Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Blaðsíða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.6. 2017
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Mikið sem ég naut mín á dögunum á ferðalagi um Suður-Þýskaland. Þessi endalausa Alpafegurð og þungi matur semgerir mann saddan í sólarhring, hiti, kýr og kláfar. Ég hafði
sérstaklega hlakkað til að æfa mig í þýskunni. Sýna Bæjurum listir mín-
ar í móðurmáli þeirra. Enda ekkert nema lítt-talandi-á-ensku Þjóðverjar
á þessum slóðum svo maður varð að bjarga sér. Ég sá þetta sem einstakt
tækifæri til að bara halla mér aftur, súpa af rauðvíni og segja þjóninum
að þrátt fyrir að þýskan mín væri svolítið ryðguð ætlaði ég að prófa.
Koma svo á óvart og njóta aðdáun-
ar fyrir að geta pantað mér marg-
slungna rétti af flóknum matseðli á
ljómandi þýsku.
Þegar eitthvað var liðið á ferð-
ina og ég var orðin sérstaklega
örugg með mig spurði mamma mig
þar sem við vorum staddar í fata-
verslun í München; „Hvað ertu
eiginlega að segja?“ Ég var of
upptekin til að svara, var að reyna
að ná sambandi við afgreiðslu-
stúlku; „Afsakið, afsakið,“ kallaði
ég. „Af hverju ertu að segja að þú
sért saklaus?“ spurði mamma.
„Saklaus, saklaus“ var það sem
tungumálafrömuðurinn sjálfsánægði var að kalla í miðri H&M versl-
uninni. „Entschuldigung“ (afsakið) hafði á þeim 17 árum sem voru liðin
frá því ég hafði síðast dvalið í Þýskalandi orðið að „Unschuldig“ (sak-
laus).
Síðastliðnar tvær vikur hafði ég á hinum og þessum stöðum lýst því yf-
ir stundarhátt, að fyrra bragði, að ég væri saklaus. Saklaus á veit-
ingastöðum, saklaus í hótelanddyrinu, saklaus í verslunum. Eins og búð-
arþjófur í bata eða jafnvel búðarþjófur með samviskubit, nýbúinn að
stela, í örvæntingu. Ég skildi núna hlátur afgreiðslukonunnar í ísbúðinni
sem ég fór alltaf í. Þetta þaggaði nú ekkert lengi niður í mér. Hélt bara
áfram að gera mitt besta. Spjalla og svara eftir bestu getu. Gekk bara
vel þrátt fyrir smá rugl hér og þar. „Er kirkjan opin?“ spurði eldri mað-
ur mig þar sem ég stóð við salerni fyrir framan eina bændakirkjuna og
beið eftir að komast að. „Ég veit það ekki, ég er klósett.“
Thinkstock
Saklaus, saklaus!
Pistill
Júlía Margrét
Alexandersdóttir
julia@mbl.is
’Er kirkjan opin?“spurði eldri maðurmig þar sem ég stóð viðsalerni fyrir framan eina
bændakirkjuna og beið eft-
ir að komast að. „Ég veit
það ekki, ég er klósett.“
Tómas Örn Víðisson
Nei, það er ekki gott fyrir neinn
nema þá.
SPURNING
DAGSINS
Myndir þú
leyfa ferða-
mönnum
að gista í
garðinum
þínum?
Júlía Björnsdóttir
Nei, ég myndi ekki vilja fá blá-
ókunnugt fólk í garðinn minn.
Morgunblaðið/Pétur Magnússon
Páll Guðnason
Nei, það held ég nú varla. Mér finnst
það ekki sniðugt.
Berglind Bergmann
Já, við fyrstu hugsun er svarið já.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
GUNNAR INGI VALGEIRSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Bjóða upp á humar-
súpu í garðinum
Hver var kveikjan að Humarhátíðinni?
Upphaf Humarhátíðar á Hornafirði má rekja til frum-
kvæðis einstaklinga og fyrirtækja sem vildu að haldin
yrði árleg bæjarhátíð á Hornafirði fyrir Hornfirðinga,
brottflutta Hornfirðinga og gesti. Hátíðin var fyrst hald-
in árið 1993 og Sveitarfélagið Hornafjörður sá um fram-
kvæmd hátíðarinnar fyrstu árin en síðar tóku fé-
lagasamtök við og hafa þau með virkri þátttöku verslana,
veitingastaða og fyrirtækja á Hornafirði staðið að hátíð-
inni. Hátíðin er haldin undir merkjum hum-
ars enda hefur Höfn verið þekkt fyrir
veiðar og vinnslu á humri. Hátíðin
hefur skapað sér sess í bæj-
arhátíðum landsins og íbúar taka
þátt með því að skreyta bæinn með
appelsínugulum skreytingum
og sumir hafa tekið
upp á að bjóða upp
á humarsúpu í
garðinum sín-
um. Reynt er
að hafa dagskrá við allra hæfi, félagasamtök, íbúar og
fyrirtæki eru hvött til að taka þátt og vera með viðburði á
Humarhátíð.
Hverju mega gestir búast við á
hátíðinni í ár?
Góðri fjölskylduskemmtun í fallegu umhverfi. Spáin er
góð um helgina og enginn verður svikinn af því að heim-
sækja Hornafjörð. Höfn á 120 ára afmæli á þessu ári og
Humarhátíðin er haldin í 25. skipti.
Þú átt einnig að baki langan knatt-
spyrnuferil. Hvert er eftirminnilegasta
augnarblikið á ferlinum?
Augnablikin eru mörg og það er erfitt að velja
eitt. Það hafa verið nokkrir úrslitaleikir þegar
við vorum í neðstu deild sem voru skemmtilegir
og nokkrir enduðu í vítaspyrnukeppni
Einn stendur uppúr. Við vorum að spila á móti Sigl-
firðingum og fyrri leikurinn var fyrir norðan í skíta-
kulda og við töpuðum honum 3-0. Þremur dögum
seinna mættumst við í Hornafirði í brakandi
blíðu og skoruðum 3 fyrstu mörkin svo staðan
var 3-3 í heildina. Á síðustu mínútu vinnum við
boltann eftir hornspyrnu og Hermann Stef-
ánsson vippar yfir varnarmann Siglfirðinga
sem ver hann með hendinni og fær beint rautt
en sendir leikinn í framlengingu. Við unnum
framlenginguna 3-1 og komumst upp um deild.
Úrslitaleikir eru alltaf skemmtilegir.
Áttu þér uppáhalds humar-
uppskrift?
Ég sker humarinn í tvennt langsum, krydda
með hvítlauk og sítrónusalti, steiki á pönnu og
helli rjóma yfir. Algjört sælgæti.
Hvað er framundan hjá þér?
Ég starfa sem forstöðumaður íþróttamann-
virkja í Hornafirði. Við erum með metnaðar-
fulla sýn á uppbyggingu sem er að fara í
gang, við erum nú þegar með flott íþrótta-
mannvirki, nýja sundlaug, glæsilegan
knattspyrnuvöll með hlaupabraut og fjöl-
nota íþróttahöll með gervigrasi sem er opin
allan ársins hring. Ég hef fullan hug að taka
þátt í áframhaldandi uppbyggingu með íbúum
sveitafélagsins. Nú fer ég að hætta í keppnisíþróttum
eftir 34 ár í meistaraflokki og get farið að snúa mér að
fjölskyldunni um helgar.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon
Gunnar Ingi Valgeirsson er verkefnastjóri Humarhátíð-
arinnar á Höfn sem fram fer um helgina, ásamt því að
vera leikjahæsti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu.