Morgunblaðið - 05.07.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Allt í heyskapinn
Páll Vilhjálmsson vekur athygli áað Bretar séu að „eignast fisk-
veiðilandhelgina sína að nýju eftir
Brexit. Þeir taka fyrstu skrefin
með því að segja sig frá fisk-
veiðisáttmála
frá 1964 sem
var felldur inn í
sameiginlega
fiskveiðistefnu
Evrópusam-
bandsins.
Bretar urðu
að búa við það,
sem ESB-ríki,
að fisk-
veiðikvótar
voru ákveðnir í Brussel og öðrum
þjóðríkjum veittur aðgangur að
breskri lögsögu. Enskir sjómenn
fagna fullveldi yfir landhelginni og
skoskir starfsbræður þeirra taka í
sama streng.
Fiskveiðistjórnun Evrópusam-
bandsins er samfelld hörmung-
arsaga.“
Edward Heath, forsætisráð-herra Breta, leiddi þá inn í
Evrópubandalagið. Hann gaf loforð
sem fólu í sér að þeir sem störfuðu
við fiskveiðar á sjó eða landi þyrftu
engu að kvíða vegna aðildarinnar.
Þrjátíu árum síðar var leynd létt af
trúnaðarskjölunum. Þá blasti við að
Heath hafði vísvitandi afvegaleitt
þjóðina hvað fiskveiðimálin varð-
aði.
Ekki nóg með það. Hann rétt-lætti lygavefinn með því að
hagsmunir Breta af sjávarútvegi
væru óverulegir og snertu beint
„aðeins um 100 þúsund manns“ og
aðildin myndi gera miklu meira en
að bæta tjónið.
Edward Heath var misheppn-aður stjórnmálaforingi og
entist illa í forystu.
Það var miður að hann fékk ekkiað horfa upp á að Bretar næðu
að komast út úr ESB.
Edward Heath
Losna úr lygavef
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 13 skýjað
Nuuk 2 rigning
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 18 léttskýjað
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 15 léttskýjað
Lúxemborg 24 heiðskírt
Brussel 24 heiðskírt
Dublin 20 skýjað
Glasgow 13 súld
London 22 skúrir
París 28 heiðskírt
Amsterdam 20 heiðskírt
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 20 heiðskírt
Vín 24 heiðskírt
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 25 skýjað
Madríd 34 heiðskírt
Barcelona 28 heiðskírt
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 29 léttskýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 20 þrumuveður
Montreal 23 léttskýjað
New York 25 rigning
Chicago 25 heiðskírt
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:16 23:50
ÍSAFJÖRÐUR 2:19 24:57
SIGLUFJÖRÐUR 1:58 24:44
DJÚPIVOGUR 2:33 23:32
Mannréttindadómstóll Evrópu sýkn-
aði í gær íslenska ríkið af kæru Svav-
ars Halldórssonar, fyrrverandi frétta-
manns RÚV. Svavar fór með mál til
Mannréttindadómstóls Evrópu árið
2013 þar sem hann krafðist ógildingar
á dómi Hæstaréttar frá 15. nóvember
2012. Byggði Svavar mál sitt á því að
dómur Hæstaréttar hefði brotið á rétti
sínum til tjáningarfrelsis samkvæmt
10. grein Mannréttindasáttmála Evr-
ópu. Nánar tiltekið að dómur Hæsta-
réttar hefði haft í för með sér afskipti
af tjáningarfrelsi Svavars sem væru
ónauðsynleg í lýðræðislegu samfélagi.
Dómur Hæstaréttar frá 15. nóvem-
ber 2012 varðar mál um að ummæli um
Jón Ásgeir Jóhannesson, í frétt RÚV
hinn 6. desember 2010 um tengsl hans
við skúffufyrirtæki í Panama, yrðu
dæmd ómerk. Dæmdi Hæstiréttur
Jóni Ásgeiri í hag og var Svavar
dæmdur til að greiða honum 300 þús-
und krónur í miskabætur, auk einnar
milljónar króna í málskostnað.
Niðurstaða mannréttindadómstóls-
ins var sú að dómur Hæstaréttar hefði
verið innan marka og ekki brotið gegn
10. grein mannréttindasáttmálans um
tjáningarfrelsi. Þá var fjárhæð miska-
bótanna hvorki metin óhófleg né af því
tagi að hún hefði „ískyggileg áhrif“ á
frelsi fjölmiðla, segir í dómnum.
axel@mbl.is
Íslenska ríkið
sýknað af kæru
Ekki var brotið gegn tjáningarfrelsi
Alexander Gunnar Kristjánsson
agunnar@mbl.is
Umferð á hringveginum jókst um
tæp 13 prósent í júní frá júnímán-
uði í fyrra. Þetta kemur fram í töl-
um frá Vegagerðinni. 16 teljarar
eru við hringveginn er mæla um-
ferð og samanlagt fóru 2,95 millj-
ónir bíla framhjá þeim í mánuðinum
eða að meðaltali 98.500 bílar á sól-
arhring. Mest er aukningin á Suð-
urlandi þar sem umferð er þyngst
fyrir en um 15% fleiri bílar keyrðu
þar um en í fyrra. Þá er aukningin
14,1% á vegum inn og út úr borg-
inni en minnst á Norðurlandi, 7%.
Umferð eykst einnig á höfuð-
borgarsvæðinu. Samanlagt óku
tæplega 170.000 bílar á dag framhjá
þremur teljurum Vegagerðarinnar
á höfuðborgarsvæðinu í júní og er
það 10,5% aukning frá í fyrra. Mun-
ur er á umferð eftir vikudögum.
Þannig er umferð nokkuð jöfn frá
mánudegi til fimmtudags en á
föstudögum eru að jafnaði rúmum
15% fleiri á ferðinni.
Að sögn G. Péturs Matthíasson-
ar, upplýsingafulltrúa Vegagerðar-
innar, er álagið á vegakerfið í heild
ekki mikið og þolir það meiri um-
ferð. Hins vegar kalli aukin umferð
á meira viðhald og ljóst að það
framlag sem Vegagerðin fær til
þess sé ófullnægjandi. „Það dugir
ekki til að halda í horfinu.“
Samgönguáætlun ekki fylgt
Umferðinni er einnig ójafnt
dreift. Umferðarþyngstu vegirnir
eru á Suðurlandi og tekur Pétur
undir nauðsyn þess að gera úrbæt-
ur þar. Til stendur að bæta einni
akrein við Suðurlandsveg milli
Hveragerðis og Selfoss þannig að
ein akrein sé í aðra átt en tvær í
hina.
Haga á framkvæmdum þannig að
auðvelt verði að ljúka við tvöföldun
þegar að því kemur. Verkefnið er á
samgönguáætlun en fjármálaáætlun
ríkisstjórnarinnar gerir hins vegar
ráð fyrir litlu fé til framkvæmda, að
sögn G. Péturs, og því óljóst með
framvindu verksins.
Bílaumferð eykst enn
13% fleiri bílar voru á hringveginum í júní en sama mánuð á síðasta ári
Óljóst hvenær Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Selfoss verður breikkaður
Umferð á þjóðvegi 1 og í Reykjavík 2016-17
Meðalfjöldi bíla á sólarhring á talningarstöðum Aukningmilli ára
Rvík. Höf-
uðb.
S-
land
A-
land
N-
land
V-
land
Heimild: Vegagerðin
Júní 2016 Júní 2017
Reykjavík Hafnarfjarðarvegur,
Reykjanesbraut og Vesturlandsvegur
ofan Ártúnsbrekku
152.871 168.979
Höfuðb.svæðið Suðurlandsv. v/
Geitháls og Vesturlandsv. v/Úlfarsfell 42.784 48.811
Suðurland Hellisheiði, við
Hvolsvöll og á Mýrdalssandi 15.137 17.413
Austurland Möðrudalsöræfi,
Gíslastaðagerði og Hvalsnes í Lóni 2.232 2.426
Norðurland Gljúfurá, Öxnadalur,
Kræklingahlíð, Mývatnsheiði og -öræfi 11.256 12.041
Vesturland Hvalfjarðargöng,
Hafnarfjall og Holtavörðuheiði 15.978 17.762
10,5%
14,1%
15%
8,7%
7%
11,2%