Morgunblaðið - 05.07.2017, Síða 13

Morgunblaðið - 05.07.2017, Síða 13
Gaman Birta Rós og Freyja, systur brúðar- innar, létu ekki sitt eftir liggja við sönginn. ýmist á gistiheimilinu í Ármóti þar sem veislan var eða í tjöldum og vögnum á tjaldstæðinu. Svo hittust margir aftur í morgunsárið. Þetta var því í raun sólarhringsbrúðkaup.“ Móðurafinn Samúel á Ströndum spilaði á sítar Ingibjörg lifir og hrærist í tón- list en hún býr á Hvolsvelli og starf- ar sem tónmenntakennari í Hvols- skóla og stjórnar barnakór skólans. Hún kennir tónlist hjá Tónsmiðju Suðurlands, sem er ritmískur tón- listarskóli, þar sem hún kennir á ým- is hljóðfæri. „Ég á ansi mörg hljóðfæri, hef safnað þeim frá því ég var lítil stúlka, en þá seldi ég dúkkuvagninn minn og keypti mér alt-blokkflautu fyrir andvirðið. Fljótlega bættust við gítar, þverflauta og píanó, sem voru aðalhljóðfærin mín þegar ég var barn og unglingur. Ég keypti mér harmoniku í einu fæðingarorlofinu og fékk mér kontrabassa sem stof- ustáss í staðinn fyrir stofuskáp, af því mér fannst bassinn miklu fal- legri. Svona er þetta þegar söfn- unaráráttan fer saman við áhuga- málið, sem ég er svo heppin að starfa líka við. Svo verður maður að læra að spila á þetta allt saman og ég gerði það, ég get gripið í öll þessi hljóðfæri sem ég hef safnað og nán- ast fyllt húsið mitt af. Reyndar hef ég ekki enn lært á sekkjapípuna sem ég keypti mér eitt sinn í Skotlandi, hún ku vera mjög erfið.“ Þegar Ingibjörg er spurð hvort hin mikla músík sem rennur í blóði fjölskyldunnar komi frá einhverjum sérstökum ættföður eða ættmóður reynist þetta liggja í báðum hennar ættum. „Mamma söng alla tíð í kór og heima. Móðurafi minn, Samúel Sam- úelsson, spilaði á sítar norður á Ströndum, söng og kenndi. Pabbi minn var líka afar tónelskur, söng og hafði mikið dálæti á harmonikum. Hann hlustaði mikið á tónlist og naut hennar. Þessi áhugi á tónlist hefur skilað sér rækilega í gegnum kynslóðirnar.“ Stuð Vinsý tók þátt í dansinum þegar Erpur frændi hennar rappaði. Systur Hófí og Gréta Mjöll Samúelsdætur, frænkur brúðarinnar, sungu frumsamið lag. Innlifun Arnar er giftur Hófí, frænku brúðar- innar, hann söng ásamt Freyju við athöfnina. Birta Rós Hún söng einsöng fyrir systur sína brúð- ina og verðandi eiginmann hennar í kirkjunni. Brúðhjón Erla Vinsý og Kristinn Björn koma út úr Breiðabólstaðarkirkju. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017 EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.com DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. Nú þegar allt er í blóma er ekki úr vegi að gefa jurtum jarðar gaum. Jó- hanna Þormar garðyrkjufræðingur ætlar að leiða göngu um Grasagarð- inn í Reykjavík í kvöld, miðvikudags- kvöld, en í honum vaxa margar undurfagrar blágresistegundir. Í göngunni verða þær skoðaðar, fjallað um fjölbreytileika þeirra og ræktun í heimilisgörðum. Fræðslan hefst við aðalinngang Grasagarðsins kl. 19:30. Ókeypis og allir velkomnir. Endilega … Kínablágresi Sannarlega undurfagurt og heitir á latínu Geranium farreri. … kynnið ykkur blágresið blíða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.