Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 16

Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 16
SKÁTABLAÐIÐ FAXI Aðalfundur skátafélagsins Faxa Aðalfundur skátafélagsins Faxa var haldinn laugardaginn 7. mars. Mæting á fundinn var góð, voru flestallir foringjar í félaginu mættir ásamt fleirum. Farið var yfir ársskýrslu og reikninga félagsins. Kom þar fram að mótð sem haldið var síðasta sumar heppnaðist mjög vel og horfa menn með tilhlökkun til mótsins sem verður í sumar. Þegar farið var yfir reikningana kom í ljós að staða félagsins er ágæt þrátt fyrir bygg- ingaframkvæmdir suður í Skátastykki, er þar miklu að þakka störfum Sigríðar gjaldkera sem haldið hefur um öll peningamál félagsins af mikilli áræðni. Eftir umræður um skýrslu og reikninga var kosin stjórn. Páll Zóphóníasson var kjörinn félagsforingi, Marinó Sigursteinsson aðstoðarfélagsforingi, Sigríður Guðmundsdóttir gjaldkeri, Rósa Sigurjónsdóttir ritari og Auróra Friðriksdóttir meðstjórnandi. Einnig voru kjörnir endurskoðendur, Edda Ólafsdóttir og Birna Hilmisdóttir. Undir liðnum önnur mál urðu til mikl- ar og góðar umræður, m.a. um það hvernig mætti gera Skátaheimilið að meira félagsheimili fyrir skáta og um framtíð félagsins og stöðu þess á nýrri öld. Sömuleiðis var ræddur sá mögu- leiki að halda skátamót árlega í Vestmannaeyjum, var hugmyndin að hafa mótilð smátt í sniðum nema á fimm ára fresti þá mundi mótið verða stærra. Voru mjög skiptar skoðanir á þessum málum og gaman að heyra hversu mikl- an áhuga yngstu foringjarnir höfðu á þessum málefnum. Eftir fundinn var auðvitað hið klass- íska kakó og kex. I leiðinni voru sviðsettar auglýsingar og komu þar fram ýmsar fyrirsætur sem allar gætu sómt sér sem talsmenn kexins góða. Bílaverkstæði Harðar og Matta HUSEY B Y G GIN G AV ÖRUVERSLUN VESTMANNAEYINGA Garðavegi 5 • Sími 481 1151 • Fax 481 3202 HUSEY

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.