Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Page 6
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
0
60 ára afmæli Faxa 22. febrúar 1998
Sunnudagurinn 22. febrúar var mikill
hátíðisdagur hjá skátunum því þann dag
átti skátafélagið Faxi 60 ára afmæli.
Dagskráin hófst með göngu frá
Skátaheimilinu í Landakirkju, þar sem
haldin var skátamessa. Skátahöfðingi
flutti hátíðarræðu auk þess sem fjöldi
ylfinga og skáta var vígður.
Að lokinni messu var haldið í skáta-
stykkið, en þar fór fram afmælis-
dagskrá. Þegar þangað var komið beið
fríður hópur með kakó og vöfflur sem
var vel þegið eftir góða göngu.
Eftir að allir höfðu nært sig tók við
öflug skemmtidagskrá að hætti skáta.
Mikið var sungið og trallað auk mjög
góðra skemmtiatriða sem tengdust sögu
félagsins s.s. stofnun Hjálparsveitar-
innar, upphaf skíðaferðar o.fl.
Skátafélaginu bárust góðar gjafir í
tilefni afmælisins, t.d. klukka frá
skátaflokknum Inkum, sjúkrakassi,
slökkvitæki og brunaboðar frá
Björgunarfélaginu, o.fl. Einnig var
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri mættur
á svæðið og sagði frá gjöf bæjaryfir-
valda til Skátafélagsins sem er göngu-
og hjólastígur að Skátastykkinu.
Öll dagskrá heppnaðist með ein-
dæmum vel. Það var gott veður, snjór
yfir öllu og skátar almennt mjög
lukkulegir með daginn. Ekki er þó öll
afmælisdagsrá skátanna búin, því mikið
afmælismót verður haldið í Skáta-
stykkinu í sumar, nánar tiltekið 8. - 12.
júlí.
Ólafur Ásgeirsson skátahöfðingi kom
og flutti ræðu í skátamessunni.
Þau voru meðal þeirra sem voru heiðruð á afmælisdaginn.