Fréttablaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 11
Kjararáð ákveður að hækka laun biskups um fimmtung þannig að hann sé á pari við alþingismenn í grunnlaunum en grunnlaun þeirra voru hækkuð í rúmlega milljón krónur á mánuði fyrr á árinu. Þetta er nú gagnrýnt hástöfum. En hvað vakir fyrir gagnrýnendum? Á forsvarsmönnum atvinnurekenda og launafólks, sem stundum eru nefndir „aðilar vinnumarkaðar“, er svo að skilja að þetta snúist um prósentur. Prósentuhækkanirnar séu meiri en þeir vilji leyfa. Þetta hafi með öðrum orðum ekkert með launajöfnuð að gera, enda sumir skjólstæðingar kjararáðs varla hálfdrættingar þeirra sjálfra. En er þjóðin tilbúin að hugsa bara í prósentum? Hlýtur réttmæti launa og þá einnig launahækkana ekki að skoðast með hliðsjón af öðrum launum í landinu og hlutfallinu þar á milli? Í Fréttablaðinu, 23. desember, segir í skýringartexta fréttar um framan­ greindar launahækkanir: „Að mati Viðskiptaráðs næst ekki friður á vinnumarkaði nema alþingismenn breyti ákvörðunum kjararáðs. For­ seti Alþýðusambands Íslands tekur undir þá skoðun. Telur ákvarðanir kjara ráðs valda pirringi meðal stjórn­ enda fyrirtækja.“ Hin sárreiðu Sá pirringur er síðan staðfestur í ályktun Viðskiptaráðs um framan­ greindar hækkanir sem jafnframt er vísað til í fréttinni. En hverjir eru svona sárreiðir? Í stjórn Viðskiptaráðs eru 37 ein­ staklingar auk formanns, Katrínar Olgu Jóhannesdóttur. Þeir eru: Andri Þór Guðmundsson, Ölgerðinni, Ari Edwald, MS, Ari Fenger, Nathan & Olsen, Ágúst Hafberg, Norðuráli, Árni Geir Pálsson, Icelandic Group, Birgir Sigurðsson, Kletti, Birkir Hólm Guðnason, Icelandair, Birna Einars­ dóttir, Íslandsbanka, Eggert Benedikt Guðmundsson, Etacticu, Eggert Þ. Kristófersson, N1, Finnur Oddsson, Nýherja, Gísli Hjálmtýsson, Thule Investments, Guðmundur J. Jóns­ son, Verði, Gylfi Sigfússon, Eimskipa­ félaginu, Helga Hlín Hákonardóttir, Strategíu, Helga Melkorka Óttars­ dóttir, LOGOS, Hermann Björnsson, Sjóvá, Hrund Rudolfsdóttir, Veritas Capital, Hörður Arnarsson, Lands­ virkjun, Jakob Sigurðsson, Katrín Pétursdóttir, Lýsi, Kristín Pétursdótt­ ir, Mentor, Linda Jónsdóttir, Marel, Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, Flug­ leiðahótelum, Magnús Bjarnason, Kviku, Magnús Þór Ásmundsson, Alcoa Fjarðaáli, Sigrún Ragna, Ólafs­ dóttir, Creditinfo, Sigurður Viðars­ son, Tryggingamiðstöðinni, Sigur­ hjörtur Sigfússon, Mannviti, Stefán Pétursson, Arion banka, Stefán Sig­ urðsson, Vodafone, Steinþór Páls­ son, Svanbjörn Thoroddsen, KPMG, Sveinn Sölvason, Össuri, Sævar Yfir hverju er þetta fólk andvaka? Ögmundur Jónasson fv. alþingismaður Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akra­ neskaupstaðar, Viðar Þorkelsson, Valitor, og Vilhjálmur Vilhjálmsson, HB Granda. Reiðiköstin verði útskýrð Svo er að skilja að að minnsta kosti þetta fólk sem hér er upp talið, sé miður sín og reitt yfir hækkuninni til þess hóps sem biskupinn er nú gerður að skotspæni fyrir. Er til of mikils ætlast að þessir einstaklingar komi nú fram undir nafni og geri grein fyrir reiðiköstum sínum, hvort það er hækkunin sem hvekki þau eða hvort það er launaupphæðin sem haldi fyrir þeim vöku? Þá væri fróðlegt að Fréttablaðið gerði grein fyrir augljósum eineltis­ tilburðum sínum gagnvart biskupi Íslands. Nú skal það tekið fram að ekkert er við það að athuga að kjara­ ráð og ákvarðanir þess sæti gagnrýni. Sú umræða er meira að segja bráð­ nauðsynleg þótt hún ætti að mínu mati að vera í öðrum farvegi. Einelti í Fréttablaðinu En þegar fréttaflutningurinn er farinn að ná út yfir allan þjófabálk, þá vakna spurningar. Þannig sagði Fréttablaðið frá því í sérstakri frétt að Ríkisútvarpinu hefði ekki borist ósk frá biskupi um að fá að taka upp á nýjan leik jólapredikun sem hljóðrituð var fyrir hækkun. Fréttablaðið hafði gengið sérstaklega eftir því að kalla fram upplýsingar um þetta. Svo komu aðrar fréttir, þar á meðal hvað biskup borgaði fyrir að búa í biskupsbústaðnum og að leigan væri óeðlilega lág og svo hvort ekki mætti líta svo á að Agnes M. Sigurðar­ dóttur, biskup hafi fengið harðan pakka í ár! Einelti? Í ljósi þess samhengis sem hér er að teiknast upp er það svo sam­ kvæmt mínum skilningi. Er til of mikils ætlast að þessir einstaklingar komi nú fram undir nafni og geri grein fyrir reiðiköstum sín- um, hvort það er hækkunin sem hvekki þau eða hvort það er launaupphæðin sem haldi fyrir þeim vöku? 5 5 2 8 6 0 0 B O S S - K O N U R M E N N K R I N G LU N N I 5 3 3 4 2 4 2 S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 2 . J A n ú A R 2 0 1 8 0 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :5 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E A 0 -0 E 4 0 1 E A 0 -0 D 0 4 1 E A 0 -0 B C 8 1 E A 0 -0 A 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.