Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Meirihluti fjárlaganefndar er einfaldlega ósammála í mörgum málum og getur því ekki sett fram skýrar breytingatillögur í fjármálaáætlun,“ segir Lilja Al- freðsdóttir, varaformaður Fram- sóknarflokksins, en Alþingi sam- þykkti í gær þingsályktunar- tillögu meirihluta fjárlaganefndar um fjármálaáætlun 2018-2022. „Áætlunin er góðra gjalda verð enda hálfgert leiðarljós okkar í flestum málaflokkum en mér finnst skynsamlegra að meirihluti nefndarinnar komi fram með breytingartillögur til ákveðinna þátta í stað þess að beina til- mælum til stjórnvalda í einstaka málum.“ Lilja tekur, sem dæmi um vilja meirihlutans til endurskoðunar, tillögu fjármálaráðherra á virð- isaukaskattsbreytingu sem færir ferðaþjónustu í hærri flokk. „Ég er hjartanlega sammála meirihluta nefndarinnar og myndi ráðleggja stjórnvöldum að setja vinnu í að útfæra frekar komu- gjöld í stað hækkunar á virðis- aukaskatti. Hækka á virðisauka- skattinn um 16 til 17 milljarða á greinina bara til að lækka hann aftur um 13 milljarða. Nettó- ávinningur er því um 4 milljarðar. Ég spyr mig þá hvort ekki sé skynsamlegra að koma á komu- gjöldum og fara í heildarendur- skoðun á skattkerfinu,“ segir Lilja og bendir á að hér hefði til að mynda þurft að koma fram skýr breytingartillaga frá nefnd- inni. Var tekið tillit til umsókna Fjárlaganefnd barst 171 um- sögn vegna fjármálaáætlunar m.a. frá ríkislögreglustjóra sem bendir á að viðbúnaðargeta lögreglunnar sé óásættanleg og henni er ekki fært að standa undir þjónustu- eða öryggisstigi í samræmi við lögbundið hlutverk. Lögreglu- menn séu allt of fáir og verulega skortir á fjárveitingar til lög- gæslu. Í umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að fækka þurfi stöðugildum um 6-8 miðað við núverandi áætlun. Haraldur Benediktsson, for- maður fjárlaganefndar, segir að tilmæli nefndarinnar séu í eðli sínu tillögur. „Hefðum við gert beinar tillög- ur þá hefðu þær allar verið við fjárhagsrammana því það er hin eiginlega þingsályktun. Mikilvægt er að hafa í huga að hér er ekki um fjárlög að ræða heldur þings- ályktun, þannig að það verður alltaf óhjákvæmilegur breytileiki milli fjárlaga og fjármálaáætlun- ar,“ segir Haraldur og bendir á að meirihlutinn hafi t.d. bent á að gera þyrfti breytingar á hagræð- ingarkröfum til framhaldsskóla. „Án þess að fara sérstaklega inn í málaflokkinn beinum við þeim tilmælum til ríkisstjórnar- innar að endurskoða hagræðing- arkröfuna. Þá bendum við líka á í greinargerðinni að meiri tekjuaf- gangur er í áætluninni en fram kemur í töflum. Lánakjör hafa batnað verulega og við höfum borgað upp lán og meiri arður er af eignum og meiri skatttekjur.“ Þannig segir Haraldur að tekið hafi verið tillit til umsókna sem nefndinni bárust. Segir meirihlutann ósamstiga  Fjármálaáætlun samþykkt  Lilja Alfreðsdóttir segir skort á tillögum skýrt dæmi um ólík sjónarmið  Formaður segir tilmæli sama og tillögur í áætluninni Morgunblaðið/Golli Fjármál Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu meirihluta fjárlaganefndar en felldi tillögu minnihlutans. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.volkswagen.is Við látum framtíðina rætast. Passat GTE. Hlaðinn fjölskyldubíll með fimm ára ábyrgð. Volkswagen Passat GTE er jafnvígur á rafmagn og bensín. Þú kemst flestra þinna ferða á raforkunni einni saman, en í langferðum tekur sparneytin bensínvélin við. Snerpan og mýktin sem hann býr yfir gerir aksturinn að hreinni skemmtun. Láttu framtíðina rætast og skiptu yfir í Passat GTE. Verð frá 4.770.000 kr. Rafmagn, bensín og hrein skemmtun. Læknafélag Íslands fundaði með samninganefnd ríkisins í gær vegna nýs kjarasamnings. Annar fundur er fyrirhugaður klukkan 15 í dag í fjár- málaráðuneytinu, þar sem fundirnir hafa farið fram hingað til. Fundur- inn verður sá tólfti í röðinni í þessari samningalotu. Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, segir að styttra sé á milli funda en áður og skiptir þar máli að stutt er í sumarfrí sem gætu tafið viðræðurnar. „Við erum að reyna að þoka þessu eitt- hvað áleiðis fyrir sumarfrí. Svo verð- ur tíminn að leiða það í ljós hvernig þessu máli reiðir af,“ segir hann. Síðasti kjarasamningur félagsins var undirritaður í janúar 2015 eftir verkfallsaðgerðir lækna. Hann rann út 30. apríl. Á tólfta hundrað lækna eru í Læknafélagi Íslands. Þar af eru 100 skurðlæknar, en kjarasamn- ingur þeirra rennur út í ágúst. Á skurðstofu Samningur Lækna- félags Íslands rann út í lok apríl. Fundað í kjaradeilu lækna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.