Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Síða 5
25.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5
fermetrar að stærð. Með því að
bjóða upp möguleikann á 13 holu
mótum gefst kylfingum svigrúm til
að spila styttri golfhringi ásamt því
að minna land þyrfti til að halda úti
keppnisgolfvelli, svo kostnaður við
viðhald valla, og að sama skapi
spilagjald, gæti lækkað.
Vanvirðing gagnvart
keppnisfólki
„Mér finnst þetta vera mesta van-
virðing sem keppnisfólki hefur ver-
ið sýnd í golfsögunni,“ segir Mar-
geir Vilhjálmsson, stjórnarmaður í
Golfklúbbi Reykjavíkur, í samtali
við blaðamann. „Það að stíga fram
og byrja þetta á Íslandsmóti er
bara fáránlegt, ég á ekkert annað
orð yfir þetta. Mér finnst sorgleg-
ast að fólk hafi ekki haft kjark til að
skipta um skoðun,“ segir Margeir,
sem birti harðorðan pistil um málið
á síðunni kylfingur.is.
„Það er ekki rétt að þetta verði
mikil umbylting,“ segir Haukur
Örn. „Það verður ekki hægt að gera
þetta á öðrum mótum á Eimskips-
mótaröðinni þar sem keppt er í
höggleik. Holukeppni er það eina
sem dugar.“
Allir spila við sömu
aðstæður
„Það munu allir spila við sömu að-
stæður og ef fólk fer að pirra sig á
þessari breytingu á það ekkert eftir
að ganga upp hjá þeim,“ segir Gísli
Sveinbergsson, núverandi Íslands-
meistari í holukeppni, en Gísli er
ekki meðal keppenda vegna þátt-
töku sinnar í Opna breska áhuga-
mannamótinu í golfi.
Raghildur Kristinsdóttir, stiga-
meistari kvenna árið 2016, tekur í
svipaðan streng. „Breytingar geta
verið góðar og slæmar, við þurfum
bara að einbeita okkur að mótinu og
vona að allt gangi vel.“ Ragnhildur
er á meðal keppenda um helgina en
aðeins 32 stigahæstu kylfingarnir í
karlaflokki og 24 stigahæstu kylfing-
arnir í kvennaflokki fá þáttökurétt á
mótinu.
Úrslit Íslandsmótsins í holu-
keppni fara fram sunnudaginn 25.
júní.
Golfvöllurinn í Vestmanneyjum
er af mörgum talinn einn
fallegasti golfvöllur landsins.
Ljósmynd/Golfklúbbur Vestmanneyja
Íslandsmótið í holukeppni er
annað tveggja Íslandsmóta í
golfi sem haldin eru ár
hvert. Þetta verður í 30.
skipti sem mótið verður
haldið, en það var haldið í
fyrsta skipti árið 1988. Á
síðasta móti, árið 2016,
stóðu Gísli Sveinbergsson úr
Golfklúbbinum Keili og
Berglind Björnsdóttir úr
Golfklúbbi Reykjavíkur uppi
sem sigurvegarar.
Hitt Íslandsmótið, Íslands-
mótið í höggleik, verður
haldið á Hvaleyrarvelli í
Hafnarfirði dagana 20.-23.
júlí.
Gísli Sveinbergsson hreppti
Íslandsmeistaratitilinn í holu-
keppni í fyrra.
Ljósmynd/GSÍ
Íslandsmótin
í golfi
www.heild.issími 568 6787fyrirspurn@heild.is
HEILD
fasteignafélag
Bíldshöfðinn liggur sérstaklega vel að helstu samgönguæðum. Samkvæmt
vinningstillögu að rammaskipulagi rís íbúðabyggð fyrir 10 – 15.000 manns
á Ártúnshöfða á næstu árum og liggur Bíldshöfði við fyrirhugað byggingarsvæði.
ekarinn hafa hafið starfsemi í
n hefja starfsemi í sumar.
rslunarrými á neðri hæð hússins.
Heilsugæslan Höfða, Heilsuborg og Domus Röntgen hafa leigt efri hæðina á
Bíldshöfða 9. Að auki verður Apótekarinn á neðri hæðinni. Áætlað er að 1.500 -
2.000 viðskiptavinir sæki þjónustu þangað á hverjum degi.
Í dag er golf iðulega spilað á
18 holu golfvöllum en þannig
hefur það ekki alltaf verið.
Fyrir árið 1870 var
engin stöðluð lengd á
golfvöllum, t.d. var
Opna Breska Meist-
aramótið í golfi, sem
er eitt af stærstu
mótunum í golfheim-
inum í dag, spilað á 12 holu
golfvelli árið 1860. Það var
hinn sögufrægi R&A golf-
klúbbur í Skotlandi sem
stytti golfvöll sinn úr 22 hol-
um niður í 18 árið 1764 og
setti þar með viðmið sem
aðrir golfklúbbar byrjuðu að
fylgja rúmum 100 árum
seinna, þegar R&A
var orðinn einn
áhrifamesti golf-
klúbbur í heiminum.
Í dag fer R&A klúbb-
urinn, ásamt Golf-
sambandi Bandaríkj-
anna, með löggjafarvald
golfíþróttarinnar og gefa þau
út bókina The Rules of Golf,
sem öllum kylfingum og
golfsamböndum ber að fara
eftir
Hvers vegna 18 holur?