Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Síða 17
an dag. „Jökullinn var harður, það var frost en
glampandi sól eftir að hún kom upp. Færið var
þess vegna með því besta sem gerist og sólin
skein á okkur allan daginn. Gangan er um 25
kílómetrar og tveir kílómetrar í hækkun.“
Samkvæmt landafræðinni í gamla daga var
Hvannadalshnjúkur 2119 m hár en nýjustu
mælingar herma að hann sé nú 2110 metrar.
„Það þarf góða einbeitingu og gott úthald til
að menn mikli ekki fyrir sér þetta langa labb.
Þetta er þétt ganga og síðustu 250 metrana er
þetta þokkalegt klifur, til að komast upp á sjálf-
an hnjúkinn. Við vorum komin upp á topp
klukkan rúmlega 10 að morgni.
Umferðin var mikil þennan dag, margir hóp-
ar á ferð og góð stemning. Menn missa sig að-
eins þegar komið er upp á topp; sumir standa til
dæmis á haus! Ída byrjaði á því og ég þurfti að
sjálfsögðu að leika það eftir áður en haldið var
af stað niður á ný.“
Ragnar segir ferðina hafa gengið frábærlega
„þótt auðvitað sé maður þreyttur í skrokknum
eftir svona göngu. Það væri ósanngirni að viður-
kenna það ekki!“
En hvernig brást fólk við þegar það hitti ein-
fættan mann á toppi Hvannadalshnjúks? Aðrir
fjallagarpar hljóta að hafa sýnt einhver við-
brögð. „Já, ég fékk mikil viðbrögð. Sumir horfa
á mann en þora ekki að spyrja en aðrir eru
frakkari. Töluvert var spurt , sumir spurðu
mjög markvissra spurninga og einhverjir tóku
ofan!“
Hann er staðráðinn í að halda áfram. „Ég er
reyndar ekki búinn að ákveða næstu áskorun en
held mínu striki; fór á Esjuna í gær og fyrradag.
Það er bara hefðbundið hjá mér núorðið.“
Gervifóturinn sem Ragnar notaði á göngunni á
Hvannadalshjúk er næfurþunnur sem sjá má.
’Össur einn og sér leysir ekkivandamálin fyrir þá semlenda í svona aðstæðum, mað-urinn sjálfur og hugarfar hans er
aðalatriðið. Maður verður að
vinna rétt úr hlutunum, miklu
skiptir að finna eigin styrkleika
og vinna með hann
Brugðið var á leik þegar hæsta punkti Íslands var náð. Ragnar og Ída Braga Ómarsdóttir.
25.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17