Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017 Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is Rúmáb reiður HOTELREKSTUR ALLT Á EINUM STAÐ Fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús, veisluþjónustur, heilsugæslustofnanir o.fl. Hlíðarsmára 6, 201 Kópavogi – S. 564 6464 – fasthof.is að f m viðskiptum Elsa Alexandersdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala Evert Guðmundsson Nemi til löggildingar fasteignasala Guðmundur Hoffmann Steinþórsson lögg. fasteignasali Baldur Arnarson baldura@mbl.is Framkvæmdir við breytingar á Kjörgarði á Laugavegi 59 eru langt komnar og er áformað að taka nýjar íbúðir og endurbætt þjónusturými í notkun um næstu mánaðamót. Á annarri hæð verður meðal ann- ars nýtt veitingahús, Nostra, sem snýr út að Laugavegi, og á hæðum þrjú til fimm verða 11 nýjar íbúðir. Fasteignaþróunarfélagið Vestur- garður á húsið. Húsið er í eigu Val- fells-fjölskyldunnar og hefur bygg- ingin verið tengd fjölskyldunni síðan Sveinn B. Valfells og Kristján Frið- riksson byggðu húsið. Það var í fyrstu þrjár hæðir, auk kjallara, og þar var fyrsti rúllustigi landsins. Sæmundur H. Sæmundsson, framkvæmdastjóri Vesturgarðs, segir endurbæturnar svo umfangs- miklar að húsið sé eins og nýtt. „Það hefur kostað um 400 millj- ónir brúttó að endurbyggja húsið, að meðtaldri nýrri fimmtu hæð sem byggð var ofan á þakið. Sérfræðing- ar í fasteignageiranum segja mér að endurbæturnar hafi aukið verðmæti hússins um 800 milljónir.“ Samkvæmt fasteignaskrá er fast- eignamat hússins um 854 milljónir. Má því ætla að markaðsverð hússins eftir breytingar sé 1,6-2 milljarðar. Nýr hringstigi upp á 2. hæð Skipt var um alla glugga í húsinu og hafa tveir leigutakar, Bónus á jarðhæð, og Herrafataverslun Kor- máks og Skjaldar, í kjallara, haldið óbreyttri starfsemi síðan verkið hófst í fyrrasumar. Jarðhæðinni, sem snýr að Laugavegi, hefur verið breytt þannig að inngangi í verslun Bónuss austanmegin hefur verið lok- að. Hefur inngangurinn verið sam- einaður útgangi versluninnar vest- anmegin. Þar sem inngangurinn var er nú hringstigi upp á nýtt veitinga- hús á 2. hæð. Stefnt er að opnun þess um næstu mánaðamót. Staðurinn verður í sameinuðu rými þar sem var áður Núðluhúsið, prjónaverslunin Storkurinn og sjóntækjaverslun. Við þessa breytingu hverfur jafnframt hringstigi sem var utandyra. Norð- anmegin á 2. hæð verður verslun og þjónusta og skrifstofur. Á hæðum 3 og 4 voru skrifstofur. Þar hafa nú verið innréttaðar 4 íbúð- ir á hvorri hæð. Þá var byggð ný hæð ofan á þakið, sem er 5. hæðin, og verða þar 3 íbúðir. Aukin lofthæð er í húsinu. Sæmundur segir stefnt að því að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar í ágúst. Hann segir óráðið hvort þær fari í almenna leigu eða í skamm- tímaleigu til ferðamanna. Á efstu hæðinni verða tvær 110 fermetra íbúðir og ein 80 fermetra íbúð. Miðað við markaðsverð á svæðinu gætu stærri íbúðirnar verið leigðar á 250- 400 þúsund á mánuði. Morgunblaðið/Golli Fimmta hæðin Frá þakíbúðunum er mikið útsýni í allar áttir. Ný hæð var byggð ofan á gamla þakið á Kjörgarði. Kjörgarði gjörbreytt  Næstu vikur verður Kjörgarður opnaður eftir breytingar  Þar verða 11 leiguíbúðir og nýr veitingastaður á jarðhæð Morgunblaðið/Golli Athafnamaður Sæmundur H. Sæmundsson, framkvæmdastj. Vesturgarðs. Gert klárt Húsið málað í fyrradag. Saga Inngangur Kjörgarðs. Við Laugaveg Horft frá 4. hæðinni. Tillaga Lenu Margrétar Aradóttur, KÞBAVD-vagninn, bar sigur úr být- um í hönnunarkeppni Strætó sem lauk á mánudagskvöld. Fram kemur á heimasíðu Strætó að KÞBAVD sé skammstöfun á frasanum „konur þurfa bara að vera duglegri“, sem sé kaldhæðnisleg ádeila í jafnréttis- umræðunni. Almenningur gat kosið á netinu um yfir 1.500 tillögur að skreytingum á Strætó en hver sem er gat sent til- lögur. María Hrund Marinósdóttir, markaðsstjóri Strætó, segir í skrif- legu svari til Morgunblaðsins að sem minnst afskipti hafi verið höfð af þeim tillögum sem bárust í hönnun- arsamkeppnina en verk sem hafi far- ið út fyrir ákveðin velsæmismörk hafi verið fjarlægð. „Það hefði kostað mikinn tíma og verið flókið í framkvæmd að leggja huglægt mat á allar innsendingar,“ segir í svari hennar en hún var m.a. spurð hvort rétt væri að opinbert fyr- irtæki, sem nýtur niðurgreiðslu skattgreiðenda, bjóði almenningi að kjósa um pólitískar tillögur þar sem merkja á einn vagn Strætó með vinn- ingstillögunni og aka á almennri leið. Meðal tillagna sem hægt var að kjósa um var vagn merktur komm- únisma. Þá er vinningstillagan einnig af pólitískum meiði. „Þegar hátt í 2.000 tillögur berast inn í svona keppni má búast við mikilli flóru hug- mynda, þar á meðal pólitískra. Vinn- ingstillagan er mjög opin til túlkunar en að okkar mati stóðst hún þær kröf- ur sem við settum í upphafi að öllu leyti. Svo er það í höndum þeirra 50.000 sem kusu hvaða tillaga vann,“ segir í svari Maríu. Hún segir að í skilmálum keppninnar hafi þátttak- endum verið gerð grein fyrir að þeir bæru ábyrgð á innsendingum sínum en keppnin hefði misst marks ef Strætó hefði stundað mikla rit- skoðun. vilhjalmur@mbl.is Jafnréttisboð- skapur á Strætó  Kommúnistavagn ein innsend tillaga Sigurtillagan Bakhlið strætisvagns skreytt með vinningstillögunni. Kveðnir hafa ver- ið upp dómar í málum flestra þeirra þrettán einstaklinga, sem handteknir voru á 2 mánaða tímabili fyrr á árinu grun- aðir um fíkniefna- smygl. Jón Halldór Sigurðsson, lög- reglufulltrúi í fíkniefnadeild lögregl- unnar á Suðurnesjum, segir að fólkið sé af erlendu bergi brotið og afpláni nú dóma. „Þetta var fólk sem kom frá ýmsum löndum, meðal annars Brasilíumenn, Hollendingar og Bandaríkjamenn. Ég held að það sé búið að dæma alla nema einn í þess- um hópi.“ Í síðustu viku var m.a. hol- lenskur karlmaður dæmdur í árs fangelsi fyrir að flytja inn hálft kíló af kókaíni. Aldrei hafa eins margir verið handteknir á jafnskömmum tíma fyrir tilraun til smygls. Samtals var lagt hald á nokkur kíló af kókaíni. Jón segir að lögreglan hafi kannað hvort einhver tenging hafi verið milli einstaklinganna. „Málin voru rannsökuð aðskilin en þegar upp kemur svona mikill fjöldi mála verður að kanna hvort einhver tenging geti verið. Það var gert og í ljós kom að málin tengdust ekki neitt.“ Hann segir að lögreglan hafi ekki orðið vör við aukinn fjölda fíkniefna- mála. „Það er auðvitað alltaf einhver mál sem koma upp en við sjáum ekki aukningu.“ aronthordur@mbl.is Smyglarar hlutu dóma Fíkniefni Lagt var hald á efnin.  Aldrei hafa jafnmargir verið handteknir fyrir fíkniefnasmygl Þau leiðu mistök urðu í blaðinu í gær að Hjálmar W. Hannesson, sendi- herra og formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, var rangnefndur í umfjöll- un um Íslendingadaginn í Kanada. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Hjálmar rangnefndur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.