Morgunblaðið - 02.06.2017, Page 36
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 153. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. „Ósannindi og grófur rógur“
2. Mér fannst ekki vera neitt að...
3. „Hver dagur með honum er ævintýri“
4. Jim Carrey fer fyrir rétt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ljótu hálfvitarnir halda tónleika á
Rosenberg við Klapparstíg í kvöld og
annað kvöld kl. 22 og verða þeir með
örlítið nýstárlegu sniði. Í tilkynningu
frá hljómsveitinni segir að hörðustu
aðdáendur viti vanalega við hverju
megi búast á tónleikum hennar, þ.e.
hæfilegri blöndu af þekktustu smell-
um, minna þekktum smellum og
dassi af algerlega óþekktum ekki-
smellum sem sé römmuð inn með
ábyrgðarlausum gamanmálum.
Aðdáendur viti hins vegar ekki að á
bak við hvern einasta lagalista séu
harðvítugar rökræður og á köflum
blóðugar illdeilur um hvaða lög skuli
spila. Á tónleikunum í kvöld og annað
kvöld verður breyting þar á, því hver
hálfviti velur tvö lög, algerlega eftir
eigin smekk og samvisku.
Morgunblaðið/Golli
Hver hálfviti velur
tvö lög á efnisskrá
Norska þjóðlagasveitin Lýran úr
norðri, Lyra fra nord á norsku, flytur
eigið efni í tali og tónum um Auði
djúpúðgu og langferð hennar til Ís-
lands í Hannesarholti í kvöld kl. 20.
Auk söngs og frásagnar er leikið á
tvær lýrur sem byggðar eru á æva-
fornum fyrirmyndum. „Tónlistin leit-
ast við að dýpka skilning á víkinga-
tímanum í gegnum ljóð og lag,“ segir
m.a. um viðburðinn í tilkynningu.
Tónleikarnir í Hannesarholti spanni
helstu atriði úr ævi Auðar
djúpúðgu, eins og sagt
sé frá henni í Lax-
dæla sögu. Tone
Holte syngur fyrir
munn Auðar og
skrifaði einnig
söguna í
kringum
tónlistina.
Lýra úr norðri í
Hannesarholti
Á laugardag Austlæg átt, 5-13 m/s, hvassast við norður- og suð-
urströndina. Dálítil rigning eða skúrir og hiti 6 til 15 stig, hlýjast
vestanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir enn frekar í dag, en strekkings norð-
austanátt áfram norðvestan til og á annesjum norðaustan til.
Áfram væta í flestum landshlutum. Hiti 6 til 14 stig.
VEÐUR
Frjálsíþróttafólkið bætti
þrennum gullverðlaunum í
sarpinn fyrir Ísland á Smá-
þjóðaleikunum í San Marínó
í gær. Arna Stefanía Guð-
mundsdóttir vann í 400
metra grindahlaupi en
þurfti læknisaðstoð í kjöl-
farið. Guðni Valur
Guðnason vann kringlu-
kastskeppnina en þarf
að rétta af „kengbeygl-
aða“ kringlu sína eftir
óvenjulegt kast. »3
Á ýmsu gekk í
frjálsum íþróttum
Símamótið, fjórða stigamót Eim-
skipsmótaraðarinnar í golfi, hefst á
Hamarsvelli í Borgarnesi í dag og
stendur yfir fram á sunnudag. Alls
eru 80 keppendur skráðir, en Ragn-
hildur Kristinsdóttir, GR, og Kristján
Þór Einarsson, GM, eru efst á stiga-
lista mótaraðarinnar. Þau, eins og
fleiri kylfingar, verða í eldlínunni í
Borgarnesi næstu þrjá daga. »4
Kylfingar reyna með
sér í Borgarnesi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
„Það er spennandi að komast í eitt-
hvað nýtt,“ sagði Arna Sif Pálsdóttir,
landsliðskona í handknattleik, sem
hefur skrifað undir tveggja ára samn-
ing við ungverska úrvalsdeildarliðið
Debreceni DVSC.
Hún flytur til Ungverja-
lands í sumar eftir
tveggja ára veru hjá
franska liðinu
Nice á frönsku
Rivíerunni. »1
Flytur frá Rivíerunni til
Ungverjalands í sumar
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Elías Sveinsson er einn sigursælasti
frjálsíþróttamaður landsins, en fyrir
skömmu uppgötvaði hann nýja hlið á
sér og málar nú myndir í gríð og erg
eins og enginn sé morgundagurinn.
„Það halda mér engin bönd,“ segir
hann.
Fyrir nokkrum mánuðum greindist
Elías með krabbamein í blöðruháls-
kirtli. Hann segir að læknum hafi tek-
ist að fjarlægja meinið og hann sé
kominn á fullt í húsasmíðina. Eftir
meðferðina hafi hann byrjað að venja
komur sínar í Ljósið, endurhæfingar-
og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem
hefur fengið krabbamein og aðstand-
endur þess, og farið á myndlistar-
námskeið hjá Ingibjörgu P. Guð-
mundsdóttur myndlistarkennara.
„Ég er húsasmiður og hef bara málað
þök, en þegar ég byrjaði á námskeið-
inu reyndi ég fyrst fyrir mér með
tússpenna. „Af hverju prófarðu ekki
olíulitina?“ spurði Ingibjörg mig og
það var eins og við manninn mælt, lit-
irnir féllu við mig eins og flís við rass.
Ég var óstöðvandi og Ingibjörg hafði
á orði að það þyrfti að setja kvóta á
mig og jafnvel handbremsu.“
Keppnismaður
Elías er óstöðvandi, eins og í bolt-
anum á árum áður og frjálsum í yfir
hálfa öld. „Ég hef unnið samtals um
200 Íslandsmeistaratitla í öllum
flokkum í frjálsum,“ segir Elías sem
keppti á Ólympíuleikunum í Montreal
1976 og vakti athygli í hástökki í tug-
þrautarkeppninni. „Ég stökk 1,94 og
sigraði í mínum riðli en Daley
Thompson, einn fremsti frjáls-
íþróttamaður allra tíma, fór yfir 1,91,“
rifjar Elías upp. „Þetta afrek hefur
ekki verið í hávegum haft í fjöl-
miðlum.“
Elías segist ekki hafa þróað með
sér ákveðinn stíl heldur komi verkin
af sjálfu sér í mörgum stefnum. „Ég
var látinn kópíera mynd eftir Nínu og
þá var haft á orði að mín mynd væri
betri. Það hafði aldrei hvarflað að
mér að mála og hvað þá að ég gæti
málað fjall, en nú koma myndirnar á
færibandi og það er eins og ég hafi
aldrei gert annað.“
Rúnar Sveinsson, bróðir Elíasar,
byrjaði snemma að teikna en Elías
segist aldrei hafa skilið hvernig hann
fór að þessu. Listin hafi ekki kviknað í
sér fyrr en á námskeiðinu. „Það er
ekki mitt að túlka verkin, ég bara
teikna og bý til myndina og aðrir spá
síðan í spilin. Þá hefur margt furðu-
legt komið í ljós.“
Krabbameinið er ofarlega í huga
Elíasar og hann hvetur fólk til þess að
vera á varðbergi. „Það eru margir
með krabbamein án þess að vita af
því og ég fór í skoðun vegna þess að
ég var hvattur til þess. Ef ég hefði
ekki látið undan gæti ég verið dauður,
en nú er ég ekki bara laus við þennan
fjanda heldur kominn í hóp með list-
málurum.“
Þarf kvóta og handbremsu
Íþróttakappinn
sá ljósið í Ljósinu
og málar af kappi
Morgunblaðið/Hanna
Ljósið Elías Sveinsson, frjálsíþróttakappi og listmálari, með nokkur verka sinna á námskeiðinu í gær.
Sigrar Elías er margverðlaunaður og var keppandi nr. 1003 á ÓL 1976.