Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Side 8
KVIKMYNDIR Styles leikur í myndinni
Dunkirk, sem gerist í síðari heimsstyrjöld-
inni. Leikstjóri myndarinnar er Christoper
Nolan, sem er m.a. þekktur fyrir Batman
Begins og Inception.
Styles leikur breskan hermann og segir
Nolan í viðtali að hann hafi haft allt það
sem hann óskaði sér fyrir hlutverkið. Í
öðrum helstu hlutverkum eru Mark Ryl-
ance, Kenneth Branagh, Cillian Murphy og
Tom Hardy.
Fyrsta leikna kvikmynd Styles er því
aldeilis stjörnum prýdd, en hún verður
frumsýnd í júlí.
Leikur í
stríðsmynd
Styles sem
hermaður.
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.6. 2017
ÁSTIN Styles er í sambandi með matar-
bloggaranum Tess Ward, en þau opinberuðu
samband sitt í síðasta mánuði. Ward, sem er
27 ára, er þekktust fyrir uppskriftabókina The
Naked Diet, en í henni fagnar hún hreinu hrá-
efni. Hún er með bloggið The YES Chef og
hefur skrifað fyrir Fabulous-tímaritið, Grazia
á netinu og fleiri. Hún hefur líka unnið sem
ráðgjafi fyrir vörumerki á borð við Fortnum
and Mason, Itsu, Grey Goose og Kallo.
Ward hefur enn fremur stundað fyrir-
sætustörf og er á skrá hjá Models 1. Hún
stundar jóga og sparkbox til að halda sér í
formi. Ward og Styles kynntust í gegnum
sameiginlega vini og náðu fljótt saman, en þau
elska bæði tísku og góðan mat. Þau hafa farið
á nokkur stefnumót þegar Harry er í London
og hann hefur nú þegar kynnt hana fyrir góð-
um vinum sínum á borð við stílista sinn Lou
Teasdale. Ekki er vitað hvenær þau byrjuðu
saman en Ward hóf að fylgja Harry á Twitter
um miðjan febrúar. Styles og Ward í eins, eða mögulega sömu, Gucci-skyrtunni.
Ný kærasta
HARRY STYLES fæddist 1. febrúar árið 1994 og er því aðeins 23 ára þrátt fyr-
ir að hafa verið í sviðsljósinu árum saman. Hann ólst upp í Holmes Chapel í
Cheshire á Englandi. Þegar hann var barn hafði hann sérstaklega gaman af því
að syngja en þeir tónlistarmenn sem höfðu mest áhrif á hann voru Freddie
Mercury, Elvis Presley og Bítlarnir. Í grunnskóla söng hann í hljómsveitinni
White Eskimo, sem vann músíktilraunakeppni á svæðinu.
Hann tók þátt í hæfileikakeppni í sjónvarpi í The X Factor en komst ekki
áfram sem sólólistamaður. Hann var hins vegar fenginn til að stofna hljómsveit
ásamt fjórum öðrum keppendum; Niall Horan, Zayn Malik, Liam Payne og
Louis Tomlinson. Þetta var árið 2010 og þannig varð hljómsveitin One Direct-
ion til. One Direction vann ekki keppnina heldur lenti í þriðja sæti. Skömmu
eftir að það var ljóst var laginu „Forever Young“ lekið á netið, en lagið hefði
komið út ef sveitin hefði unnið. Fljótlega skrifaði hún undir plötusamning við
Simon Cowell.
Sveitin hefur sent frá sér fimm breiðskífur, Up All Night (2011), Take Me
Home (2012), Midnight Memories (2013), Four (2014), og Made in the A.M.
(2015). Hún hefur líka farið í tvö tónleikaferðalög um heiminn og unnið til
fjöldamargra verðlauna, þar á meðal fjögurra MTV-verðlauna og fimm Brit-
verðlauna. Enn fremur gerði Morgan Spurlock, sá sami og gerði Super Size
Me, tónleikamyndina One Direction: This Is Us um sveitina.
Samkvæmt Companies House á Styles eigur upp á sjö milljarða króna. Þá
eru með talin hús í eigu hans, en nýlega bættist þar við íbúð á Manhattan, og
tekjur sem hann hefur af því að koma fram auk hagnaðar af tónlist hans. Ásamt
hinum fjórum stofnfélögum sínum úr One Direction er Styles einn yngsti millj-
ónamæringurinn í tónlist. Þeir högnuðust verulega á því að selja hlutabréf í fé-
lagi sínu 1D Media, eða um 1,8 milljarða króna hver.
One Direction er sem stendur í skipulögðu hléi sem hófst í mars 2016 en einn
meðlimurinn, Zayn Malik, hefur sagt skilið við hana. Tilkynnt var í júní 2016 að
Styles hefði skrifað undir útgáfusamning við Columbia Records og 12. maí síð-
astliðinn kom síðan út fyrsta sólóplata hans, sem ber einfaldlega nafnið Harry
Styles. Fyrsta smáskífan af plötunni heitir „Sign of the Times“ og hefur notið
mikilla vinsælda.
Platan er ansi rokkuð, sem var ekki það sem fólk bjóst endilega við af Styles.
Blaðamaður Telegraph spurði tónlistarmanninn um þetta í nýju viðtali, hvort
það væri ekki áhætta að gera rokkplötu þegar flestir aðrir popptónlistarmenn
færu aðrar leiðir. „Þaðan koma áhrifavaldar mínir,“ sagði hann. „Mig langaði
að gera plötu sem ég vildi hlusta á. Það var eina leiðin sem ég þekkti til þess að
þurfa ekki að líta til baka og sjá eftir einhverju,“ sagði Harry, sem hugsaði um
hvað hann vildi sjálfur hlusta á en ekki hvernig hann stæðist samanburð við
annað sem er verið að spila á öldum ljósvakans. ingarun@mbl.is
Styles á leið í
nýja átt
AFP
’Nýja platan eransi rokkuð, sem varekki það sem fólk bjóstendilega við af Styles.
One Direction á árum áður.
Styles kom fram í Today-
þættinum á NBC að kynna
nýju sólóplötuna sína.
Harry Styles
er söngvari og
lagahöfundur.
SJÓNVARP Styles vakti mikla athygli
með því að mæta í sjónvarpsþátt
James Corden, The Late Late Show,
ekki aðeins einu sinni heldur staldraði
hann við alla vikuna. Hann tók þátt í
alls kyns leikjum og leiknum atriðum
með Corden. Ein áskorunin fólst í því
að drekka te á bak við plexígler og
reyna að forðast að blikka og hreyfa
sig á meðan ávöxtum var kastað á
glerið. Hann lék líka í öðru atriði með
Corden þar sem þeir léku lækna sem
brustu í söng og dans í miðri aðgerð.
Hámarkið var síðan þegar Styles tók
þátt í bílakarókíinu þekkta. Þeir sungu
m.a. saman dúettinn „Endless Love“
með Lionel Richie og Díönu Ross.
Í viku hjá
Corden
Styles og Corden brugðu á leik í bílakarókíinu.
Kæli- og frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666