Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
85
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina
Guðrún Hanna Hilmarsdóttir, skólastjóri Alþjóðaskólans á Íslandi,fagnar 50 ára afmæli í dag. Hún er uppeldis- og menntunar-fræðingur að mennt og að auki með meistaragráðu í fræðslu-
starfi og stjórnun.
„Alþjóðaskólinn kennir eftir alþjóðlegri námskrá og sérhæfir sig fyr-
ir börn sem staldra tímabundið við hér á Íslandi, sem og þau sem eiga
hér heima til langframa. Bæði er kennt á ensku og íslensku. Skólinn er
13 ára í ár og við erum því frumkvöðlar í alþjóðlegri grunnskóla-
menntun á Íslandi með tæplega 100 nemendur frá fimm ára aldri upp í
tíunda bekk.“ Hanna er að ljúka tíunda ári sínu við skólann: „Ég er búin
að taka þátt í uppbyggingu á þessu frumkvöðlastarfi með kraftmiklu og
frábæru teymi. Við vorum meðal annars að ljúka ströngu alþjóðlegu
faggildingarferli.“
Fjölskyldan og vinir eru í fyrirrúmi hjá Hönnu. „Matarboðin eru
mörg sem haldin eru á heimilinu enda nýt ég þess að elda góðan mat og
hafa mína í kringum mig. Golfi hef ég mikið gaman af þótt ég myndi
seint teljast vera góð. Ég les mikið starfsins vegna, elska góðar bíó-
myndir og er alæta á tónlist. Veit fátt skemmtilegra en að fara á tón-
leika, ferðast og hitta skemmtilegt fólk
Ég ætla að halda upp á daginn með nánustu vinum og fjölskyldu. Það
verða klárlega léttir réttir og litrík stemning “
Eiginmaður Hönnu er Örn Héðinsson, framkvæmdastjóri hjá Karl K.
Karlsson ehf. Synir þeirra eru Hilmar Sindri, sem starfar hjá Opnum
kerfum, og Héðinn Snær, nemi í alþjóðahagfræði og stjórnun í Álaborg.
„Um miðjan júní tekur við kærkomið frí, en þá munum við hjónin
skella okkur út í sólina. Í júlí munum við svo ferðast um landið með góð-
um vinum, en það hefur verið árlegur siður hjá okkur undanfarin ár.
Nú er komið að sunnanverðum Vestfjörðum.
Ég ætla fyrst og fremst að njóta lífsins á þessum tímamótum með
gleði og jákvæðni að leiðarljósi.“
Fjölskyldan Myndataka í tilefni af útskrift yngri sonarins.
Með gleði og já-
kvæðni að leiðarljósi
Hanna Hilmarsdóttir er fimmtug í dag
R
agnar Ólafsson fæddist
að Kvíum í Þverárhlíð
í Mýrasýslu 2.6. 1927,
ólst þar upp og átti
þar heimilisfang til 20
ára aldurs.
Ragnar stundaði nám í Héraðs-
skólanum í Reykholti veturna 1942-
44, stundaði síðan nám í Samvinnu-
skólanum 1945-47 og sótti stutt
verslunarnámskeið í Bretlandi sum-
arið 1947. Ragnar var verslunar-
maður hjá Kaupfélagi Borgfirðinga
í Borgarnesi 1947-48 og var sölu-
maður hjá heildverslun í Reykjavík
haustið 1948. Hann hóf störf á
Skattstofu Reykjavíkur í ársbyrjun
1949 en sumarið 1949 var hann
starfsmaður hjá Dagblaðinu Tím-
anum og jafnframt erindreki hjá
Framsóknarflokknum.
Ragnar hóf aftur störf hjá Skatt-
stofu Reykjavíkur haustið 1949 og
starfaði þar til ársloka 1997 eða
rösklega hálda öld. Þá var hann
settur skattstjóri á Ísafirði sumarið
1955 en fulltrúi á Skattstofu
Reykjavíkur frá 1953. Hann var
skipaður deildarstjóri atvinnu-
rekstrardeildar í desember 1958,
var jafnframt varaskattstjóri til
næstu sex ára, annaðist jafnframt
endurskoðun söluskatts í umdæm-
um utan Reykjavíkur í nokkur ár
og annaðist endurskoðun skatt-
framtala í Árnessýslu á árunum
1956-62 í umboði yfirskattanefndar
Árnessýslu. Hann var í framtals-
nefnd Reykjavíkur 1967-2003,
hvoru tveggja, aðalmaður eða vara-
maður, var formaður framtals-
nefndar 1978-82 og umsjónarmaður
með ýmsum störfum framtals-
nefndar í umboði borgarstjóra um
nokkurra ára skeið.
Ragnar sat í stjórn FUF í
Reykjavík, í stjórn SUF um árabil,
Ragnar Ólafsson, fyrrverandi deildarstjóri – 90 ára
Gömul fjölskyldumynd Ragnar og kona hans, Theódóra, með börnum sínum, Sigríði, Gísla og Sveini.
Bókamaður með mik-
inn áhuga á ættfræði
Afmælisbarnið Ragnar starfaði hjá
skattinum í rúma hálfa öld.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.