Morgunblaðið - 02.06.2017, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja@mbl.is
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, hefur ákveðið að Bandaríkin
verði ekki lengur aðili að hinum svo-
kallaða Parísarsáttmála sem leiðtog-
ar 195 ríkja heims undirrituðu árið
2015. Sáttmálinn miðar að því að
þjóðir heims leggi sitt af mörkum til
þess að draga úr losun eiturefna út í
andrúmsloftið svo stemma megi
stigu við hækkun hitastigs jarðar-
innar.
Trump hefur áður talað gegn sátt-
málanum og sagt að hnattræn hlýn-
un sé ekkert nema tilbúningur Kín-
verja. Því var ekki búist við að
Bandaríkin stæðu við sinn hluta sátt-
málans eftir að Trump var kjörinn
forseti. Hans nánustu ráðgjafar,
Steve Bannon og Scott Pruitt, eru
báðir yfirlýstir andstæðingar París-
arsáttmálans og segja hann ekki
byggðan á neinum haldbærum rök-
um.
Stuðningur fyrirtækja
skiptir máli
Björt Ólafsdóttir umhverfisráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þótt vissulega væri tilefni
til að hafa áhyggjur lægi það á sama
tíma ljóst fyrir að stór fyrirtæki í
Bandaríkjunum væru mjög á móti
þessari ákvörðun forsetans og það
væri það sem skipti mestu máli. Þá
væru aðrar þjóðir ekki á leið út úr
samningnum. „Það sem er að gerast
er að stóru þjóðirnar, á borð við Kín-
verja, eru að þétta raðirnar með
Evrópusambandinu og það er góðs
viti að allir aðrir ætli að standa við
sitt.“ Björt segir einnig að Ísland
muni standa við sínar skuldbinding-
ar.
Í ræðu sinni sagði Trump að
samningurinn væri Bandaríkjunum
mjög óhagstæður og vísaði til þess,
máli sínu til stuðnings, að Kína og
Indland hefðu heimild til þess að
nýta fleiri kolanámur, en Bandaríkin
hefðu ekkert slíkt leyfi og það kæmi
niður á ameríska hagkerfinu. Hann
útilokaði þó ekki að Bandaríkjamenn
myndu setjast aftur að samninga-
borðinu, en slíkt yrði að geta leitt til
hagstæðari samninga fyrir þá.
Bandarísk störf væru í húfi.
Þó að ákvörðun Trumps hafi legið
í loftinu í dágóðan tíma þykir þetta
samt sem áður koma afar illa við hið
alþjóðlega samkomulag. Bandaríkin
séu stórveldi og í því samhengi skipti
þátttaka þeirra miklu máli. Í aðdrag-
anda ákvörðunar Trumps hvöttu
þjóðarleiðtogar heims hann til þess
að hugsa málið vandlega. Forsætis-
ráðherrar Norðurlandanna sendu
honum bréf í gær, ásamt því að biðla
til hans á Twitter.
Kínverjar taki forystuna.
Li Keqiang, varaforsætisráðherra
Kína, sagði að Kínverjar væru reiðu-
búnir til þess að taka við stjórninni í
loftslagsmálum, Parísarsáttmálinn
væri samkomulag sem Kínverjar
væru reiðubúnir að virða. Tíminn
mun leiða í ljós hvaða afleiðingar
ákvörðun Trumps mun hafa en hún
mun hins vegar ekki taka gildi fyrr
en í fyrsta lagi í nóvember árið 2019.
Trump dregur Bandaríkin út
Segir Parísarsáttmálann óhagstæðan og vill semja upp á nýtt Þjóðarleiðtogar heims uggandi yfir
afstöðu Trumps Forsetinn hyggst blása nýju lífi í kolanámur víða um Bandaríkin á næstu árum
AFP
Loftslagsmál Donald Trump forseti tilkynnir að hann muni draga Bandaríkin út úr Parísarsáttmálanum.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Rússneskar orrustuþotur gerðu í
gær loftárásir á bílalestir liðsmanna
Ríkis íslams í Sýrlandi. Greina rúss-
neskir miðlar frá því að vígamenn-
irnir hafi verið að flýja borgina
Raqqa, síðasta höfuðvígi samtakanna
þar í landi, þegar árásin var gerð, en
minnst 80 manns eru sagðir hafa fall-
ið í aðgerð flughersins.
Fram kemur í yfirlýsingu frá varn-
armálaráðuneyti Rússlands að um
hafi verið að ræða þrjár stórar bíla-
lestir með nokkrum tugum öku-
tækja. Um borð voru, auk víga-
manna, vopn og skotfæri og segir
ráðuneytið herþotur hafa valdið sam-
tökunum miklu tjóni með árásinni.
Er hópurinn sagður hafa verið á leið
til borgarinnar Palmyra.
Að sögn varnarmálaráðuneytisins
barst tilkynning um ferðir ökutækj-
anna frá njósnasveitum á jörðu niðri.
Í kjölfarið voru orrustuþotur sendar
á loft og tókst þeim að eyðileggja alls
36 ökutæki, þeirra á meðal átta elds-
neytisbíla og 17 pallbíla sem ýmist
voru búnir stórvirkum vélbyssum
eða sprengjuvörpum.
„Rússneskar hersveitir í Sýrlandi
hafa gefið það út að öllum tilraunum
vígamanna Ríkis íslams til þess að
flýja borgina Raqqa í átt að Palmyra
verði mætt með mikilli hörku,“ segir í
tilkynningu ráðuneytisins.
Fleiri fengið sömu meðferð
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
sveitir Ríkis íslams gera tilraun til
þess að flýja Raqqa. 25. maí síðastlið-
inn sást til hátt í 40 ökutækja og um
120 vígamanna þar sem þeir höfðu
yfirgefið borgina og stefndu í átt að
Palmyra. Sá hópur hlaut sömu örlög.
Þá gerði rússneski sjóherinn stýri-
flaugaárás á skotmörk tengd sam-
tökunum nærri Palmyra sl. miðviku-
dag. Var notast við fjórar flaugar af
gerðinni Kalibr og hæfðu þær nokk-
ur mannvirki með tilheyrandi eyði-
leggingu. Freigátan Essen aðmíráll
og kjarnorkukafbáturinn Krasnodar
skutu vopnum þeim á loft frá aust-
anverðu Miðjarðarhafi.
Hersveitir Rússlands börðu
á liðsmönnum Ríkis íslams
Loft- og stýriflaugaárásir við Raqqa og Palmyra
Mynd/Varnarmálaráðuneyti Rússlands
Hernaðarmáttur Freigátan Essen
aðmíráll skýtur stýriflaug á loft.
„Hversu lengi þurfum við að þola
blóðsúthellingar í landinu okkar?“
hefur afgönsk fréttastofa eftir íbúa í
borginni Kabúl. Er hann einn þeirra
fjölmörgu sem leituðu ástvina sinna í
rústum húsa í sendiráðshverfinu eft-
ir að ódæðismaður varð minnst 90
manns að bana er hann sprengdi
bílsprengju sem vó um 1,5 tonn. Á
bilinu 450 til 550 manns eru særðir.
„Ég hef nú misst bróður minn og
ríkisstjórnin gerir fátt annað en að
bregðast okkur þegar kemur að því
að tryggja öryggi,“ bætti hann við.
Vettvangi árásarinnar hefur verið
lýst sem vígvelli. Lík og líkamsleifar
fólks lágu líkt og hráviði um götur og
þegar kom að því að flytja sært fólk á
sjúkrahús skapaðist mikið öngþveiti.
Í gær var hins vegar meiri kyrrð yfir
svæðinu. Björgunarmenn og al-
mennir borgarar unnu að því að
endurheimta jarðneskar leifar fólks
úr rústunum og hafa sumir þegar
verið bornir til grafar. Yfirvöld telja
ólíklegt að hægt verði að bera kennsl
á alla þá er létust – svo öflug var
sprengingin, að sögn AFP.
Vígasveitir talibana neituðu að
bera ábyrgð á ódæðinu en ráðamenn
í Afganistan telja þó fullvíst að þeir
hafi skipulagt og framkvæmt árás-
ina. Er forseti landsins nú talinn lík-
legur til að fyrirskipa tafarlausar af-
tökur á 11 talibönum sem eru í haldi
öryggissveita. khj@mbl.is
Íbúar langþreyttir á
blóðsúthellingum
Leituðu ástvina í húsarústum í Kabúl
Tairod Pugh,
fyrrverandi
starfsmaður
bandaríska flug-
hersins, hefur
verið dæmdur til
35 ára fangelsis-
vistar fyrir brot
gegn alríkis-
lögum, en hann
er yfirlýstur
stuðningsmaður
Ríkis íslams og reyndi m.a. að af-
henda því leynilegar upplýsingar.
Pugh var handtekinn í Tyrklandi
á leið sinni til Sýrlands. Í fórum
hans fundust gögn sem m.a. sýna
teikningar af vélbúnaði og innrétt-
ingum flugvéla. Bandaríska alríkis-
lögreglan (FBI) hefur fylgst með
honum undanfarin ár og vissi af
stuðningi hans við samtökin.
BANDARÍKIN
Vann fyrir herinn en
studdi Ríki íslams
Tairod
Pugh
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
og á leiðinni
Sími 4 80 80 80
2017 Ford F-350 Lariat
6,7L Diesel , 440 Hö, 925 ft of torque
með upphituð/loftkæld sæti,
heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í
hlera, Driver altert-pakki og
Trailer tow camera system.
VERÐ
9.290.000
2017 Suburban LTZ
Perluhvítur Suburban LTZ, Cocoa
Dune að innan. Keyrður 12 þús. km.
7 manna bíll með 4 kapteinsstólar,
Blu Ray spilari með tvo skjái, sóllúga
og fl. 5,3L V8, 355 hö.
VERÐ
12.990.000
2017 Chevrolet Silverado
High Country
Nýja 6.6L Duramax Diesel vélin, 445
HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upp-
hitað stýri, BOSE hátalaraker-
fi, upphituð og loftkæld sæti og
heithúðaður pallur. Einnig til hvítur.
VERÐ
9.590.000
2017 GMC Denali
Með sóllúgu, heithúðaðan pall, hita í
styri og fl. Nýja 6,6L Duramax Diesel
vélin 445 hö. Einnig til hvítur og Dark
Slate.
VERÐ
9.890.000
Ath að myndin er af sambærilegum bíl