Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Side 7

Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Side 7
SKÁTABLAÐIÐ FAXI o Skíðaferðalag Faxa 98 Skíðakapparnir kasta mæðinni. fjallajeppa, sem hannaður er fyrir erfiðustu aðstæður. Þetta var þó hraust- um skátum frá Eyjum auðvelt verk, enda ekki um neina meðalmenn að ræða. Klukkan 6 um morguninn vaknaði ég við það að komið var snælduvitlaust veður. Var Páll Zóphóníasson einnig vaknaðu og hafði áhyggjur af skíðunum sem voru geymd úti. Var þá ekkert annað að gera en að fara út og ganga frá skíðunum inn í geymslu. Gekk það fljótt fyrir sig og sannaðist hið fornkveðna, að margar hendur vinna létt verk. Farið var að skíða aftur á sunnu- deginum og skíðað alveg þar til tími var kominn til að fara í skálann að ganga frá. Gekk það allt að óskum og var hægt að stoppa í Duggunni til að snæða ham- borgara og franskar sem skolað var niður með Coca Cola. Herjólfur beið svo við bryggjuna reiðubúinn að flytja þreytta en ánægða skáta aftur heim á eyjuna fögru fyrir sunnan Island. Einar Örn Þrátt fyrir vota spá og lítinn snjó í Bláfjöllum fóru 20 galvaskir skátar í skíðaferðalag föstudaginn 20. mars. Notaðar voru hefðbundnar samgöngur og komum við með rútunni alla leið að Bláfjöllum. Þar blasti við okkur ófögur sjón, þoka og rigning. Eftir töluverðar vangaveltur fór undirritaður í kön- nunarleiðangur og tókst eftir þó nokkrar svaðilfarir, að finna skálann Gilitrutt. Leiðin að skálanum var ógreiðfær. Það þurfti að ganga snjó og krapa, stökkva yfir vatnselg og stikla upp klakasvell mikið. Til marks um það hversu erfið leiðin var, tókst Mumma ekki að komast hana á sovétsmíðuðum Fljótlega var ljóst að ekki yrði farið á skíði þann daginn. Vestmannaeyskir skátar létu það þó ekki á sig fá, heldur fóru flestir í göngu. Var markmiðið að sigra tind þann er blasir við mönnum þegar þeir koma úr stólalyftunni. Var þessu markmiði náð með miklu harð- fylgi og ekki látið deigan síga fyrr en á toppinn var komið. Á hinum háa fjalla- tindi var stoppað stutt og haldið niður í skálann. Til að flýta fyrir för gripu menn ýmist lauslegt til að nota sem þoturassa. Þar má til dæmis nefna skóflu og bút úr þakplötu. Öðrum þótti nægja að notast við sinn eiginn rass. Ekki er nokkur vafi Brjálaðir brettakappar á því að þetta flýtti ferðinni niður umtalsvert. Þegar menn komu svo aftur í skálann voru allir ofnar fylltir af sokkum og öðrum fatnaði sem óum- flýjanlega blotnaði. Morguninn eftir voru Eyjamenn heppnir því hægt var að komast á skíði. Var sem þungu fargi væri af þeim létt og fljótlega eftir að gleðifréttirnar bárust í skálann, voru skátarnir lagðir af stað í átt að skíðasvæðinu. Ekki var færið gott en nægjusamir skátar úr Eyjum skemm- tu sér mjög vel. Gekk dagurinn stórslysalaust og var skíðað framyfir miðjan dag. Um kvöldið var kvöldvaka. Voru þar frumsýnd mörg verk, ýmist af leikhópum eða einstaklingum. í hléi skemmti lúsin Jósep okkur með heljar- stökkum sínum. Ekki gekk sýningin stórslysalaust því þjálfari lúsarinnar gat ekki gripið Jósep eftir eitt stökkið og endaði hann í hári eins sýningargest- anna. Sem betur fer sluppu þeir með skrámur.

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.