Fréttablaðið - 02.01.2018, Qupperneq 11
Kjararáð ákveður að hækka laun biskups um fimmtung þannig að hann sé á pari við
alþingismenn í grunnlaunum en
grunnlaun þeirra voru hækkuð í
rúmlega milljón krónur á mánuði
fyrr á árinu.
Þetta er nú gagnrýnt hástöfum. En
hvað vakir fyrir gagnrýnendum? Á
forsvarsmönnum atvinnurekenda og
launafólks, sem stundum eru nefndir
„aðilar vinnumarkaðar“, er svo að
skilja að þetta snúist um prósentur.
Prósentuhækkanirnar séu meiri en
þeir vilji leyfa. Þetta hafi með öðrum
orðum ekkert með launajöfnuð að
gera, enda sumir skjólstæðingar
kjararáðs varla hálfdrættingar þeirra
sjálfra.
En er þjóðin tilbúin að hugsa bara
í prósentum? Hlýtur réttmæti launa
og þá einnig launahækkana ekki
að skoðast með hliðsjón af öðrum
launum í landinu og hlutfallinu þar
á milli?
Í Fréttablaðinu, 23. desember, segir
í skýringartexta fréttar um framan
greindar launahækkanir: „Að mati
Viðskiptaráðs næst ekki friður á
vinnumarkaði nema alþingismenn
breyti ákvörðunum kjararáðs. For
seti Alþýðusambands Íslands tekur
undir þá skoðun. Telur ákvarðanir
kjara ráðs valda pirringi meðal stjórn
enda fyrirtækja.“
Hin sárreiðu
Sá pirringur er síðan staðfestur í
ályktun Viðskiptaráðs um framan
greindar hækkanir sem jafnframt er
vísað til í fréttinni.
En hverjir eru svona sárreiðir?
Í stjórn Viðskiptaráðs eru 37 ein
staklingar auk formanns, Katrínar
Olgu Jóhannesdóttur. Þeir eru: Andri
Þór Guðmundsson, Ölgerðinni, Ari
Edwald, MS, Ari Fenger, Nathan &
Olsen, Ágúst Hafberg, Norðuráli,
Árni Geir Pálsson, Icelandic Group,
Birgir Sigurðsson, Kletti, Birkir Hólm
Guðnason, Icelandair, Birna Einars
dóttir, Íslandsbanka, Eggert Benedikt
Guðmundsson, Etacticu, Eggert Þ.
Kristófersson, N1, Finnur Oddsson,
Nýherja, Gísli Hjálmtýsson, Thule
Investments, Guðmundur J. Jóns
son, Verði, Gylfi Sigfússon, Eimskipa
félaginu, Helga Hlín Hákonardóttir,
Strategíu, Helga Melkorka Óttars
dóttir, LOGOS, Hermann Björnsson,
Sjóvá, Hrund Rudolfsdóttir, Veritas
Capital, Hörður Arnarsson, Lands
virkjun, Jakob Sigurðsson, Katrín
Pétursdóttir, Lýsi, Kristín Pétursdótt
ir, Mentor, Linda Jónsdóttir, Marel,
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, Flug
leiðahótelum, Magnús Bjarnason,
Kviku, Magnús Þór Ásmundsson,
Alcoa Fjarðaáli, Sigrún Ragna, Ólafs
dóttir, Creditinfo, Sigurður Viðars
son, Tryggingamiðstöðinni, Sigur
hjörtur Sigfússon, Mannviti, Stefán
Pétursson, Arion banka, Stefán Sig
urðsson, Vodafone, Steinþór Páls
son, Svanbjörn Thoroddsen, KPMG,
Sveinn Sölvason, Össuri, Sævar
Yfir hverju er þetta fólk andvaka?
Ögmundur
Jónasson
fv. alþingismaður
Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akra
neskaupstaðar, Viðar Þorkelsson,
Valitor, og Vilhjálmur Vilhjálmsson,
HB Granda.
Reiðiköstin verði útskýrð
Svo er að skilja að að minnsta kosti
þetta fólk sem hér er upp talið, sé
miður sín og reitt yfir hækkuninni
til þess hóps sem biskupinn er nú
gerður að skotspæni fyrir. Er til of
mikils ætlast að þessir einstaklingar
komi nú fram undir nafni og geri
grein fyrir reiðiköstum sínum, hvort
það er hækkunin sem hvekki þau eða
hvort það er launaupphæðin sem
haldi fyrir þeim vöku?
Þá væri fróðlegt að Fréttablaðið
gerði grein fyrir augljósum eineltis
tilburðum sínum gagnvart biskupi
Íslands. Nú skal það tekið fram að
ekkert er við það að athuga að kjara
ráð og ákvarðanir þess sæti gagnrýni.
Sú umræða er meira að segja bráð
nauðsynleg þótt hún ætti að mínu
mati að vera í öðrum farvegi.
Einelti í Fréttablaðinu
En þegar fréttaflutningurinn er farinn
að ná út yfir allan þjófabálk, þá vakna
spurningar.
Þannig sagði Fréttablaðið frá því í
sérstakri frétt að Ríkisútvarpinu hefði
ekki borist ósk frá biskupi um að fá
að taka upp á nýjan leik jólapredikun
sem hljóðrituð var fyrir hækkun.
Fréttablaðið hafði gengið sérstaklega
eftir því að kalla fram upplýsingar um
þetta. Svo komu aðrar fréttir, þar á
meðal hvað biskup borgaði fyrir að
búa í biskupsbústaðnum og að leigan
væri óeðlilega lág og svo hvort ekki
mætti líta svo á að Agnes M. Sigurðar
dóttur, biskup hafi fengið harðan
pakka í ár!
Einelti? Í ljósi þess samhengis sem
hér er að teiknast upp er það svo sam
kvæmt mínum skilningi.
Er til of mikils ætlast að
þessir einstaklingar komi
nú fram undir nafni og geri
grein fyrir reiðiköstum sín-
um, hvort það er hækkunin
sem hvekki þau eða hvort
það er launaupphæðin sem
haldi fyrir þeim vöku?
5 5 2 8 6 0 0 B O S S - K O N U R M E N N K R I N G LU N N I 5 3 3 4 2 4 2
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 2 . J A n ú A R 2 0 1 8
0
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
0
-0
E
4
0
1
E
A
0
-0
D
0
4
1
E
A
0
-0
B
C
8
1
E
A
0
-0
A
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K