Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 10
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Íbúar í Árbæ hafa staðið í deilum við Reykjavíkuborg í meira en 50 ár vegna fasteignareits í Elliðaárdal. Deilurnar snúast nú um leyfi erf- ingja að reitnum til að byggja nýtt hús en íbúar segja að Reykjavíkur- borg hafi nýlega breytt deiliskipu- lagi án samráðs. „Það er búið að vera þannig að þegar við byrjuðum byggja hér árið 1964, þá var þessi litli bústaður hérna fyrir neðan. Hann lenti fyrir utan skipulagið, við byggðum bara eftir skipulagi og erum með neðstu lóð,“ segir Ásta Marinósdóttir, íbúi í Þykkvabæ, en hún er meðal þeirra sem hafa leitað aðstoðar KPMG til að sjá um núverandi deilur við borg- ina. „Þegar við vorum að byggja hafði eigandi bústaðarins fengið leyfi til að byggja við bústaðinn. Við létum það ekki trufla okkur og bjuggumst bara við því að borgin myndi gera það sem hún átti að gera, eins og var búið að gera við alla gömlu bústað- ina sem voru þarna, en þeir voru all- ir fjarlægðir,“ segir Ásta en 53 árum síðar hefur bústaðurinn enn ekki verið fjarlægður. Fundað með flestum borgarstjórnum á tímabilinu „Við fórum á marga fundi við hjónin, ég held við séum búin að tala við alla sem hafa verið í borgar- stjórn, síðan ég man ekki hvenær. Það virtist vera alveg sama við hvaða stjórn við töluðum. Það virtist enginn geta gert neitt sem maður skildi aldrei,“ segir Ásta en hún og maður hennar Bjarni Ágústsson hafa ásamt tengdasyni þeirra sótt fundi síðustu ár hjá borginni. Að sögn Ástu fengu eigendur reitsins árið 2005 leyfi til að halda eignarrétti á reitnum en ekki leyfi til að byggja. Núna sé hins vegar búið að breyta deiliskipulagi og gert sé ráð fyrir húsi á staðnum. „Við höfum ekki fengið neina tilkynningu um að það ætti að breyta deiliskipulagi,“ segir Ásta en hún frétti af breyting- unni í fjölmiðlum. „Við fórum nátt- úrulega strax af stað aftur með und- irskriftalista, því fólk hérna er sammála um að það eigi ekki að láta byggja eitthvert stórt hús þarna.“ Ekki liggur fyrir hvernig hús verður byggt á reitnum en Ásta seg- ir að í upphaflegum teikningum hafi verið gert ráð fyrir 235 fermetra húsi sem væri 4,5 metrar á hæð, ásamt stækkun á lóðinni. Hún segir jafnframt að slíkt myndi skyggja á sýn íbúa á dalinn „Við höfum aldrei fengið að njóta þess að vera með þessa lóð, því við héldum nátt- úrulega að við ættum að vera föst í skipulaginu,“ segir Ásta og á þar við upphaflegt deiliskipulag. Hafa staðið í deilum við Reykjavíkurborg í 50 ár  Íbúar í Árbæ ósáttir með breytingar í Elliðaárdal Morgunblaðið/Hanna Deilur „Við erum orðin ansi langþreytt á þessu,“ segir Ásta (t.h.) ásamt Guðrúnu Helgu Theodórsdóttur (t.v.). Morgunblaðið/Hanna Niðurnítt Svona lítur húsið út sem stendur enn þá í Elliðaárdalnum. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Líkur á fyrirhuguðu verkfalli Flug- freyjufélags Íslands og ASÍ þann 15. september vegna flugliða um borð í vélum Primera Air eru töluverðar. Ekkert hefur þokast í samkomu- lagsátt enda telur Andri Már Ing- ólfsson, forstjóri Primera Air, félag- ið ekki eiga í neinum deilum við Flugfreyjufélag Íslands né ASÍ. Erum ekki í neinum deilum „Við erum ekki í deilum við Flug- freyjufélagið né ASÍ. Við sendum frá okkur ítarlega og vel rökstudda greinargerð um málið og ég reikna með að ASÍ og Flugfreyjufélagið séu að meta hana. Við erum ekki með flugrekstarleyfi á Íslandi og ráðum okkar starfsfólk á tíu stöðum í Evr- ópu. Starfsfólkið er ráðið á þeim kjörum sem gilda á þeim stað þar sem það er ráðið. Ég ítreka það enn og aftur að Primera Air er ekki í neinum deilum, hvorki við Flug- freyjufélag Íslands né ASÍ,“ segir Andri Már Ingólfsson. Magnús Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ, gefur lítið fyrir greinargerð Primera Air og bendir á að ASÍ hafi fengið synjun frá starfs- mannaleigu Primera Air þegar leitað var eftir því að fá að sjá ráðning- arkjör starfsfólks. Starfsmannaleig- an telur sig ekki mega upplýsa um ráðningarsamninga starfsmanna. ASÍ og flugfreyjur eru hvergi hætt í baráttunni og njóta stuðnings erlendra stéttarfélaga. „Við höfum aflað gagna frá félögum okkar er- lendis sem sýna skýr dæmi um gerviverktöku hjá Primera Air,“ segir Magnús Norðdahl. Gerviverktaka flugliða  Flugfreyjur og Primera Air deila enn Kjaradeila Langt á milli deiluaðila. Hreyfiviku UMFÍ lýkur um helgina og hefur þátttaka verið mjög góð, að sögn Sabínu Stein- unnar Halldórsdóttur landsfulltrúa. „Það eru eldhugar úti um allt land,“ segir hún. Ragnheiður Högnadóttir í Vík í Mýrdal er einn þessara eldhuga, en hún fer fyrir átakinu í Vík. „Þátt- takan hefur verið góð,“ segir hún og bendir á að fólk á öllum aldri taki þátt í hreyfingu af einhverju tagi. Vikan í Vík hófst á samstarfsverk- efni skólanna, lögreglunnar og ung- mennafélagsins, sem fólst í því að lögreglan heimsótti leikskólann og grunnskólann, fór í göngu- og hjóla- ferðir með börn- unum og áréttaði reglur í sambandi við hjól og hjálma. Mýrdalshlaup- ið, sem er 10 km hlaup, fer fram í fimmta sinn á morgun og hefst klukkan 14. Kepp- endur mæta við Víkurskóla hálftíma fyrr og verður þeim ekið þaðan á rásstað. Hlaupið byrjar við Dyrhóla- ey í Reynisfjöru og verður fyrst hlaupið í lausum sandi eða möl, síðan eftir malbikuðum vegi og þaðan upp í Reynisfjall utan vega og á slóða áð- ur en haldið verður aftur niður til Víkur. Ragnheiður segir von á skemmtilegri blöndu hlaupara, m.a. verði fremstu utanvegahlauparar landsins með. steinthor@mbl.is Utanvegahlaup í Vík Vík í Mýrdal Leikskólakrakkar í göngutúr með lögreglunni. Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður, eins og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki, fæst í miklu úrvali í Vélum og verkfærum. Öryggi í sumarbústaðnum Blaupunkt SA2700 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Fullkominn GSM hringibúnaður • Hægt að stjórna með Connect2Home-appi • Boð send með sms eða tali • Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir Verð: 45.725 kr. OLYMPIA 9030 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Mjög einfalt í uppsetningu/notkun • Fyrir farsímakort (GSM) • Hringir í allt að 10 símanúmer • Allt að 32 stk. skynjarar • 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir • Fáanlegir aukahlutir: viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar, svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar. Verð: 14.570 kr. Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 FAI varahlutir Ódýrari kostur í varahlutum! stýrishlutir hafa verið leiðandi í yfir 10 ár. Framleiddir undir ströngu eftirliti til samræmis við OE gæði. Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.