Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Qupperneq 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Qupperneq 15
25.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 es. Það var þó einmitt reynsla frá þeim tíma sem kom þeim á endanum á kortið. Eftir að hafa lent í minniháttar árekstri ná- lægt heimili Alley fékk parið hugmynd að hand- riti sem þau sendu á alla tengiliði sína í brans- anum. Í kjölfarið kræktu þau í nýjan, metnaðarfullan umboðsmann. Sá fór í gegnum öll gömlu handritin þeirra og fiskaði eitt út, Olympus Has Fallen frá 2002. „Við eyddum fjórum mánuðum í að endur- skrifa það og svo seldist það,“ segir Katrín. „Og það áhugaverða er að ekkert af þessu hefði gerst, hefðum við ekki tekið starfinu hjá Kirstie Alley.“ Stolt af styrknum „Við vöknum full af þakklæti á hverjum degi. Það eru mikil forréttindi að vinna í þessum bransa en við lögðum líka á okkur þá vinnu sem þurfti til, blóðið, svitann og tárin.“ Katrín er löngu búin með appelsínið sitt og klakarnir eru bráðnaðir. Hinar ljóshærðu kon- urnar hafa yfirgefið svæðið fyrir margt löngu og í þeirra stað eru komnir ferðamenn, sem hengja anorakkana á stólbökin og góna forviða á mið- nætursólina út um gluggann. Aðrir gestir liggja letilega utan í stólum og sófum, sötrandi bjór eða rauðvín, en Katrín sit- ur enn teinrétt. Hún er með sjö stór kvik- myndaverkefni í bígerð en eins hyggjast þau hjónin reyna fyrir sér í sjónvarpi. Það virðist varla í eðli vinnuþjarksins að slaka á. „Mamma er mjög sterk kona og ég held að ég hafi erft mikið af því frá henni,“ segir hún íhug- ul. „Ég tel íslenskar konur almennt mjög sterk- ar og er stolt af því að vera íslensk kona af þeim sökum.“ Hún er svo sannarlega með íslenskan smekk. Auk appelsínsins og íslensks kóks er Katrín mikill lakkrísunnandi og kann vel að meta pip- aræðið sem gengið hefur yfir íslenskan lakkr- ísmarkað síðustu misseri. „Og snúða!“ segir hún æst. „Kobbi bróðir minn kallar mig Katrínu Snúð af því að um leið og ég kem út úr flugvélinni verð ég að fá snúð, og ekki með harða súkkulaðinu heldur þessa gamaldags með glassúr.“ Jakob kemur einmitt og sækir systur sína, sem er búin að eyða aðeins of löngum tíma með ókunnugum blaðamanni. Hún er ekki oft hér heima og það þarf að nýta hverja stund. Það er einmitt það fyrsta sem kemur upp í huga hennar þegar hún stígur út úr flugvélinni, jafnvel á undan snúðnum. „Ég vil bara fylla lungun af loftinu,“ segir hún. „Það er þessi yfirþyrmandi tilfinning: að vera komin heim.“ Katrín kveður með faðmlagi og Jakob réttir vinalega fram hramminn og kinkar kolli. Þau systkinin stíga út í sumarnóttina og anda inn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’ Við áttum svonaaugnablik þar sem viðstóðum í einu búrinu einndaginn, að gefa lemúrunum hennar Kirstie Alley ban- ana, og sögðum við hvort annað hvernig í [...] kom- umst við hingað? Katrín segir mikið skrifræði fylgja því að vera handrits- höfundur í Hollywood. Eft- ir að handriti er skilað gætu aðr- ir höfundar ver- ið fengnir til að- stoðar og verkið mótast bæði af þeirra hugmyndum sem og hug- myndum leikstjóra, vali á leikurum, tónlist o.s.frv. „Í myndinni okkar London Has Fallen skrifuðum við ekki múslima sem vondu kallana,“ segir Katrín. Raunar, segir hún, átti myndin hreint ekki að gerast í London heldur í Brussel og hryðju- verkamennirnir áttu að vera hvítir. Handritshöfundaparið hafði gaman af myndinni, enda hélt hún því innra byrði sem þau höfðu hannað, samræð- um og persónum, þó að uppruni þeirra og nöfn hafi tekið breytingum. „Við reynum að vera ekki of pólitísk af því að það er vinnan okkar að sjá all- ar hliðar á aðstæðum. Þegar við sköp- um kvikmynd eða sköpum hvað sem er erum við ekki að reyna að gefa ein- hvers konar yfirlýsingu, þetta eru ekki þess konar kvikmyndir,“ segir Katrín. „Allar kvikmyndir hafa sinn tilgang.“ Ráða lítið við breytingar Eftir allt sem á hefur gengið kemur kannski ekki á óvart að Katrín er örlítið örlagatrúar. Hún lýsir sjálfri sér sem andlega þenkjandi. Hún sér kraftaverk í sköpun nýs lífs og segir of margt gott fólk hafa yfirgefið þennan heim til þess að hún geti litið á dauðann sem enda- stöð. Hún er hins vegar ekki aðdáandi skipulagðra trúarbragða. „Trúarbrögð hafa, í gegnum söguna og jafnvel í samtímanum, verið rót allt of margs ills í þessum heimi. Ég efast líka um allt svo ég er ekki góður kandí- dat í hvers konar innrætingu,“ segir Katrín. Hún bendir á söguna um kon- una sem skar alltaf annan endann af steikinni áður en hún setti hana inn í ofn. „Loksins spyr eiginmaður hennar hana af hverju hún geri þetta og hún svarar: „Ég veit það ekki. Mamma gerði þetta alltaf svona.“ Þar sem hún er sjálf forvitin spyr hún móður sína af hverju hún hafi alltaf skorið annan end- ann af steikinni áður en hún eldaði hana og móðirin svarar: „Fatið var of lítið.““ Sker ekki endann af steikinni Hjónin skrifuðu The Expendables 3 með sjálfum Sylvester Stallone sem Katrín segir ávallt hafa komið fram við sig eins og jafningja. Katrín og eiginmaður hennar fara yfir málin með Harrison Ford við tökur á The Expendables 3 í Búlgaríu. Þau hjónin vinna saman að öllum sínum verkum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.