Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2018, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 02.01.2018, Qupperneq 16
Starri Freyr Jónsson starri@365.is Körfuboltamaðurinn Matthías Orri Sigurðsson var útnefndur íþróttakarl ársins 2017 hjá ÍR undir lok síðasta árs. Matthías er lykilmaður í liði ÍR sem er í þriðja sæti Domino’s deildar karla í körfubolta en fjögur efstu lið deildarinnar eru jöfn að stigum með sextán stig. Hann segir útnefninguna hafa mikla þýðingu fyrir sig. „Ég hef verið tilnefndur áður en vann ekki árið 2014. Því var mjög ljúft að fá þessa viðurkenningu í ár. Ég gerði mér ekki grein fyrir öllu frábæra íþróttafólkinu sem æfir hjá ÍR, sem dæmi eru ólympíufarar í þessum hópi. Því er ég hrikalega ánægður með þennan heiður.“ Gott ár að baki Árið 2017 hefur að mörgu leyti verið gott ár fyrir Matthías. „Þrennt stendur upp úr. Í fyrsta lagi fín byrjun hjá okkur í ÍR núna á fyrri helmingi þessa tímabils. Í öðru lagi að vera valinn í úrvalslið ársins 2017 síðasta vor og aftur fyrripart þessa tímabils. Loks var það að koma ÍR liðinu í úrslitakeppnina í fyrsta skipti í langan tíma á síðasta tímabili. Á sama tíma eru lang- stærstu vonbrigðin að ná ekki að gera átta liða úrslitin gegn Stjörn- unni meira spennandi síðasta vor.“ Fær góð ráð Matthías kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu en eldri bróðir hans Jakob hefur spilað sem atvinnumaður í körfubolta erlendis í mörg ár og faðir hans Sig- urður Hjörleifsson er með reyndari körfuboltaþjálfurum landsins. „Það hefur að mínu mati bara kosti að alast upp í þessu umhverfi. Við það að kynnast körfuboltanum svona snemma þá er lítið annað sem maður þekkir og það er gríðar- legur kostur. Einnig er virkilega stutt í ráð og hjálp frá þeim báðum þegar maður þarfnast þeirra. Ann- ars er pabba hlið fjölskyldurnar meiri íþróttafjölskylda en mömmu megin. Samt sem áður er ótrúlega margt sem ég hef lært af móðir minni sem hefur hjálpað mér alveg jafn mikið í körfuboltanum og fróðleikurinn frá feðgunum.“ Vilja vera við toppinn Hann segir að helsta markmið og áskorun sín og ÍR-liðsins sé að halda stöðugleika á seinniparti tímabilsins. „Við viljum reyna að halda okkur sem næst toppnum í vetur. Síðan er ég klár í lands- liðið þegar kallið kemur. Vonandi kemur það í næsta verkefni.“ Utan körfuboltans er helsta markmið Matthíasar að klára við- skiptafræðinám sitt við Háskóla Íslands. „Síðan hef ég mín mark- mið þegar kemur að því sem ég er að gera í vinnu minni en ég starfa hjá Eir hjúkrunarheimili. Að lokum er ég með það markmið að reyna að minnka aðeins við mig í því sem ég er að gera og ná að ein- beita mér betur að færri hlutum í lífinu.“ Hvernig hafa jólin verið? Þau hafa verið mjög ljúf. Ég kíkti til London rétt fyrir jól og svo tóku bara við rólegheit í faðmi fjöl- skyldunnar. Hvernig eyddir þú gamlárs- kvöldinu? Með fjölskyldunni heima í Vesturbænum þar sem við elduðum m.a. Beef Wellington. Hvernig er dæmigerð helgi? Oftast spilum við á fimmtudögum og þá er róleg æfing á föstudags- kvöldi, frí á laugardegi og svo æfing seint á sunnudegi. Best finnst mér að kíkja upp í sumarbústað eða rólegheit á laugardögum og hugsa um eitthvað annað en körfubolta í smástund. Hvað færðu þér í morgunmat? Oftast er það ein Nocco-dós og próteinstöng eða hrökkkex með gúrku og ávextir. Hvað finnst þér gott að fá þér í kvöldmat? Ég er mikill talsmaður nautalundar og Hasselback kart- aflna. Hvað finnst þér gott að fá þér í millimál? Þessa stundina er ég mikið í mandarínum og stundum fæ ég mér próteinstykki með. Hvernig kemur þú þér í gírinn fyrir leiki? Legg mig í klukku- tíma, fæ mér kaffibolla og hlusta á góða tónlist. Svo er mikilvægasti parturinn af rútínunni að taka góða skotæfing ca. tveimur tímum fyrir leik með mínum manni, Aroni Orra Hilmarssyni. Ertu morgunhani eða finnst þér gott að sofa út? Það er erfitt að neita því að mér finnst rosa gott að sofa. Ertu nammigrís? Já, mjög mikill. Fær góð ráð frá fjölskyldunni Matthías Orri Sigurðarson var útnefndur íþróttakarl ársins hjá ÍR undir lok síðasta árs. Árið 2017 var að mestu leyti gott körfuboltaár fyrir hann. MYND/ERNIR Matthías Orri Sigurðarson, leikmaður ÍR í körfubolta, var útnefndur íþróttakarl ársins 2017 hjá ÍR. Hann og liðsfélagarnir ætla að bæta sig í ár auk þess sem hann stefnir á að klára háskólanám en hann stundar nám í viðskipta- fræði. Matthías er auk þess mikill talsmaður nauta- lundar og Hassel- back kartaflna. Skólar og námSkeið Sérblaðið Skólar og námskeið kemur út 5. janúar. Blaðið nær afar vel til þeirra einstaklinga sem eru í námi og þeirra fjölmörgu sem hafa hug á að sækja sér aukna þekkingu og færni á nýju ári. áhugasamir auglýsendur hafið samband við sérblaðadeild Fréttablaðsins Hægt er að kaupa augýsingar sem og kynningar í þessu blaði. Sími 512 5402 serblod@365.is KÓLAR OG NÁM KEIÐ Sérblaðið Skólar og námskeið kemur út 5. janúar Á s ir l s r fi s i s r l il r tt l si s Hægt er að kaupa augýsingar sem og kynningar í þessu blaði. í i 1 s r l .is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . jA N úA R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :5 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 0 -3 A B 0 1 E A 0 -3 9 7 4 1 E A 0 -3 8 3 8 1 E A 0 -3 6 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.