Fálkamir sig um á Klifinu, horfðu yfir
bæinn og gengu frá. Á leiðinni fóm þeir
að spranga. Síðan lifðu þeir happily
ever after.
Fálkar
Tjaldbúðirnar á Kliflnu