Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Qupperneq 36
Paris Jackson þykir vera afar
lík Michael Jackson heitnum
í háttum og skapgerð.
AFP
Paris Jackson, sem fyrstu árævi sinnar bar grímu fyrirandlitinu opinberlega, hefur
ákveðið að leggja fyrir sig feril þar
sem andlit hennar er í fyrirrúmi;
fyrirsætustarfið.
Einkadóttir Michaels heitins
Jacksons er 19 ára gömul og hefur
þrátt fyrir ungan aldur upplifað
ótrúlegustu hluti, bæði áður og eftir
að faðir hennar lést.
Í vikunni birtist Paris á sinni
fyrstu Vogue-forsíðu, í ástralska
Vogue, sem eru ákveðin tímamót á
framabraut hverrar fyrirsætu.
Ákveðin skilyrði voru sett fyrir við-
talinu sem ástralska Vogue gekk að.
Þannig fór viðtalið fram í gegnum
textaskilaboð. Ritstjóri blaðsins
segir það viðurkenningu á því að
nýjar kynslóðir þurfi að nálgast á
nýjan hátt. Paris sjálf segir að í
fyrsta skipti sé ekki snúið út úr orð-
um hennar í viðtali. Raunar sagði
hún við blaðamann Vogue þegar
hann hugðist spyrja hana um fjöl-
skyldusögu hennar: „Ég svara ekki
fjölskylduspurningum“ og við það
sat. Þess í stað deildi hún því hverj-
ir draumar hennar, átrúnaðargoð
og áhugamál væru. Hennar fyr-
irmynd er Michelle Obama.
Mikið með guðföðurnum
Paris á ekki marga vini, hún er vör
um sig og hennar nánustu eru
bræður hennar og fjölskylda ásamt
Macaulay Culkin, barnastjörnunni
úr Home Alone. Culkin er guðfaðir
hennar en hann var 17 ára gamall
þegar hún fæddist og hafði þá frá
því hann var barn verið tíður gestur
Neverlands.
Hjúkrunarfræðingurinn Debbie
Rowe er móðir Parisar en hún og
poppgoðið voru gift í þrjú ár, frá
1996-1999. Rowe annaðist hann í
tengslum við húðsjúkdóminn Viti-
ligo sem Michael Jackson þjáðist af
og lýsir upp húðina. Um það gengu
kjaftasögur að hann vildi einfald-
lega vera hvítur. Við lát hans stað-
festu dómstólar að hann hefði verið
með þennan sjúkdóm sem gerði
honum lífið erfitt.
Með Rowe eignaðist Michael
Jackson einnig eldri bróður Parisar,
Michael Joseph Jackson, en ekki er
vitað með vissu hver líffræðileg
móðir yngsta sonar tónlistarmanns-
ins, Prince Michael „Blanket“ Jack-
son II, er en Michael Jackson er líf-
fræðilegur faðir drengsins.
Segist líða fyrir útlit sitt
Eftir skilnað fékk Michael Jackson
fullt forræði yfir börnunum og um-
gengust þau ekki móður sína. Þrett-
án ára gömul setti Paris sig í sam-
band við móður sína í gegnum
internetið en sambandið milli þeirra
hefur aldrei verið mikið og hefur
Paris ekki mikið viljað tala um það.
Rowe hefur barist við brjósta-
krabbamein síðasta árið og hefur
Paris birt myndir af þeim mæðgum
saman á Instagram, meðal annars
af heimsóknum sínum á spítalann.
Nokkrir menn hafa stigið fram og
sagst vera raunverulegir feður Par-
isar. Þeirra á meðal leikarinn Mark
Lester, sem lék aðalhlutverk í kvik-
myndinni Oliver! frá 1968. Sjálf hef-
ur Paris svarað þeim sögum og sagt
engan vafa leika á því að hún sé
raunveruleg dóttir Jacksons og hún
líði fyrir slíkar gróusögur vegna
síns ljósa yfirbragðs sem hún hafi
frá móður sinni. Hún benti á í við-
tali við tímaritið Rolling Stone að
börn hvítra og svartra foreldra geti
litið út eins og hún, og nefndi sem
dæmi leikarann Wentworth Miller,
sem á svartan föður og hvíta móður
en er bláeygur og ljós yfirlitum. Í
hjartanu sé hún hins vegar svört.
Pabbi hennar hafi gjarnan horft í
augun á henni og sagt: „Þú ert
svört. Vertu stolt af rótunum.“
„Hann er faðir minn, af hverju í
ósköpunum ætti hann að hafa logið
að mér? Hann gerði það aldrei,“
sagði hún í viðtalinu.
Lifandi eftirmynd föðurins
Fjölskyldumeðlimir, bróðir hennar
og systkini Michaels Jackson segja
að Paris sé nákvæmlega eins og
Michael Jackson sem karakter. Eini
munurinn sé kynið og útlit.
Einkadóttir
Hvergilands
Stelpan sem hefur átt skrautlegri ævi en flestir,
Paris Jackson, ætlar sér stóra hluti í fyrir-
sætuheiminum. Þrátt fyrir sögur alla tíð segist
hún aldrei efast um að Michael Jackson sé
raunverulegur faðir hennar.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.6. 2017
LESBÓK
KVIKMYNDIR Kvikmyndagerðarmaðurinn Duncan
Jones, ekki síður þekktur fyrir að vera sonur David
Bowie, sá fyrir sér að færa ævintýraheim tölvuleiksins
Warcraft í form trílógíu og áður en fyrsta myndin var
frumsýnd hafði Universal Pictures fyrirheit um slíkt.
Breyting hefur orðið á þeim plönum og lítur ekki út
fyrir að neitt framhald verði á. Gagnrýnendur sópuðu
þeim fyrirheitum út af borðinu en mynd Jones; Warc-
raft: The Beginning fékk víðast afar hvar slæma dóma
og voru aðeins 28% áhorfenda á Rotten Tomatos
ánægð með myndina. Myndin kostaði 16 milljarða í
framleiðslu en halaði aðeins inn 4 milljarða í Bandaríkj-
unum. Alþjóðamarkaðurinn kom til bjargar og halaði
myndin þar inn 40 milljarða, að stærstum hluta í Kína.
Sá trílógíu fyrir sér
Næsta mynd Duncan Jones, Mute, er
unnin í samstarfi við Netflix.
AFP
KVIKMYNDIR Margir bíða með eftirvæntingu eftir
næstu Stjörnustríðsmynd sem frumsýnd verður um
jólin enda hafa myndirnar í þessari nýju seríu slegið
í gegn. Stjörnustríðsmyndin sem sýnd verður þar á
eftir, Star Wars: Episode IX, verður svo sýnd vorið
2019 en henni leikstýrir maður að nafni Colin
Trevorrow en nýjasta mynd hans; The Book of
Henry, fær vægast sagt slæma dóma í fjölmiðlum
þessa vikuna. Raunar svo slæma að gagnrýnandi In-
dependent, sem gefur myndinni eina stjörnu, segir
að eftir þessa mynd sé spurning hvort hann verði
ekki hreinlega rekinn sem leikstjóri Stjörnustríðs-
gullnámunnar. The Book of Henry sé mynd ársins í
flokknum „sem enginn verður að sjá“.
Algjört flopp leikstjóra Star Wars
Gagnrýnendur hafa sagt The Book of
Henry vera eina verstu kvikmynd ársins.
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Ný kynslóð málningarefna
SUPERMATT
Almött þekjandi viðarvörn