Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
Úthlutað var úr Minningarsjóði
Kristjáns Eldjárns gítarleikara í sjö-
unda sinn í gær, fimmtudaginn 1.
júní. Sjóðurinn var stofnaður af fjöl-
skyldu hans, vinum og samstarfs-
félögum eftir að Kristján lést 22. apríl
árið 2002 eftir tveggja ára veikindi,
tæplega þrítugur að aldri. Er sjóðn-
um ætlað að verðlauna framúrskar-
andi tónlistarmenn.
Í þetta sinn hlutu styrk úr sjóðnum
þær Rannveig Marta Sarc fiðluleikari
og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, bás-
únu- og fiðluleikari.
Rannveig segir það mikinn heiður
að hljóta styrkinn, sem komi að miklu
gagni og sé hún afar þakklát. Hún
kveðst aðallega ætla að nota styrkinn
í námið sitt, en hún stundar um þess-
ar mundir bachelor-nám við Juilliard-
skólann í New York. „Það er mjög
dýrt að stunda nám í Bandaríkjunum
og New York er sérstaklega dýr
borg,“ segir Rannveig og kveður að
næsta ár muni svo fara í að sækja um
meistaranám og því komi styrkurinn
sér afar vel fyrir flugfargjöld og um-
sóknargjöld.
Sigrún hafði orð á því að það að
hljóta þennan styrk væri eins og að
detta í lukkupott. Stundar hún meist-
aranám við listkennsludeild Listahá-
skóla Íslands um þessar mundir og
hyggst nota styrkinn í að fjármagna
vinnu í lokaritgerð. „Þetta fjármagn
kemur á ótrúlega góðum tíma og það
er gott að geta staðið vel að rann-
sóknarverkefni sínu og öllu sem því
fylgir,“ segir Sigrún.
Áður hafa hlotið styrki úr sjóðnum
þau Kristinn H. Árnason gítarleikari,
Daníel Bjarnason, hljómsveitarstjóri,
tónskáld og píanóleikari, Helga
Kristbjörg Guðmundsdóttir harm-
onikuleikari, Ari Bragi Kárason,
trompet- og flygilhornleikari, Sunna
Gunnlaugsdóttir, píanóleikari og tón-
skáld, og nú síðast Skúli Sverrisson,
bassaleikari og tónskáld.
thorgerdur@mbl.is
Fiðluleikarar fá styrk
Minningarsjóð-
ur Kristjáns Eld-
járns gítarleikara
veitti tvo styrki
Morgunblaðið/Golli
Styrkþegar Rannveig Marta Sarc og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir ásamt
Þórarni Eldjárn. Þær hlutu styrk úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns í gær.
Tveir nýir höfundar hljóta Nýræktarstyrki Miðstöðvar
íslenskra bókmennta í ár til útgáfu á verkum sínum, en
styrkirnir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Gunnars-
húsi, húsi Rithöfundasambandsins, í gær. Styrkþegar í
ár eru Fríða Ísberg fyrir ljóðasafnið Slitförina og Pedro
Gunnlaugur Garcia fyrir skáldsöguna Ráðstefna talandi
dýra. Hvort um sig hlýtur 400.000 kr. að launum.
Samkvæmt upplýsingum frá Miðstöð íslenskra bók-
mennta er þetta í tíunda skipti sem Nýræktarstyrkjum
er úthlutað, en alls hafa hátt í fimmtíu höfundar fyrir 39
verk hlotið þessa viðurkenningu frá upphafi.
Bókmenntaráðgjafar Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta, Helga Ferdinandsdóttir og Magnús Guð-
mundsson, veittu umsögn um umsóknir. Í umsögn
þeirra um ljóðasafn Fríðu Ísberg segir: „Slitförin er
safn ljóða sem fjalla á ágengan hátt um togstreituna við
að brjótast undan áhrifavöldum bernskunnar og finna
leiðina að eigin sjálfi. Leiðarstef verksins er sársaukinn
sem sprettur úr nístandi sorg milli barns og foreldris.
Ljóðin taka pláss, sýna afstöðu og grípa lesendur föst-
um tökum.“
Fríða Ísberg stundar meistaranám í ritlist, hagnýtri
ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands. Slitförina vann
hún undir leiðsögn Sigurðar Pálssonar.
Að mati bókmenntaráðgjafanna er skáldsagan Ráð-
stefna talandi dýra „ekkert venjulegt byrjendaverk
heldur viðamikil og þroskuð skáldsaga sem fléttar sam-
an ólíka menningarheima á tvennum tímum, líf fólks,
drauma og örlög. Frjótt ímyndunarafl í sterklega
byggðri frásögn, á lifandi og skemmtilega stílaðri ís-
lensku, mynda einstaka heild í heillandi skáldsögu.“
Pedro Gunnlaugur Garcia er með BA í félagsfræði og
MA í hagnýtri menningarmiðlun.
„Í ár bárust 57 umsóknir um Nýræktarstyrki og er
það metumsóknarfjöldi á þeim tíu árum sem styrkirnir
hafa verið veittir. Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrk-
ir til útgáfu á fyrstu skáldverkum höfunda sem eru að
stíga sín fyrstu skref á ritvellinum og til að hvetja þá til
frekari dáða á þeirri braut,“ segir í tilkynningu, en þar
kemur fram að meðal höfunda sem hlotið hafa styrkinn
á liðnum árum eru Bryndís Björgvinsdóttir og Halldór
Armand Ásgeirsson.
Morgunblaðið/Golli
Ánægja Fríða Ísberg og Pedro Gunnlaugur Garcia hljóta Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta í ár.
Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra var við athöfnina í Gunnarshúsi í gær og afhenti Nýræktarstyrkina.
Tveir nýir höfundar
Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta afhentir
Alls bárust 57 umsóknir þetta árið 39 verk styrkt frá 2009
„Opnum dyrnar“ nefnist lag dags
rauða nefsins í ár, en það er sam-
ið og flutt af rapparanum Atla
Sigþórssyni, sem er betur þekktur
undir listamannsnafninu Kött Grá
Pjé. Hefð hefur skapast fyrir því
að kynna nýtt lag í aðdraganda
dags rauða nefsins hjá UNICEF.
Átakið nær hámarki í beinni út-
sendingu á RÚV föstudaginn 9.
júní þegar grínistar, leikarar,
fjölmiðlafólk og tónlistarmenn
skemmta áhorfendum og skora á
þá að hjálpa börnum með því að
gerast heimsforeldrar UNICEF.
Meðhöfundar Kött Grá Pjé að
laginu eru Karó, Kristján Eldjárn
og Magnús Öder. Textann gerði
Kött Grá Pjé í samstarfi við Karó,
sem syngur viðlagið. „Textinn
fjallar m.a. um það hversu gott
margir hafi það í raun hér á landi
og að hollt sé að líta í kringum
sig og átta sig á því í hversu erf-
iðum aðstæðum fólk sé um allan
heim. Okkur beri skylda til að
leggja okkar af mörkum til að að-
stoða þau sem virkilega þurfi á
því að halda. Sjálfur hefur Kött
Grá Pjé verið heimsforeldri hjá
UNICEF í heil ellefu ár,“ segir í
tilkynningu.
„Opnum dyrnar“ er sjöunda
lagið sem samið er fyrir UNICEF,
en fyrri lagahöfundar eru Reykja-
víkurdætur, Pollapönk, FM Bel-
fast, Páll Óskar Hjálmtýsson,
Redd Lights, Retro Stefson, Ljótu
hálfvitarnir og Baggalútur.
Opnum dyrnar lag dags rauða nefsins
Lagahöfundurinn Kött Grá Pjé ásamt
góðum ferfættum og loðnum félaga.
Bjarni Bernharður Bjarnason opn-
ar í SÍM salnum að Hafnarstræti 16
málverkasýningu í dag kl. 17. Sýn-
ingaropnunin er jafnframt útgáfu-
teiti nýjustu bókar hans, sem nefn-
ist Í landi þúsund djöfla. Bjarni
mun lesa upp ljóð úr bókinni við lif-
andi undirleik dúettsins Azima &
Gason Bra. Léttar veitingar verða í
boði og allir velkomnir.
„Bjarni er sjálfmenntaður mynd-
listarmaður og ljóðskáld. Hann hef-
ur áður sýnt verk sín á fjölmörgum
málverkasýningum, en myndirnar
eru að þessu sinni málaðar með olíu
á striga,“ segir í tilkynningu.
Sýningin stendur til 20. júní og er
opin alla virka daga kl. 10- 16.
Í landi þúsund djöfla fagnað í dag
Málverk Eitt verka Bjarna Bernharðs.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s.
Lau 3/6 kl. 20:00 181 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s. Mið 14/6 kl. 20:00
Sing-along
Mið 7/6 kl. 20:00
Sing-along
Lau 10/6 kl. 20:00 185 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s.
Allra síðustu sýningarnar! Síðasta sýning fimmtudaginn 15. júní.
RVKDTR- THE SHOW (Litla svið)
Lau 3/6 kl. 20:00 5. sýn.
Reykjavíkurdætur taka yfir Litla sviðið og láta gamminn geisa.
Elly (Nýja sviðið)
Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn
Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn
Þri 6/6 kl. 20:00 aukas. Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn
Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn
Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara.
Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið)
Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 7. sýn
Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn Fim 14/9 kl. 20:00 8. sýn
Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Lau 9/9 kl. 20:00 6. sýn Fös 15/9 kl. 20:00 9. sýn
Sýningar í haust komnar í sölu.
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 11/6 kl. 13:00 Sun 10/9 kl. 13:00
Lau 2/9 kl. 13:00 Sun 17/9 kl. 13:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 10/6 kl. 19:30 Lokasýning
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fim 8/6 kl. 19:30 Lokasýning
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Naktir í nátturunni (None)
Fim 15/6 kl. 19:30 Aðeins ein
sýning
ÁHUGASÝNING ÁRSINS
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200