Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.6. 2017
’
Mér finnst sorglegast að fólk hafi ekki haft kjark
til að skipta um skoðun.
Margeir Vilhjálmsson, stjórnarmaður í Golfklúbbi Reykjavíkur
INNLENT
PÉTUR MAGNÚSSON
petur@mbl.is
Töluverð breyting hefur veriðgerð á fyrirkomulagi KPMG-bikarsins eða Íslandsmótsins
í holukeppni sem fer fram í Vest-
mannaeyjum um helgina. Í staðinn
fyrir að keppt verði á 18 holu velli
eins og vaninn er hefur Golfsamband
Íslands (GSÍ) ákveðið að í ár verði
holurnar aðeins 13 talsins.
„Þetta verður í fyrsta sinn, svo
vitað sé, sem landskeppni rótgróinn-
ar golfþjóðar fer fram á velli með
færri en 18 holur,“
segir í tilkynningu
GSÍ.
„Ástæðuna [fyrir
breytingunni] má
rekja til umræðu
innan golf-
sambandsins um
sveigjanlegri
möguleika fyrir
kylfinga og golfvallareigendur,“ seg-
ir Haukur Örn Birgisson, forseti
GSÍ, í samtali við blaðamann Sunnu-
dagsblaðsins. „Í vor var reglugerð
breytt sem afnam kröfu til að mót á
vegum GSÍ yrðu að fara fram á 18
holu velli.“
Með Íslandsmótinu í holukeppni
veittist tækifæri til að setja þessa
reglugerð í framkvæmd. „Nokkrar
brautir í Vestmannaeyjum komu illa
út úr vetrinum svo við urðum að
bregðast við aðstæðum,“ segir
Haukur Örn.
Vilja stytta leiktíma
og lækka kostnað
Golf þykir bæði dýr og tímafrek
íþrótt. Einn golfhringur getur tekið
meira en fjórar klukkustundir og
golfvellir geta verið allt að 600.000
Umdeild
breyting á
Íslandsmóti
Íslendingar verða fyrsta rótgróna golfþjóðin til að
halda landsmót á 13 holu golfvelli. Formaður Golf-
sambandsins segir breytinguna ekki neina umbylt-
ingu en stjórnarmaður í Golfklúbbi Reykjavíkur
kallar hana vanvirðingu við keppnisfólk.
Haukur Örn
Birgisson
Íslandsmótið í holukeppni
hófst í Vestmanneyjum á
föstudaginn og stendur
fram á sunnudag.
Ljósmynd/GSÍ
Heilsugæslan Höfða
hefur opnað
Heilsugæslan Höfða og Apóte
Bíldshöfða 9.
Heilsuborg og Domus Röntge
Enn er laust allt að 800 fm. ver