Fréttablaðið - 02.01.2018, Page 14
Það hentar mér best að gera eitthvað einfalt því ég er ekki uppskriftatýpan sem á alltaf
allt til alls í ísskápnum. Ég hendi
miklu frekar einhverju saman í
kollinum á mér, set svo niður á blað
síðar og inn á Facebook. Mér hefur
fundist það henta fólki best, eitt-
hvað einfalt og fljótlegt.
Maður á oft svo mikið af upp-
skriftum í fínum bókum sem er
bara einum of flókið að fram-
kvæma,“ segir Jóhanna Þórarins-
dóttir einkaþjálfari en hún gefur
hér uppskrift að fljótlegum eggja-
hræruhálfmána.
„Eftir að ég fékk pönnu sem
ekkert festist á finnst mér sérstak-
lega gaman að gera hálfmána og
fylla þá með ýmiss konar góðgæti.
Ég nota pönnuna líka mikið í pró-
teinpönnukökur,“ bætir hún við.
Yfirleitt eldi hún léttan og hollan
mat fyrir fjölskylduna og mælir
með fjölbreyttu fæði án öfga.
„Ég reyni að nota sem minnst af
unnum kolvetnum en ég elda líka
pastarétti inn á milli. Uppáhaldið
hjá fjölskyldunni er réttur sem við
köllum „Tröllapasta“ með kjúklingi,
ostasósu og grænmeti. Maður á að
borða fjölbreytt og hollt en samt
allan mat. Okkur finnst til dæmis
mjög gott að búa til góða ham-
borgara og franskar en uppáhaldið
er nautasteik.“
Hvaða ráð áttu til þeirra sem fóru
offari í jólavellystingum og langar að
taka sig á? „Besta ráðið er að horfa
ekki aftur á bak heldur áfram og
reyna að núllstilla sig. Byrja daginn
til dæmis á stóru vatnsglasi með
sítrónu, það hreinsar líkamann.
Skella sér svo í göngutúr til að koma
sér í gang. Það er langbest að taka
hlutina bara hægt og rólega og
flækja ekki málin. Nýta það sem
maður er búinn að borða sem orku
og hreyfa sig í takt við það.“
Jóhanna segir einnig óráð að
ætla sér of mikið í upphafi. Það sé
í góðu lagi að gefa sér tíma og það
sé enginn heimsendir þó fólk falli
einn dag.
„Það sem flestir klikka á er að
ætla sér allt á einum degi. Svo gefst
fólk upp þegar það gengur ekki,“
segir Jóhanna. „Þó maður fái sér
einn konfektmola sem varð afgangs
þarf ekki að hugsa að fyrst maður
gerði það sé bara eins gott að sukka
bara restina af deginum, hann sé
hvort eð er ónýtur. Nýta heldur
þá orku sem konfektmolinn gefur.
Súkkulaði er auðvitað orka en við
getum brennt henni.
Galdurinn er að bæta við sig
smátt og smátt. Það er nefnilega
þannig að um leið og maður fer
að hugsa um sjálfan sig þá fylgir
meira í kjölfarið, um leið og fólk
lagar aðeins mataræðið fer það að
langa til þess að hreyfa sig aðeins.
Það þarf bara að byrja og þá vindur
þetta smám saman upp á sig,“ segir
Jóhanna. Inni á Reykjavik Active
á Instagram og Facebook megi
nálgast ýmis góð ráð.
„Við Hildur Marín Ævarsdóttir
vorum að setja síðuna Reykjavík
Active á Instagram og Facebook. Þar
setjum við inn æfingar, myndbönd
og myndir, uppskriftir og fleira. Ég
verð með fjarþjálfun í tengslum við
síðuna og þá mun Hildur einnig
setja inn uppskriftir, æfingar og
blogga. Á nýju ári munum við setja
inn á síðuna nýjar áskoranir og
skemmtilegt efni.“
Eggjahræruhálfmáni
fyrir 2
Fylling:
Hvað sem til er í ísskápnum
3 egg
2 beikonsneiðar, skornar í bita
Sveppur, sneiddur
Blaðlaukur, skorinn, magn eftir
smekk
Hvítlauksduft
Frosið spínat
Ostur
Salsasósa
Allt fyrir utan ostinn og salsa-
sósuna er hrært saman og leyft að
malla á pönnunni á vægum hita.
Osturinn og salsasósan fer út á
eggjakökuna í miðjuna og svo er
henni lokað í hálfmána.
Jóhanna og Hildur Marín Ævarsdóttir setja reglulega æfingar, uppskriftir og myndbönd inn á síðuna Reykjavik Active á Instagram og Facebook. Mynd/EyþóR
Eggjahræruhálfmáni að hætti Jóhönnu.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Framhald af forsíðu ➛
Eftir að ég fékk
pönnu sem ekkert
festist á finnst mér sér-
staklega gaman að gera
hálfmána og fylla þá með
ýmiss konar góðgæti. Ég
nota pönnuna líka mikið
í próteinpönnukökur.
2 KynnInGARBLAÐ FóLK 2 . JA n úA R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
0
-2
6
F
0
1
E
A
0
-2
5
B
4
1
E
A
0
-2
4
7
8
1
E
A
0
-2
3
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K