Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Qupperneq 35
25.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Portúgalski ljósmyndarinn Pepe
Brix varpar, í nýrri bók, Líf-
æðinni – Lifeline, ljósi á samspil
náttúru, manns og tækni til sjós
og lands. Hann sýnir mannlífið
um borð í fiskiskipum og í
vinnslustöðvum og hyllir fólkið
sem færir aflann heim og vinnur
úr honum. Myndirnar eru tekn-
ar á Höfn í Hornafirði, í Þorláks-
höfn og um borð í skipum Skinneyjar-Þinganess. Bókin er
gefin út í tilefni af 70 ára afmæli fyrirtækisins.
Lífæðin til sjós og lands
Fátt veitir meiri
hugarró en að nostra
við að lita myndir og
uppgötva smáatriðin
sem þær hafa að
geyma, segir í til-
kynningu frá For-
laginu, en það hefur
gefið út bókina
Brjálæðislega ró-
andi. „Í þessari litabók má svo sannarlega finna margt sem
vekur umhugsun og er róandi – alveg brjálæðislega róandi.“
Brjálæðislega róandi
Teppaprjón geymir prjónaupp-
skriftir að litríkum og fallegum
teppum fyrir yngstu börnin. Tepp-
in eru afar fjölbreytt og hægt að
velja um fjölmörg munstur og
prjónaaðferðir. Uppskriftirnar
eru einfaldar og skýrar og henta
byrjendum jafnt sem lengra komn-
um. Guðrún S. Magnúsdóttir og
Þuríður Magnúsdóttir eru höf-
undar Teppaprjóns og er bókin afrakstur áralangs sam-
starfs þeirra systra.
Litríkt fyrir þau yngstu
BÓKSALA 14.-20. JÚNÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Talin afSara Blædel
2 Með lífið að veðiYeonmi Park
3 EftirlýsturLee Child
4
Teppaprjón
Þuríður Magnúsdóttir/
Guðrún S.Magnúsdóttir
5 BrestirFredrik Backman
6 Gestir utan úr geimnumÆvar Þór Benediktsson
7 Litla bakaríið við StrandgötuJenny Colgan
8 Independent PeopleHalldór Laxness
9 Sagas Of The IcelandersÝmsir höfundar
10 Morðið í GróttuStella Blómkvist
1 Gestir utan úr geimnumÆvar Þór Benediktsson
2 Kuggur 16 AfmælisgjöfSigrún Eldjárn
3 Linda og lundinnJenny Coulgan
4 Risasyrpa Glóandi gullWalt Disney
5 Óvættaför 27 KletturAdam Blade
6 Litli prinsinnAntoine de Saint-Exupéry
7 Blómagarðurinn BangsimonWalt Disney
8
Lilli klifurmús og hin
dýrin í Hálsaskógi
Thorbjörn Egner
9
Harry Potter og
viskusteinninn
J.K. Rowling
10
Íslandsbók barnanna
Margrét Tryggvadóttir/
Linda Ólafsdóttir
Allar bækur
Barnabækur
Ég hef verið að lesa tvenns konar
rit sem þó tengjast. Í vikunni leið-
sagði ég eldri borgurum um drjúg-
an hluta Suður-
Þingeyjarsýslu. Áður
fór ég ítarlega yfir
ýmiss konar bækur,
s.s. Árbækur Ferða-
félags Íslands, „Bú-
kollu“, ævisögur,
ljóðabækur og vegahandbækur.
Frásagnir af fólki og fyrirburðum í
bland við upplýsingar um fólks-
fjölda, náttúrufar og landslag eiga
greiða leið að eyrum
íslenskra ferða-
manna því forvitni
um fólk og staði er
okkur í blóð borin.
Ég undirbý mig
einnig fyrir Orkn-
eyjaferð í sumar með því að lesa
bók Þorgríms Gestssonar, Í kjölfar
jarla og konunga, sem fjallar um
fornsagnaslóðir
Orkneyja og Hjalt-
lands. Það er lífleg
og persónuleg bók
og í henni er m.a.
sannfærandi kenning
um það hvernig nafn
Kirkjuvogs (höfuðstaðar eyjanna)
breyttist í Kirkwall eða Kirkjuvegg.
Þorgrímur tengir ferðir sínar um
eyjarnar beint við Orkneyinga sögu
sem ég þarf endilega að lesa áður
en haldið verður af stað.
ÉG ER
AÐ LESA
Bragi Guð-
mundsson
Bragi er prófessor við kennara-
deild Háskólans á Akureyri.
Sóleyjarkvæði eftir Jóhannes úr
Kötlum kom fyrst út á bók árið
1952. Þetta er harmljóð í 25 hlut-
um um glatað sjálfstæði íslensku
þjóðarinnar og veika von um end-
urheimt þess. Síðar samdi Pétur
Pálsson tónlist við ljóðið sem var
frumflutt á Menningarviku her-
námsandstæðinga 1965. Upp frá
því hefur Sóleyjarkvæði verið eitt
af vinsælustu verkum Jóhannesar.
Skáldið vísar í ljóðinu jöfnum
höndum í íslenskan sagna- og ljóða-
arf og stjórnmálaviðburði á ár-
unum eftir stríð. Hér er ljóðið birt
með ítarlegum skýringum Árna
Björnssonar á þessum vísunum.
Þórður Helgason fjallar um mál og
stíl ljóðsins en Gunnar Guttorms-
son skrifar um tónsmiðinn Pétur
Pálsson og rekur sögu ljóðsins í
flutningi og á hljómplötum.
Bókinni fylgir diskur með Sól-
eyjarkvæði í upprunalegum flutningi
hóps hernámsandstæðinga en sú
upptaka hefur aldrei komið út áður.
65 FRÁ ÞVÍ SÓLEYJARKVÆÐI KOM ÚT
Sóley sólufegri aftur á bók
Jóhannes úr Kötlum
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Bókaðu
núna og
tryggðu þér
pláss
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . . kr. 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . kr. 74.500
1
Bókaðusnemma ogtryggðu þér pláss
Taktu bílinnmeð í ferðalagiðFæreyjar - Danmörk - Evrópa 2017
Færeyjar2 fullorðnir
með fólksbíl
Verð á mann frá34.500
Danmörk
2 fullorðnir
með fólksbíl
Verð á mann frá
74.500
570 8600 / 470 2808 · www.smyrilline.is
Mikið er bókað nú þegar með Norrænu á næsta ári. Því er mikilvægt fyrir þá sem ætla að ferðast
með Norrænu að bóka sig sem fyrst og tryggja sér pláss á meðan enn er laust pláss.
Aðeins25% núna,eftirstöðvarmánuði fyrirbrottför
Bæklingur 2017
Nýja bæklinginn okkar
er nú hægt að sækja á
heimasíðuna,
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Fjarðargötu 8 | 710 Seyðisfjörður | Sími: 4702808
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Taktu bílinn
með í ferðalagið
til Færeyja og Danmerkur 2017