Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Page 5

Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Page 5
SKÁTABLAÐIÐ FAXI © Utilega hjá Inkum Sætu stelpurnar í Inkum í góðum gír á Ieið í útilegu. Það má með sanni segja að nú sé sumarið ekki langt undan af veður- blíðunni í byrjun apríl að dæma. Við dróttskátastelpurnar í flokknum Inkar tókum forskot á sæluna og skellt- um okkur í tjaldútilegu bakvið Eldfell. Sumum fannst gangan uppeftir erfið og nánast óréttlát en vægðarlaus foringinn vildi ekki hlusta á neitt kettlingavæl. Er tjöldin voru kornin upp grilluðum við yfir opnum eldi. Oft vill eldurinn verða mjög spennandi svo nokkra langaði að grilla brauðið, sem ætlað var hestunum. Hina mestu furðu vakti að brauðið bragðaðist bara fjári vel og minnkaði heldur í brauðhrúgunni. Að loknu gullfallegu sólsetri skelltum við okkur í göngu og var stefnan tekin út á Skans. Á leiðinni hittum við Fálkana, strákaflokkinn í dróttskátasveitinni sem tjaldað hafði uppi á Klifi. Leiðir skildu og út á Skans var farið. Er þangað kom blasti við okkur varðeldur mikill, sem nokkrir vaskir og skrambi söngelskir unglingar höfðu kveikt. Við létum það vera að deila með þeim söngsnilld okkar, en sungum aftur á móti svokallaða hermisöngva þar sem það kom í hlut Heimakletts að herma eftir. Áfram gengum við út á fjall þar sem við höfðum góða yfirsýn yfir bæinn, norðurljósin og stjörnurnar. Við vorum orðnar ansi þreyttar og kakóþyrstar svo við komum við heima hjá Freydísi foringja og bruddum kex með kakói. Freistingin var mikil að leggjast bara í sófann þar og sofna. Við létum ekki bugast og héldum galvaskar af stað upp í tjöldin. Nokkra viðarbita áttum við eftir svo við kveiktum eld og kyrjuðum lög og horfðum á stjörnuhröp og gervitungl, sem sumum fannst afar erfitt að koma auga á. Nokkrar “ódraugalegar” draugasögur voru lesnar og svo hrotið í kapp. Skínandi sólskin vakti okkur......... flestar. Sumar sváfu lengur eins og vanalega !!! Morgunmatur var etinn og var hestabrauð þar í sérflokki ásamt ógeðfelldum reykgrilluðum pylsum. Galvaskar héldum við af stað í göngu, rúlluðum okkur niður brekkur og hóla og enduðum í Páskahelli. Því miður gleymdum við vasaljósi og fórum því ekki langt inn. Upp var haldið aftur til gamalla skreiðarhjalla þar sem við út- bjuggum ýmis tæki s.s. rólur, vegasalt og hengirúm sem sumum tókst alltaf að detta úr !!! Það var mikið fjör að klifra í trönunum. Hestamir biðu okkar því brauðið, eða það litla sem eftir var af því, var ætlað þeim. Utilegan var á enda en síðust stundirnar sóluðum við okkur og gengum svo heim á ný. Hjúfrað sig saman við varðeld. '/eðileatáumaw SPARISJOÐUR VESTMANNAEYJA Inkar

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.