Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Side 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Side 26
Skyrta frá Sunad gerð úr mjólkurpróteini. Ljósmynd/Sunad Fatahönnuðurinn Gabriela Hearst hefur verið að þróa nýtt efni í fatnað sem er meðhöndlað með safa úr aloe vera- plöntunni. Í staðinn fyrir að þvo efnið aftur og aftur til að mýkja flíkina, þá ber hún aloe vera á flíkina innan frá og verður hún þá þegar í stað mjúk. Hug- myndin er að þróa fataefni sem er raka- gefandi fyrir húðina og fer vel með hana. Hearst, líkt og margir aðrir fatahönn- uðir, hefur miklar áhyggjur af því að auk þess að vera slæm fyrir umhverfið þá hafi ýmis gerviefni í fatnaði slæm áhrif á húðina. „Húðin er stærsta líffærið. Fólk er mjög meðvitað um hvað það borðar og kaupir lífrænan mat, en erum við að hugsa um hvað við setjum á húðina okkar?“ segir Hearst í viðtali við Vogue. Hún þróaði því þetta nýja aloe vera- meðhöndlaða efni sem er bæði gott fyr- ir jörðina og húðina. Að hennar sögn er lína sem er væntanleg úr nýja efninu sjálfbær og nytsamleg lúxuslína. Hearst trúir því að efni sem gegna tvíþættu hlutverki séu framtíð sjálfbærrar tísku. Í fyrra byrjaði hún að fóðra vasa á jökk- um og kápum með sérstöku silfurefni sem á að vernda líffærin fyrir bylgjum úr símanum. Fleiri virðast ætla að feta sömu braut því hönnuðirnir Paloma Ca- nut og Ana Marroquín hafa boðað nýja línu frá merkinu Sunad síðar á árinu með fötum gerðum úr efni sem er gert úr 60% modal og 40% mjólkurpróteini. GABRIELA HEARST Nýtt efni á markað Fatahönnuðurinn Gabriela Hearst. AFP Það var vel tekið undir þegar Rick Ross steig á svið. Alexander Kristjánsson rakari að klippa Magnús Bjarka Guðmundsson. Regnjakki og sólgleraugu voru viðeigandi klæðnaður fyrir helgina. Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson með börnum sínum og vinkonu dóttur hans. Aron Can valdi sér hvíta dúnúlpu, hvít sólgler- augu og hvíta strigaskó. Sigrún Salka Hermannsdóttir og Viktoría Dögg Ragn- arsdóttir. Dísa, Sóllilja Baltasarsdóttir, Jóhann Kristófer (Joey Christ), Sturla Atlas og Logi Pedro. Secret Solstice er einn af há- punktum sumarsins, en þar kemur fólk saman í kringum sumarsólstöðurnar, klæðir sig upp og hlustar á góða tónlist. Ljósmyndir og texti: Nína Ingólfsdóttir nina@mbl.is Secret Solstice-tónlistarhátíðin var umsíðustu helgi. Mikill fjöldi var á há-tíðinni og margir tónlistarmenn komu fram. Veðrið var með ýmsu móti en bæði var gott veður og hellirigning. Við lit- um á götutískuna á hátíðinni, en margir voru með regnkápuna við höndina. Glimm- er var áberandi en það var gaman að sjá hvað allir klæddu sig mismunandi. Hátíðin heppnaðist vel í alla staði og var stemn- ingin frábær. Götutískan á Secret Solstice TÍSKA 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.6. 2017 Jeremy Meeks lét sig ekki vanta á tískupallana í vikunni þegar herratískan fyrir næsta ár var kynnt í Mílanó og París. Meeks vakti athygli þegar lögreglan í Kaliforníu birti mynd af honum á Facebook 2014 og voru fyrirsætuskrifstofur ekki lengi að fá hann til liðs við sig. Úr fangelsi á tískupallana

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.