Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 32

Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Við erum búin að bóka hóp af listamönnum svo það verður mikið húllumhæ í hlöðunni okkar í sum- ar,“ segir Svavar Eysteinsson, bet- ur þekktur sem Prins Póló, um sumarið sem fram undan er á Karlsstöðum í Berufirði. Þar rekur hann ásamt Berglindi Häsler gisti- heimili, matstofu, lífræna grænmet- isrækt og menningarstarfsemi und- ir merkinu Havarí. Laugardaginn 3. júní ætla þau hjónin að setja listahátíðina Sumar í Havarí og hefst hún með mynd- listarsýningu með verkum Söru Riel, en sýningin mun standa fram á haust. „Við höfum ekki sýnt myndlist á veggjum þessa rýmis áður, en markmiðið var alltaf að blanda saman tónlist og myndlist. Þetta er alltaf að vinda upp á sig og okkur langar að hafa þessa hlöðu sem vettvang fyrir alls konar listir og tilraunagleði,“ segir Svav- ar. Boltinn rúllar Í kjölfar opnunarinnar ætlar tón- listarmaðurinn President Bongó að vera með tónleika. „Ég er ekki al- mennilega búinn að fá á hreint hvað hann ætlar að gera. Hann er náttúrulega múltítalent og fer óhefðbundnar leiðir í framkomu. Ég bíð spenntur eftir að fá hann á svæðið,“ segir Svavar um President Bongó, en ljóst er að hann mun koma öllum á óvart á laugardags- kvöld. Að kvöldi hvítasunnu er það svo rokkhljómsveitin Dimma sem ætlar að stíga á svið í hlöðunni hjá Svav- ari og Berglindi. „Við erum mjög spennt að fá svolítið gott rokk í kofann,“ segir hann og að boltinn rúlli svo áfram. „KK ætlar að heimsækja okkur daginn fyrir þjóðhátíð, 16. júní, og vera með tónleika. Lay Low og FM Belfast koma þar á eftir, tveimur vikum seinna, en við lögðum upp með að vera með tónleika aðra hverja helgi í sumar. Reyndar er búið að bætast í hópinn svo þetta er orðið aðeins þéttara,“ segir Svavar. Meðal þeirra sem koma fram seinna í sumar eru Mugison, Lára Rúnars, Valdimar Guðmundsson og Moses Hightower. Elektróník og metall „Við gíruðum þessa hlöðu upp í að vera alvöru tónleikastaður og ég held að endurhönnunin hafi tekist vel,“ segir Svavar, sem hlakkar til að sjá hvernig hljóðið kemur út um helgina bæði í góðri elektróník og metal daginn eftir. Fyrr á árinu var veginum við Berufjarðarbotninn lokað af mót- mælendum. Svavar kveður íbúa vera búna að leggja mótmæla- spjöldin á hilluna í bili því búið sé að bjóða út framkvæmdirnar á veg- inum og því ættu áhugasamir vel að komast leiðar sinnar á tónleik- ana í Havarí í sumar. „Nú erum við bara að bíða eftir almennilegum ljósleiðara til að geta útvarpað snilldinni hérna út um all- an heim,“ segir Svavar að lokum. Ljósmynd/Saga Sig Einbeitt Myndlistarkonan Sara Riel vinnur í verkum sínum fyrir Havarí. Vettvangur fyrir alls konar listir og tilraunastarfsemi  Hátíðin Sumar í Havarí sett Hross í oss Bíó Paradís 20.00 Heima Bíó Paradís 18.00 Goonies Bíó Paradís 20.00 Paterson Morgunblaðið bbbbb Metacritic 90/100 IMDb 7,4/10 Bíó Paradís 22.15 Hidden Figures Saga kvennana á bak við eitt af mikilvægustu afrekum mannkynssögunnar. Metacritic 74/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 17.30 Ég man þig 16 Ungt fólk sem er að gera upp hús á Hesteyri um miðj- an vetur fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,7/10 Laugarásbíó 20.00, 22.20 Smárabíó 17.00, 17.30, 19.30, 20.00, 22.30 Háskólabíó 18.00, 20.30, 21.10 Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00 Guardians of the Galaxy Vol. 2 12 Útverðir alheimsins halda áfram að ferðast um alheim- inn. Þau þurfa að halda hóp- inn og leysa ráðgátuna um foreldra Peter Quill. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 66/100 IMDb 8,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.15, 20.00, 22.55 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.50 King Arthur: Legend of the Sword 12 Hinn ungi Arthur er á hlaup- um eftir götum Lund- únaborgar Metacritic40/100 IMDb7,1/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 22.30 Alien: Covenant 16 Áhöfnin á Covenant geim- skipinu uppgötvar áður óþekkta paradís. Fyrr en var- ir komast meðlimir hennar að því að hér er í raun og veru mjög dimm og drunga- leg veröld þar sem hinn vél- ræni David hefur komið sér fyrir. Metacritic 65/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 19.50, 22.30 Háskólabíó 18.00, 20.50 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.10 Snatched 12 Þegar kærastinn Emily sparkar henni ákveður hún að fá varkára móður sína með sér í frí til Ekvador. Metacritic 47/100 IMDb 2,1/10 Smárabíó 17.40 Háskólabíó 18.10, 21.00 Borgarbíó Akureyri 22.20 Spark: A Space Tail Apinn Spark og vinir hans Chunk og Vix ætla sér að ná aftur tökum á plánetunni Bana - Ríki sem hefur verið hertekið af illmenninu Zhong. Metacritic 22/100 IMDb 5,2/10 Sambíóin Álfabakka 18.00 Heiða Hjartnæm kvikmynd um Heiðu, sem býr hjá afa sín- um í Svissnesku Ölpunum. IMDb 7,4/10 Laugarásbíó 17.40 Smárabíó 15.15 Borgarbíó Akureyri 17.50 Stubbur stjóri Sjö ára drengur verður af- brýðisamur út í ofvitann, litla bróður sinn. Metacritic 50/100 IMDb 6,5/10 Laugarásbíó 15.50, 18.00 Smárabíó 15.10 Háskólabíó 17.50 Hjartasteinn Örlagarík þroskasaga sem fjallar um sterka vináttu tveggja drengja. Morgunblaðið bbbbm IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 22.00 Everybody Wants Some!! Bíó Paradís 20.00 Knight of Cups Bíó Paradís 17.30 Wonder Woman Herkonan Diana, prinsessa Amazonanna, yfirgefur heimili sitt í leit að sínum réttu örlög- um og uppgötvar krafta sína. Metacritic 79/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 20.00, 22.55 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.50, 22.40 Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.20, 22.15 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.55 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.55 Jack Sparrow skipstjóri á á brattann að sækja enn á ný þegar illvígir draugar, undir stjórn erkióvinar hans Salazar skipstjóra, sleppa úr þríhyrningi djöfulsins, ákveðnir í að drepa hvern einasta sjóræningja á sjó ... þar á með- al hann. Metacritic 47/100 IMDb 8,5/10 Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.40 Sambíóin Álfabakka 17.00, 17.15, 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.50, 22.30 Sambíóin Kringlunni 16.30, 19.15, 22.00 Sambíóin Akureyri 17.15, 22.30 Sambíóin Keflavík 17.15, 22.30 Pirates of the Caribbean: Salazar’s Revenge 12 Baywatch Mitch Buchannon, sem lendir upp á kant við nýliðann Matt Brody. Þeir neyðast þó til að starfa saman. Metacritic 37/100 IMDb 5,6/10 Laugarásbíó 20.00, 22.30 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00 Smárabíó 12.00, 17.15, 19.50, 22.00, 22.15 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.