Morgunblaðið - 05.07.2017, Side 10

Morgunblaðið - 05.07.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is Frábær smurefni sem einangra, verja og koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra o rafma nsvara. 100% eins árs RAKAVÖRN Gerum við hedd og erum einnig með ný hedd á flest allar vélar Er heddið bilað? Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Við erum sérfræðingar í heddum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Annað kvöld, fimmtudagskvöld klukkan 20, fer Guðni Ágústsson fyrir fræðslugöngu á Þingvöllum og segir frá kristni- tökunni árið 1000. Gengið verður frá Hakinu niður Al- mannagjá og nið- ur á vellina að Þingvallakirkju. Guðni mun segja frá persónum og atburðum viðvíkj- andi kristnitök- unni árið 1000. „Ég fer yfir stöðuna í Evrópu á þessum tíma og ekki síst í Noregi þar sem Ólafur konungur Tryggva- son kristnaði Norðmenn með hörku en sendi Þangbrand trúboða hingað og síðan beitti hann Íslendinga nokkuð hörðum úrræðum. Braut heiðnina á bak aftur. Það voru svo vitrir leiðtogar eins og Síðu-Hallur, Gissur hvíti, Hjalti Skeggjason og ekki síst Þorgeir Ljósvetningagoði sem lögðu til ráð sem sköpuðu frið og sátt.“ Bergið kastar ræðunni Frá Hakinu verður gengið und- ir forystu Guðna niður Almannagjá að hinu forna Lögbergi. Þar – í skjóli kletta – er hljómburðurinn sterkur og fyrir raddmikla menn hljóðnemi óþarfur. „Þegar talað er skýrt á Lögbergi kastar bergið ræðunni yfir þingheim og hljómar eins og í besta hljóðkerfi,“ segir Guðni. Frá Lög- bergi er gengið niður á vellina að Þingvallakirkju, þar sem sr. Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, tekur við. Fáir þekkja kristnisögu Íslendinga betur en Geir og fyrir vikið verður þessi kvöldganga einkar fróðleg. Þá mun Karlakór Kjalnesinga taka þátt í viðburðinum og syngja ættjarðarlög og sálma. Einn lög og einn sið „Svo verða heiðnir menn eða ásatrúarmenn með okkur; Jörmund- ur Ingi forstöðumaður Reykjavík- urgoðorðs og hans menn undir vopn- um,“ segir Guðni. Þetta segir hann að sé við hæfi, því þegar kristni var lögtekin hafi verið svo deildar mein- ingar um málið að nærri lét að þing- heimur hefði barist. „Á þinginu voru vitrir menn, ekki síst Síðu-Hallur sem tók af skarið og fól hinum rammheiðna Þorgeiri á Ljósavatni að kveða upp úr um hvaða sið við Ís- lendingar skyldum hafa. „Og það gerði Þorgeir með slíkri snilld að kristnir sem heiðnir menn sættu sig við úrskurð hans. Eftir það hafði ís- lenska þjóðin ein lög og einn sið um aldir,“ segir Guðni. Nærri lét að þing- heimurinn berðist Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þingvellir Vettvangur ýmissa stórra viðburða, svo sem kristnitökunnar.  Guðni segir frá kristnitökunni í Þingvallagöngu Guðni Ágústsson Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Hópi fræðimanna frá nokkrum lönd- um hefur tekist að tímasetja með nokkurra mánaða nákvæmni Kötlu- gos sem varð skömmu fyrir landnám á Íslandi, nánar tiltekið einhvern tím- ann á tímabilinu frá hausti 822 og fram á vor 823. Niðurstöður úr rannsókn þeirra hafa nú verið birtar í grein í vís- indaritinu Geology, en fyrsti höf- undur greinarinnar er Dr. Ulf Bünt- gen, prófessor við jarðfræðideild Cambridge-háskóla í Englandi. Hefur skólinn hefur birt frétt um rannsóknina á vefsíðu sinni en hún hefur vakið athygli á heimsvísu vegna þeirrar aðferðafræði sem not- uð var við aldursgreininguna. Ólafur Eggertsson, jarðfræðingur hjá Skógræktinni og sérfræðingur í árhringjum trjáa, er annar höfundur greinarinnar, en að hans sögn beindu fræðimennirnir fyrst sjónum að Drumbabót á Þveráreyrum í Fljóts- hlíð fyrir meira en 15 árum síðan. Féllu öll í sama atburði Rannsókn hófst árið 2003 og voru sneiðar teknar af sjö trjám, en rann- sókn á breidd árhringjanna í sneið- unum leiddi í ljós að þau eyddust öll í sama atburði, að öllum líkindum í jökulhlaupi vegna eldsumbrota í Kötlu. „Til að geta tímasett atburðinn voru sýni tekin til geislakolsgrein- inga Niðurstaðan var að trén hefðu fallið einhvern tímann á árabilinu 755 til 830.“ Notuðu upplýsingar um sólgos „Ulf, félagi minn og fyrsti höf- undur greinarinnar fékk þá hug- mynd, vegna þess að trén höfðu drepist á þessu bili, að það gæti leynst í árhringjunum það sem kallað er geislakolstoppur. Árið á geislakol- stoppnum er vitað og því var ákveðið að reyna að finna hann í þessum trjám,“ segir Ólafur. Umrætt ár er árið 775, þegar sennilega varð stórt sólgos, með þeim afleiðingum að hlutfall geislakols í lofthjúpnum hækkaði, en merki um atburðinn má finna í tilteknum ár- hring trjáa sem voru á lífi árið 775. „Með því að gera geislakolsgrein- ingar á hverjum einasta árhring fannst geislakolstoppurinn. Það gerði tækniháskólinn í Zürich, sem er mjög framalega í svona aldursgrein- ingum,“ segir Ólafur, en með því að telja árhringina frá geislatoppinum tókst að ákvarða með nákvæmni það ár þegar skógurinn féll, eða veturinn 822 til 823. Niðurstöður úr rannsókn á Drumbabót og þar með aldursgrein- ingu Kötlugossins voru síðan bornar saman við upplýsingar úr gjóskulög- um og borkjörnum úr Grænlands- jökli sem meðhöfundar greinarinnar, prófessorarnir Christine Lane og Clive Oppenheimer, höfðu áður rann- sakað. Einnig voru könnuð sagnfræðileg gögn um kuldatíð í Evrópu og Asíu á þessum sama tíma. Meðal annars eru vísbendingar um lítinn vöxt trjáa í Evrópu og í Síberíu umrædd ár, 822 til 823. Niðurstaðan Kötlugos Niðurstaða rannsóknarinnar er að um hlaup úr Mýrdalsjökli hafi verið að ræða vegna eldsumbrota í Kötlu, líkt og áður sagði. „Okkar túlkun samkvæmt setlög- um og legu trjánna meðal annars, er að þetta hafi verið hlaup sem kom niður Markarfljótsaura og ósennilegt sé að það hafi verið úr Eyjafjallajökli, því það sé ósennilegt að hann hafi gefið frá sér svo mikið flóð,“ segir Ólafur. Aðspurður segir hann að líklega verði Drumbabót frekar könnuð og mögulega fleiri fornskógar á Íslandi. „Við eigum til dæmis eftir að kort- leggja stærð svæðisins. Sumt er hulið sandi og á hverju ári koma fram nýir lurkar. Á hverju ári, þegar Þverá er í vatnavöxtum, þá hreinsar hún sand- inn frá og í ljós koma nýir lurkar,“ segir hann. Ólafur segir að einnig megi athuga Selsund við Heklurætur þar sem í öskulagi séu vel varðveittar trjáleif- ar, næstum ferskur viður. Þar megi mögulega notast við sömu að- ferðafræði og fá nákvæmari aldurs- greiningu á því hvenær þau tré féllu og þannig fá nákvæman aldur á Sel- sundsvikrinum. Einnig finnast trjá- leifar undir öskulögum hina miklu hamfaragosa sem orðið hafa í Heklu eins og H3 og H4. Hefur vakið athygli á heimsvísu  Vísindagrein um Drumbabót birt í virtu vísindariti  Aðferð við aldursgreiningu ný af nálinni  Drumbarnir tímasetja Kötlugos árið 822 eða 823  Tilefni til að kanna fleiri viðarleifar á Íslandi Drumbabót Leifarnar af trjánum standa 20 til 60 sentimetra upp úr sandinum á Þveráreyrum í Fljótshlíð. „Í aðal- hlutverki í þessu erindi mínu verður samspil trúar- bragða og laga. Sú er að minnsta kosti ætlunin, en svo veit maður nátt- úrlega aldrei hvar sagan endar þegar byrjað er,“ segir sr. Geir Waage. Hann hefur ekki áður talað af líku tilefni og nú á Þing- völlum. Í Reykholti er hann hins vegar sögumaður staðarins, sem sannarlega á margt sam- eiginlegt með Þingvöllum. Samspil laga og trúarinnar REYKHOLTSPRESTURINN Geir Waage.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.