Morgunblaðið - 05.07.2017, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
„Embætti ríkisskattstjóra og skatt-
rannsóknarstjóra óskuðu eftir upp-
lýsingum um þátttakendur í gjald-
eyrisútboðum Seðlabanka Íslands
sem þeim voru afhentar með nokkr-
um sendingum vegna áranna 2012 til
2015,“ segir m.a. í svari Seðlabanka
Íslands við fyrirspurn Björns Levís
Gunnarssonar, þingmanns Pírata,
um fjárfestingaleið Seðlabankans.
Skattaskjólsgögn
Bryndís Kristjánsdóttir skatt-
rannsóknarstjóri var í gær spurð
hvort upplýsingar frá Seðlabankan-
um hefðu leitt til aðgerða af hálfu
embættisins: „Við óskuðum eftir
upplýsingum vegna þess sem fór
fram á tímabilinu 2012 til 2015.
Beiðnin var send í lok apríl í fyrra.
Við vorum m.a. að leita upplýsinga
sem tengjast skattaskjólsgögnunum.
Það var 21 einstaklingur sem kom
fram á skattaskjólsgögnunum sem
kom einnig fram í gögnunum sem við
fengum frá Seðlabankanum. Einhver
þeirra mála eru í rannsókn,“ sagði
Bryndís.
Hún sagði að að rannsóknum lokn-
um lægi það fyrir hjá skattrannsókn-
arstjóra að greina gögnin betur. „Sú
vinna er ekki komin á það stig að ég
geti sagt til um hvort hún leiði til þess
að gripið verði til frekari aðgerða eða
ekki.“
Þáttur í upplýsingaöflun
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri var í gær spurður hvort
upplýsingarnar sem embætti hans
fékk frá Seðlabankanum hefðu leitt
til einhverra aðgerða af hálfu emb-
ættisins:
„Ég get ekki svarað þessu beint
vegna þess að þetta er þáttur í upp-
lýsingaöflun við ákvörðun á því hvort
aðili er tekinn til athugunar. Auðvit-
að byggjum við ákvarðanir okkar
fyrst og fremst á framtölum. Við nýt-
um svona upplýsingar til þess að bera
saman við framtöl viðkomandi og eft-
ir það er hægt að taka ákvörðun um
framhaldið,“ sagði Skúli Eggert.
Hann segir að síðan komi til aðrar
upplýsingar og þegar allt sé saman-
tekið sé tekin ákvörðun um það hvort
tilefni sé til að fara í aðgerðir.
Sömu einstaklingar í gögnunum
Liggur ekki fyrir hvort ríkisskattstjóri og skattrannsóknarstjóri ákveða aðgerðir
Skúli Eggert
Þórðarson
Bryndís
Kristjánsdóttir
Þorsteinn Víglundsson félags- og
jafnréttismálaráðherra hefur skipað
nefnd til að endurskoða kerfi barna-
bóta, vaxtabóta, barnalífeyris og
húsnæðisbóta. Horft er til þess að
fjárhagslegum stuðningi verði beint
í ríkara mæli að lægri tekjuhópum.
Í skipunarbréfi nefndarinnar er
vísað til þess markmiðs ríkisstjórn-
arinnar að fjárhagslegum stuðningi
verði beint í ríkara mæli að lægri
tekjuhópum, óháð uppruna tekna, og
eigi það jafnt við um barnabætur og
barnalífeyri rétt eins og húsnæðis-
stuðning og annan stuðning.
Fram kemur í skipunarbréfinu að
fjármálaráðherra muni skipa nefnd
um endurskoðun tekjuskattskerfis-
ins og skulu þessar tvær nefndir í
ljósi mikilvægis samspils tekju-
skattskerfa og bótakerfa bera sam-
an bækur sínar og vinna saman eftir
því sem þörf krefur.
Endurskoða
bótakerfið
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, var
dæmdur í 12 mánaða fangelsi í
Marple-málinu í gær. Héraðsdómur
þyngdi þar með refsingu hans í mál-
inu en hann hafði áður verið dæmd-
ur í sex mánaða fangelsi.
Þetta er í annað sinn sem Hér-
aðsdómur Reykjavíkur dæmir í
málinu en Hæstiréttur ómerkti
fyrri dóm dómsins því Ásgeir
Brynjar Torfason, sérfróður með-
dómsmaður, var metinn vanhæfur
vegna ummæla sinna á samfélags-
miðlum þar sem hann lýsti yfir af-
stöðu sinni til málefna Kaupþings
og stjórnenda bankans.
Að öðru leyti voru refsingar í
málinu í samræmi við fyrri dóm og
hlaut Magnús Guðmundsson, fyrr-
verandi bankastjóri Kaupþings í
Lúxemborg, 18 mánaða fangelsi og
Skúli Þorvaldsson var dæmdur í
sex mánaða fangelsi líkt og áður.
Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrver-
andi fjármálastjóri bankans, var
sýknuð líkt og áður. Í ákæru sér-
staks saksóknara voru Hreiðar Már
Sigurðsson og Guðný Arna Sveins-
dóttir ákærð fyrir fjárdrátt og um-
boðssvik með því að hafa fært um
átta milljarða úr sjóðum Kaupþings
til félagsins Marple Holding S.A.
SPF. Félagið er í eigu fjárfestisins
Skúla Þorvaldssonar og skráð í
Lúxemborg en Skúli var einn af
stærstu viðskiptavinum bankans
fyrir fall hans. Ákærðu neituðu öll
sök í málinu.
Hegningarauki við fyrri dóm
Hreiðari hefur nú þrisvar verið
gerð refsing vegna dómsmála
tengdra hruninu en hann hlaut
fyrst fimm og hálfs árs fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur 2015, fyr-
ir þátt sinni í Al Thani-málinu. Þá
var hann einnig sakfelldur í stóra
markaðsmisnotkunarmálinu og
dæmdur í sex mánaða fangelsi í
Hæstarétti og var refsiramminn
þannig fullnýttur í dómunum tveim-
ur; samtals sex ára fangelsi. Í dómi
Héraðsdóms í gær var Hreiðari
gerð enn frekari refsing og segir í
dómi héraðsdóms að „um hegning-
arauka var að ræða við fyrri dóm“.
Ekki náðist í Hörð Felix Harð-
arson, verjanda Hreiðars, í gær og
því ekki vitað hvort dómnum verður
áfrýjað til Hæstaréttar.
Dómur þyngdur yfir Hreiðari
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í Marple-málinu í annað sinn Refsing
Hreiðars Más þyngd í 12 mánaða fangelsi Guðný Arna sýknuð í annað sinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Héraðsdómur Dómur í Marple-málinu var kveðinn upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Verjendur í málinu sjást hér við dómsuppkvaðningu.
Fulltrúar í þeirri nefnd færeyska lög-
þingsins sem fjallar um breytingar á
lögum um sjávarútvegsmál þar í landi
virðast einhuga um að ekki skuli
breyta reglum sem heimila erlendum
aðilum að eiga allt að þriðjung í út-
gerð og fiskvinnslu í Færeyjum. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu í gær
hafa slíkar breytingar verið í deigl-
unni og minnihlutinn í nefndinni tal-
aði fyrir slíku í síðustu viku. Nú er
annað hljóð komið í strokkinn og fall-
ið er frá tillögum um nefndar breyt-
ingar, samkvæmt áliti því sem í gær
var birt á vef færeyska þingsins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun nokkru ráða um þessa
breyttu afstöðu umsögn skrifstofu
færeyska þingsins. Þar var bent á að
yrði heimild útlendinga til þess að
eiga hlut í sjávarútvegi í Færeyjum
felld úr gildi færi það gegn bæði fær-
eysku og dönsku stjórnarskránni, svo
og mannréttindasáttmálum. Einnig
bryti slíkt gegn Hoyvíkursamningi
Færeyinga og Íslendinga sem trygg-
ir gagnkvæmt viðskiptafrelsi milli
þjóðanna.
Uppsögn Hoyvíkur-
samnings möguleiki
Færeyska lögþingið kemur saman
til fundar í dag og þá munu línur
skýrast. Síðustu daga hafa Aksel V.
Johannesen, lögmaður Færeyja, svo
og utanríkis- og sjávarútvegsráð-
herra, verið erlendis en eru vænt-
anlegir heim. Fyrir vikið hefur ekki
verið ljóst hvernig færeyska land-
stjórnin afgreiðir málið; keyrir það
áfram með stuðningi minnihlutans
eða gerir á því breytingar.
Fram hefur komið hjá Högna Hoy-
dal, sjávarútvegsráðherra Færeyja,
að til greina komi að segja Hoyvík-
ursamningnum upp, enda skili hann
Færeyingum litlum ávinningi.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Færeyjar Við höfnina í útgerð-
arbænum Klakksvík á Borðey.
Skipt um
skoðun í
Færeyjum
Erlend eign í sjáv-
arútvegi ekki útilokuð
Þau Elvar Bjarki og tíkin Steina undu hag sínum
vel í sumarbústað í Skorradalnum um síðustu
helgi, þótt hún gerði reyndar athugasemdir við
skvetturnar úr heita pottinum. Í dag má reikna
með að vætusamt verði sunnanlands, en að bjart-
ara verði fyrir norðan.
Morgunblaðið/Eggert
Ærslast í bústað í Borgarfirði