Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Side 29
25.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Garðurinn Victoria Park í austurhluta
London er sérstaklega fallegur garð-
ur. Það er búið að eyða tólf milljón
pundum í endurnýjun hans á síðustu
árum og margt af því sem var þar
upprunalega, þegar garðurinn var
opnaður árið 1845, hefur verið byggt
upp á ný.
Þarna er að finna fleiri en eitt kaffi-
hús og líka leikvelli. Garðurinn hefur
unnið Verðlaun fólksins sem vinsæl-
asta græna svæðið árin 2012, 2014 og
2015 en enginn annar garður í Bret-
landi hefur unnið verðlaunin þrisvar.
Eitt af því skemmtilega við garðinn
er að hægt er að leigja bæði árabáta
og hjólabáta til að sigla um á fallegu
vatni í garðinum. Bátaleigan er opin
alla daga vikunnar frá kl. 11-17. Það er huggulegt að sigla á vatninu í góðu veðri.
Mynd/Regal Boat Hire
VICTORIA PARK
Hægt að fara í siglingu
Barinn The Water Poet við Folgate
Street nálægt Spitalfields-markaðnum er
skemmtilegur staður til þess að setjast
niður og slaka á yfir bjór og mat. Time
Out lýsir honum þannig að þarna mætist
Shoreditch og jakkafataklædda skrif-
stofufólkið úr nálæga fjármálahverfinu.
Hann lætur ekki mikið yfir sér utan frá
en er stór þegar inn er komið. Þetta er
bæði bar og veitingastaður og þarna er
líka hægt að spila billjard.
Rúsínan í pylsuendanum er hinsvegar
bakgarðurinn sem er stór með fallegum
gróðri. Þarna er eftirsótt að vera á
góðviðrisdögum og stundum mörg borð
pöntuð eftir vinnu þannig að stærri hópar
ættu að panta á undan sér ef ætlunin er að
sitja úti.
Gott að vita um staðinn er að hægt er
að gera afskaplega góð kaup þarna í há-
deginu og fá mat og bjór fyrir tíu pund á
milli kl. 12 og 15 mánudaga til föstudaga.
THE WATER POET
Barinn virkar ekki stór utan frá.
Morgunblaðið/Inga Rún
Skemmtilegt útisvæði
Í hliðargötunni Rufus Street út frá
Hoxton Square er að finna staðinn
The Breakfast Club. Þetta er
meðalstór og líflegur staður með
einstaklega góðri þjónustu. Þarna
er að sjálfsögðu hægt að panta
„flat white“ sem og aðra kaffi-
drykki.
Staðurinn er rómaður fyrir
pönnukökustafla sína og vöfflur en
þarna er líka hægt að fá ekta
enskan morgunverð, líka fyrir þá
sem borða ekki kjöt. Vel er hægt
að mæla með morgunverðar-
búrrító sem er borin fram ann-
aðhvort með chorizo-pulsu eða
steiktum sveppum.
Fyrir þá sem vilja eitthvað sætt
eru pönnukökur með saltri kara-
mellu, bönunum, rjóma og súkku-
laðisósu málið.
Búast má við því að þurfa að
fara í röð til að borða á staðnum,
að minnsta kosti fyrir hádegi um
helgar, en röðin gengur nokkuð
hratt og biðin er þess virði.
Fyrir þá sem til dæmis ákveða
að borða ekki morgunmat á hót-
elinu sínu er þessi staður alveg
kjörinn.
THE BREAKFAST CLUB
Morgunblaðið/Inga Rún
Morgunverður og meira
Þjónustan á
The Breakfast
Club er góð.
Spitalfields, elsti markaðurinn í
London, er nú opinn sjö daga vik-
unnar. Það er áhugaverður mark-
aður með vandaðari vörum en oft
gerist á mörkuðum af þessu tagi.
Á markaðnum er margt hand-
verksfólk og er til dæmis hægt að
kaupa handgerðar sápur, krem og
skartgripi. Þarna eru líka einstök
föt, innanhússmunir og fylgihlutir.
Markaðurinn er aldrei alveg eins
og líka misstór eftir dögum. Hvað
mest er þarna um að vera á
sunnudögum en þá verður þetta
svæði borgarinnar í raun að einu
stóru markaðssvæði þar sem
Brick Lane-markaðurinn er þarna
nálægt og hann er aðeins opinn á
sunnudögum. Á svæðinu eru
mörg kaffihús og veitingastaðir
þannig að engin hætta er á því að
maður verði svangur eða þyrstur.
SPITALFIELDS-MARKAÐURINN
Vel valið er inn á markaðinn.
Mynd/visitlondon.com
Vandaðar
vörur
REYKJANESBÆ
Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104
Full búð af
NÝJUMVÖRUM
Siemens - Adidas - Under Armour - Cintamani