Morgunblaðið - 02.06.2017, Page 20

Morgunblaðið - 02.06.2017, Page 20
Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 ✝ Dóra Nordalfæddist í Reykjavík 28. mars 1928. Hún lést á Landspít- alanum 26. maí 2017. Foreldrar Dóru voru Marta Magn- úsdóttir húsmóðir, f. 30. mars 1900, d. 7. febrúar 1990, og Guðjón Ó. Guð- jónsson, prentari og bókaút- gefandi, f. 13. ágúst 1901, d. 17. júlí 1992. Foreldrar Mörtu voru Oddný Jónsdóttir, 1864- 1950, og Magnús Snorrason, 1854-1903. Fósturforeldrar Mörtu voru Guðmundur Magn- ússon (Jón Trausti) og Guðrún Sigurðardóttir. Foreldrar Guð- jóns voru Salvör Sigurðardótt- ir, 1859-1921, og Guðjón Ein- arsson, 1856-1901. Systir Dóru er Marta Magnúsdóttir, f. 14. september 1929. Hún hefur verið búsett í London frá 1949. Maki Magnús Guðmundsson flugstjóri, f. 1929, d. 2014, og eru börn þeirra: Guðjón Ólaf- ur, Magnús og Marta. Dóra giftist Jóhannesi Nor- dal, fyrrverandi seðlabanka- stjóra, í Kaupmannahöfn þann 19. desember 1953. Foreldrar Salvör, lektor og forstöðumað- ur Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, f. 21. nóvember 1962. Maki af fyrra hjónabandi er Eggert Pálsson. Synir þeirra eru: Páll, f. 1997, og Jóhannes, f. 2002. 5) Ólöf, lögfræðingur, MBA og fv. ráðherra, f. 3. des- ember 1966, d. 8. febrúar 2017. Maki Tómas Már Sig- urðsson forstjóri. Börn þeirra eru: Sigurður, f. 1991, Jóhann- es, f. 1994, Herdís, f. 1996, og Dóra, f. 2004. 6) Marta, leikari og leikstjóri, f. 12. mars 1970. Maki Kristján Garðarsson arki- tekt. Börn þeirra eru: Hjördís, f. 2007, og Sigurður, f. 2009. Sonur Kristjáns af fyrra hjóna- bandi er Garðar Kristjánsson, f. 1995. Dóra ólst upp á Hallveigar- stíg í Reykjavík. Hún stundaði nám í píanóleik við Tónlistar- skólann í Reykjavík frá unga aldri og var aðalkennari henn- ar Árni Kristjánsson. Að loknu burtfararprófi 1948 hélt hún til London til framhaldsnáms hjá Kathleen Long á árunum 1949-53. Dóra var ein fyrst ís- lenskra kvenna til að leggja fyrir sig stangveiði á flugu sem hún stundaði um áratuga skeið, einkum við Svarthöfða í Borgarfirði og í Laxá í Aðal- dal. Útför Dóru fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 2. júní 2017, klukkan 13. hans voru: Ólöf Jónsdóttir Nordal, 1896-1973, og Sig- urður Nordal pró- fessor, 1886-1974. Dóra og Jóhannes eignuðust sex börn, þau eru: 1) Bera, safnstjóri Nordiska Akv- arellmuseet í Sví- þjóð, f. 25. sept- ember 1954. Ekkja eftir Lennart Persson tón- listargagnrýnanda. Börn henn- ar og Sigurðar Snævarr eru: Jóhannes, f. 1982 og Ásdís Nordal, f. 1984. Maki: Gunnar Sigurðsson. Börn þeirra: Bera, f. 2013, og Gunnar Ármann, f. 2015. 2) Sigurður markaðs- fræðingur, búsettur í Kanada, f. 19. febrúar 1956. Maki Snæ- björg Jónsdóttir, f. 1969. Börn þeirra eru: Dóra, f. 1993, Anna, f. 1996 og Guðjón Ólaf- ur, f. 1997. Maki af fyrra hjónabandi Ragnheiður Ásta Þórisdóttir. Sonur þeirra er Jóhannes, f. 1988. 3) Guðrún, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, f. 27. sept- ember 1960. Maki Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt. Dótt- ir þeirra er Kristín, f. 2000. 4) Hefði hún spurt mig um frammistöðu sína í rullu tengda- móðurinnar hefði hún fengið svarið: til fyrirmyndar. En vitan- lega spurði hún aldrei svo mark- lausrar spurningar og í því var galdurinn sjálfsagt fólginn. Hún var afskiptalítil um hversdags- lega tilveru manns, svo mjög að manni fannst á stundum jaðra við fálæti – en þeim mun áhugasam- ari um það sem hug hennar og hjarta stóð næst hverju sinni. Þá gat hún hrifið mann með sér, oft í bókstaflegri merkingu, flestum frakkari og skemmtilegri. Þó að við Dóra ættum samleið í ríflega þrjá áratugi er hún mér á vissan hátt sama ráðgátan og hún var þegar við kynntumst fyrst. Í henni bjuggu ríkar andstæður, mótaðar af upplagi og umhverfi. Músíkin var ástríða hennar og ballest en þó aldrei hlutskipti. Hún var bóhem sem rækti sína borgaralegu plikt með sóma og jafnvel af nokkurri áfergju. Sex barna móðir sem sagðist ekki vera neitt gefin fyrir börn. Inni- setumanneskja sem óx í augum að fara á milli herbergja en óð svo út í stórfljót frekar en að missa fisk. Þegar hún hleypti gleðinni að var hún ekki amalegur fé- lagsskapur. Hún gat beitt per- sónutöfrum sínum miskunnar- laust þegar því var að skipta, þrautþjálfuð selskapsdama af há- borði viðreisnaráranna. Síðast er fundum okkar bar saman spurði hún mig hvort vinir Dóra Nordal ✝ Ingveldur Guð-mundsdóttir fæddist 25. október 1919 í Breiðumýr- arholti, Stokkseyr- arhreppi. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 22. maí 2017. Foreldrar henn- ar voru Ingveldur Þóra Jónsdóttir, f. 3. maí 1890 á Stokkseyri, d. 14. maí 1966, og Guðmundur Eiríks- son, f. 26. apríl 1887 á Sól- heimum í Hrunamannahreppi, d. 9. maí 1971. Systkini Ingveld- ar voru 1) Guðrún, f. 22. apríl 1916, d. 17. sept. 2009, maki Kristófer Guðleifsson, f. 28. apr- íl 1904, d. 7. febr. 1989, 2) Jón Ingibergur, f. 20. okt. 1923, d. Halldór Ingvason, 6) Unnur, maki Stefnir Helgason. Barna- börn Ingveldar eru samtals 13 og langömmubörn 24 og eitt væntanlegt í júlí. Ingveldur og Ólafur hófu bú- skap í Reykjavík. Þau fluttu á stríðsárunum í Kópavog og voru þar meðal frumbyggja. Þau bjuggu í sumarbústað á meðan Ólafur byggði þeim hús við Ný- býlaveg, sem þau fluttu í árið 1949. Ólafi fannst öruggara að vita af eiginkonu og börnum ut- an borgarmarka á þeim tíma, en hann var oft vegna vinnu sinnar sem trésmiður starfandi úti á landsbyggðinni. Ingveldur var alla tíð mjög vinnusöm kona. Hún vann utan heimilis á ýmsum starfsvett- vangi, eftir að börnin fóru að eldast. Hún var mikil hann- yrðakona og prjónaði margar vandaðar og fallegar flíkur fyrir Rammagerðina. Útför Ingveldar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 2. júní 2017, kl. 13. 22. apríl 2001, maki Bryndís Sveins- dóttir, f. 13. des. 1921, d. 10. okt. 2011. Uppeldis- bróðir Ingveldar var Gunnar Helga- son, f. 27. des. 1927, d. 4. júní 2015, eft- irlifandi eiginkona Gunnars er Katrín Magnúsdóttir, f. 30. júní 1932. Ingveldur giftist 16. maí 1941 Ólafi Kristjánssyni, f. 2. júní 1906 í Rvk., d. 22. apríl 1978. Börn Ingveldar og Ólafs eru 1) Kristján, maki Áslaug Friðriks- dóttir, 2) Guðrún Þóra, maki Ólafur V. Skúlason, 3) Sigurður Ingi, 4) Kristjana, maki Ove L. Rasmussen, 5) Hjördís, maki Ástkær móðir okkar er látin á 98. aldursári. Efst í huga okkar systkina er virðing og þakklæti til hennar fyrir alla hennar um- hyggju og elsku til okkar afkom- enda hennar. Við áttum með henni óteljandi dýrmætar stund- ir og umvafði hún okkur öll af ein- stakri hlýju og elsku. Við viljum þakka móður okkar fyrir þá hlýju, sem hún veitti börnum okkar og barnabörnum. Við viljum einnig þakka henni all- ar þær stundir sem hún passaði þau. Hún var ósérhlífin og einstak- lega dugleg kona. Hún vildi allt fyrir alla gera og aðstoða í hví- vetna. Við systkinin eigum marg- ar minningar um hana, þar sem hún er að hlúa að ættingjum og vinum, sem áttu erfiða daga. Hún var fyrst allra á fætur og síðust að ganga til hvílu. Til eru minn- ingar um það, að hún var búin að baka stafla af flatkökum og klein- um þegar börnin vöknuðu til að fara í skóla á morgnana. Móðir okkar veiktist ung kona af berklum og dvaldist um skeið á Kópavogshæli í húsi því sem nú er friðað. Henni reyndist mjög erfitt að horfa á eftir vinum í dauðann, sem hún kynntist þar. Móðir okkar var nemandi á Húsmæðraskólanum á Laugar- vatni. Í framhaldi af því vann hún sem vinnukona í Auðsholti í Ölf- usi hjá móðursystur sinni, en þar kynntist hún Ólafi Kristjánssyni sem þá var ráðsmaður hjá föð- urbróður sínum, Grími Hákonar- syni, sem þá var togaraskipstjóri í Kanada. Þau gengu í hjónaband 16. maí 1941 og brúðkaupsveisla þeirra var haldin á Grundarstíg 10 í Reykjavík, sem nú nefnist Hannesarholt, en þar bjó föður- systir okkar Katrín Kristjáns- dóttir. Með móður okkar og Katrínu var alla tíð mjög kær vin- átta. Móðir okkar var einn af stofn- endum Kvenfélags Kópavogs. Þær studdu byggingu Kópavogs- kirkju og öfluðu fjár til kaupa á samkomusal í Hamraborg. Einn- ig var hún einn af stofnendum líknarsjóðs, sem studdi við bakið á bágstöddum fjölskyldum. Móðir okkar var mikil prjóna- kona og prjónaði öll árin sín mjög margar fallegar flíkur á ættingja sína, afkomendur og vini. Við viljum þakka einstaklega góða umönnun því góða fólki á Hrafnistu í Reykjavík, sem í 14 ár hlúði að og annaðist móður okkar af alhug og væntumþykju. Við minnumst með þakklæti ynd- islegra samverustunda móður okkar og systur hennar Guðrún- ar með prjóna í höndum árin sem þær áttu saman á Hrafnistu. Við viljum einnig þakka fyrir einstak- Ingveldur Guðmundsdóttir VINNINGASKRÁ 5. útdráttur 1. júní 2017 280 7778 17520 29177 40688 52144 63120 72329 327 7838 17666 29787 40769 52715 63214 72334 480 8064 18462 30028 40807 52985 63263 72735 544 8132 18469 30731 41378 52989 63347 72903 788 8296 18543 30922 41758 53182 63505 73252 972 8309 18913 31159 42071 53561 63511 73415 1026 8468 18935 31235 42851 53985 64163 73421 1029 8594 19314 31353 43277 54169 64531 73572 1434 9408 19890 32661 43520 54177 64674 73667 1523 9589 20328 33010 43739 54347 64780 73907 1559 9925 20586 33247 43989 55094 64938 74360 1573 10244 21045 33425 44010 55175 65212 74779 1582 10281 21327 33572 44940 55191 65513 75331 1692 10299 21662 34006 45208 55677 65589 75339 1812 10347 21929 34217 46253 55694 66378 76136 2112 10629 22373 34342 46631 55964 66409 76181 2646 10668 22411 34702 46987 57000 67215 76500 2735 10699 22962 34764 47087 57136 67326 77220 3207 11367 22996 34879 47662 57969 67403 77384 3218 11494 23117 34919 47675 57997 68227 77400 3257 11628 23671 35275 47697 59080 68312 77764 3463 11650 23772 36113 47944 59211 68599 77820 3823 12260 23861 36170 48120 59509 68619 77856 4025 12754 24103 36692 48359 59839 68704 78135 4334 13753 24321 37098 48509 60005 69303 78237 4455 13848 24792 37149 48894 60376 70398 78677 5476 14061 24901 37532 48991 60994 70427 79047 5502 14122 25234 38112 50007 61250 70574 79102 5995 14514 25597 38181 50588 61733 71090 79795 6190 15573 25935 38337 50625 61849 71153 79843 6345 15705 25985 38405 50988 61990 71165 79847 6845 15984 26029 38661 51118 62683 71328 6957 16103 26776 39163 51145 62724 71351 7109 16782 26942 39507 51496 62777 71587 7201 17066 27512 39578 51924 62835 71787 7249 17464 27659 39795 51950 62918 72082 7629 17505 28727 40092 51986 63009 72148 715 13922 26206 34465 45499 50004 59453 67204 869 14989 26810 35147 45551 52051 59523 67867 3202 16457 30164 35293 45764 52764 61007 67951 4164 16644 30635 35740 45794 53416 61174 68132 4394 17158 31126 36298 46813 53730 61847 69002 5330 19177 31499 37751 46908 55411 62206 69051 6677 19692 31866 39560 47520 56083 62420 70032 8888 19809 32424 40420 48123 56166 62960 73740 9375 22052 33152 40888 48422 56390 63455 76410 9692 22443 33884 41901 48926 56409 65196 9766 25126 33974 41976 48962 56619 66200 10437 25143 34144 42357 49392 57155 66976 13340 25299 34374 42692 49616 58928 67032 Næstu útdrættir fara fram 8., 15., 22 & 29 júní 2017 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 34726 40674 41474 58043 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 1145 10873 30069 49284 62670 67281 1531 12827 30209 54279 64500 71357 2090 16055 43632 56641 64883 76203 3476 23295 43912 60398 65758 78995 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 2 6 1 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.