Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 13
Kokkur Bjarka finnst gaman að þróa hinar ýmsu afurðir úr njólanum, hér er hann með njólapestó á njólabrauði.
Íslands á 18. öld og fékk nafnið af
því það var flutt á milli bæja á far-
dögum, sem eru þeir dagar að vori
sem jarðnæðislaust vinnufólk hafði
tækifæri til vistaskipta. Vinnufólk
flutti njólann með sér því hann
þótti mikil búbót, fljótsprottinn og
afar c-vítamínríkur og góður gegn
skyrbjúg. Ég hef heyrt að það væri
ekki tilviljun að í orðinu njóli sé að
finna jól, því það var hátíð í bæ
þegar þessi veislumatur fór loks að
spretta að vori.“
Fluttur í sveitina, alsæll
Bjarki segir að margir komi að
hátíðinni, listamenn og annað fólk.
„Á fyrri hátíðum hefur meðal ann-
ars verið flutt njólarapp og hann-
aður njólakjóll, hann var gerður í
pappír, rosalega fallegur.“ Af nægu
verður að taka á hátíðinni á morg-
un, en Bjarki segir hana vera þess
eðlis að margt sé gert „spontant“
eða af hvatvísi. „Ég hef boðið ólík-
asta listafólki að koma og gera
hvað sem það vill, þar sem þemað
er njólinn og náttúran. Viktor verð-
ur til dæmis með tvívítt verk, Katr-
ín Helena verður með gjörning og
Sigurður Atli ætlar að vera með
listaverk. Fólk hefur frjálsar hend-
ur, þetta eru ýmist gjörningar, tón-
list eða eitthvað annað.“
Bjarki segir að njólasúpa,
njólabrauð og njólapestó sé fastur
liður á fardagahátíðinni, en auk
þess ætli hann að bjóða upp á
snittur með lambahjörtum sem
marineruð hafa verið í njóla og
grilluð. „Ég verð líka með græn-
metis- og njólasalsa og sætkart-
öflumauk með njóla. Í sætmeti býð
ég upp á njólapönnukökur með
njólasultu, að ógleymdu sírópi sem
ég hef bragðbætt með hinum ýmsu
villtu jurtum. Mikro kaffibrennslan
Kvörn verður með „pop up“ kaffi-
hús með ljúffengu kaffi og þar
verður hægt að forvitnast um allt
það nýjasta í kaffiheiminum,“ segir
Bjarki sem býr í Birtingaholti,
hann flutti þangað fyrir fjórum
mánuðum ásamt Ernu kærustu
sinni.
„Bragginn hér í Birtingaholti
er frábær vettvangur fyrir svona
hátíð, umvafinn fallegri náttúru.
Þar sem ég er kokkur þá hef ég
verið að taka að mér verkefni á því
sviði hér í sveitunum, ég var að
ljúka tveggja mánaða törn sem
kokkur á veitingastaðnum Gull-
fosskaffi. Við kunnum vel við okkur
í sveitinni.“
Girnilegt Njólabrauð og njólapestó er fastur liður á fardagahátíð Bjarka.
Morgunblaðið/Sverrir
Fallegur Njóli prýðir matarborð.
Myndlistar- og matarhátíðin
Fögnuður á fardögum verður í
Bragganum í Birtingaholti í Hruna-
mannahreppi á morgun, laugardag
3. júní, og hefst kl. 14. Allir hjart-
anlega velkomnir.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
Á vefmiðli TMW (themysterious-
world.com) hefur verið birtur listi yfir
tíu friðsælustu lönd veraldar árið
2017. Listinn kemur frá stofnuninni
Institute of Economics and Peace og
voru 162 lönd sett á mælistikuna.
Löndunum var raðað á lista eftir 22
ólíkum atriðum, þar á meðal glæpa-
tíðni, sambandi við nágrannaþjóðir,
hvort engin væru stríðsátökin, skóla-
málum og fleiru.
Þrjú Norðurlönd eru meðal þeirra
tíu landa sem efst eru á listanum, Ís-
land er í fyrsta sæti, Danmörk í öðru
sæti og Finnland í sjötta sæti. Full
ástæða er til fagna því að litla Ísland
er samkvæmt þessu talið friðsælasta
landið í heiminum til að búa í. Í frétt-
inni er tiltekið að á Íslandi sé lýðræði
á háu stigi, þar ríki kynjajafnrétti og
fáir séu í fangelsi. Læsi sé á Íslandi
99% og menntun ókeypis. Íslend-
ingar eru auk þess sagðir meðal best
upplýsta fólks heims, meðal þeirra
þjóða sem lesa mest og meðal þeirra
sem gefa hlutfallslega út flestar
bækur. Okkur er einnig talið til tekna
að konur taki hér virkan þátt í pólitík,
skóla- og menntamálum, sem og í
heilbrigðis- og atvinnugeiranum. Og
auðvitað er tekið fram að Ísland var
fyrsta landið í Evrópu til að kjósa
konu sem forseta, Vigdísi Finnboga-
dóttur. Að lokum er þess getið að Ís-
land er laust við moskítóflugur, því
þær þrífist ei hér í norðri. Húrra!
Þrjú Norðurlönd í tíu efstu sætunum
Morgunblaðið/Golli
Vigdís Tekið er fram að á Íslandi taki
konur virkan þátt í pólitík og hér hafi
fyrsta konan verið kosin til forseta.
Ísland hefur verið valið
friðsælasta land í heimi
Ég heyri sjálfa mig oft segja setn-
ingar líkt og „taktu nú til í eldhúsinu“
eða „ekki koma of seint heim“. Marg-
ir myndu halda að þessu væri beint
að barni en svo er ekki.
Á mínu heimili er barnið fimmtug
kona sem vill meina að hún sé móðir
mín.
Hlutverkaskipti á mínu heimili eru
því líklega ekki það sem flestir lands-
menn þekkja.
Í fyrradag buðum við vinkonu í
kvöldmat þar sem rabbað var um alls
kyns mál, meðal annars hvað væri
það nýjasta nýtt á hinni góðkunnu
síðu Netflix.
Við mæðgur fengum nokkrar
ábendingar um þætti sem væri þess
virði að horfa á og mætti því segja að
matarboðið hafi tekist
vel. Kjötbollur í skipt-
um fyrir ábendingar
um sjónvarpsáhorf.
Um hálftíuleytið
sama kvöld heyrist
svo í móður minni:
„getum við horft á Netflix?“
Ég var nýkomin úr baði og
því tilbúin til þess að
hreiðra um mig undir
sæng og vera sofnuð
fyrir tíu líkt og öllum
19 ára einstaklingum
er sæmandi.
Ég svaraði því
móðurinni að klukkan
væri orðin of margt og
það væri kominn hátta-
tími. Ég bætti við:
„kannski á morgun ef
þú verður þæg.“ Við
lok þessarar setningar uppgötvaði ég
að líklegast ætti aldurinn minn að
vera öfugur. Það er að segja ég lifi
kannski í líkama 19 ára einstaklings
en er í raun 91 árs.
Eftir svolitla umhugsun komst ég
að því að það væri bara ágætis aldur.
Ég skil ekkert í fólki sem vill fara út
seint á kvöldin að „djamma“ í mið-
bænum eða annað
slíkt.
Minn frítími
fer miklu frek-
ar í að horfa á
góða heimilda-
mynd uppi í sófa
með köttinn í fang-
inu eða að skipa
móðurinni að fara út
með ruslið.
Ég ætti kannski
að fara að athuga
hvort það sé laust
pláss á einhverju
hjúkrunarheimili fyr-
ir mig og á leikskóla
fyrir sambýlismann-
eskjuna.
»Líklegast ætti aldurinn minn að
vera öfugur. Það er að
segja ég lifi kannski í
líkama 19 ára einstaklings
en er í raun 91 árs.
Heimur Urðar
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Fyrirbyggir exem
• Betri og sterkari
fætur