Morgunblaðið - 05.07.2017, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.07.2017, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Smáratún 8, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 218-7152 , þingl. eig. Pétur Kúld Pétursson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 10. júlí nk. kl. 09:25. Kringlumýri 2, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 226-6581 , þingl. eig. Sunneva Lind Ármannsdóttir og Elvar Örn Sigdórsson, gerðar- beiðendur Landsbankinn hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn 10. júlí nk. kl. 09:35. Háengi 4, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 218-6266 , þingl. eig. Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur Sveitarfélagið Árborg og Vátryggingafélag Íslands hf. og Landsbankinn hf., mánudaginn 10. júlí nk. kl. 09:45. Langholt land 1, Flóahreppur, fnr. 197706 , þingl. eig. Hvítárhestar/ River horses ehf., gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Flóahreppur og Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn 10. júlí nk. kl. 10:10. Eystri-Grund, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 165540 , þingl. eig. Sævar Ástmundsson, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Landsbankinn hf., mánudaginn 10. júlí nk. kl. 10:45. Eystri-Grund lóð, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 225-1224 , þingl. eig. Sævar Ástmundsson, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Landsbankinn hf., mánudaginn 10. júlí nk. kl. 10:55. Túngata 64, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 224-4120 , þingl. eig. Arndís Harpa Einarsdóttir og Einar Pálsson, gerðarbeiðendur Sveitarfélagið Árborg og Landsbankinn hf., mánudaginn 10. júlí nk. kl. 11:20. Kirkjuferjuhjáleiga I 201594, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 234-3566 , þingl. eig. Ólafur Hafsteinn Einarsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf, Selfossi, mánudaginn 10. júlí nk. kl. 12:00. Klettagljúfur 15, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 227-1077 , þingl. eig. Rúnar Sæmundsson, gerðarbeiðendur Karl G S Benediktsson og Íslandsbanki hf., mánudaginn 10. júlí nk. kl. 12:15. Heiðarbrún 26, Hveragerði, ehl. gþ., fnr. 221-0271 , þingl. eig. Ingi- mundur Haraldur Magnússon, gerðarbeiðendur Hveragerðisbær og Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn 10. júlí nk. kl. 13:25. Breiðamörk 5, Hveragerði, fnr. 221-0074 , þingl. eig. Hulda Hrönn Elíasdóttir, gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Sýslumaðurinn á Suðurlandi, mánudaginn 10. júlí nk. kl. 13:35. Borgarheiði 1H, Hveragerði, fnr. 220-9878 , þingl. eig. Dagmar Jóhannsdóttir, gerðarbeiðendur Hveragerðisbær og Íbúðalánasjóður, mánudaginn 10. júlí nk. kl. 13:45. Borgarheiði 2V, Hveragerði, fnr. 220-9887 , þingl. eig. María Einars- dóttir, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Borgun hf. og Lífeyrissjóður verslunarmanna og Hveragerðisbær, mánudaginn 10. júlí nk. kl. 13:55. Dynskógar 1, Hveragerði, fnr. 221-0123 , þingl. eig. Þórarinn Gíslason og Karen Dagmar Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves og Íbúðalánasjóður, mánudaginn 10. júlí nk. kl. 14:05. Bláskógar 2, Hveragerði, fnr. 220-9855 , þingl. eig. Davíð Ágúst Davíðsson og Beata Starczewska Davíðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 10. júlí nk. kl. 14:15. Sýslumaðurinn á Suðurlandi 4. júlí 2017 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Sandskeið G-Gata 7, Bláskógabyggð, fnr. 221-9427 , þingl. eig. Sigríður Þóra Þórðardóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Arion banki hf., þriðjudaginn 11. júlí nk. kl. 10:10. Ytri-Skógar lóð, Rangárþing eystra, fnr. 231-6801 , þingl. eig. Guðmundur Jónsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 11. júlí nk. kl. 12:10. Efri-Steinsmýri 1, Skaftárhreppur, fnr. 163324 , þingl. eig. Jón Reynir Einarsson, gerðarbeiðandi Festa - lífeyrissjóður, þriðjudaginn 11. júlí nk. kl. 15:10. Sýslumaðurinn á Suðurlandi 4. júlí 2017 *Nýtt í auglýsingu *20597 Þingvellir Hakið – Gestastofa – sýning. Ríkiskaup, fyrir hönd Framkvæmdasýslu ríkisins, kt. 510391-2259 og Þjóðgarðsins á Þingvöllum, kt. 710269-3789, óska eftir tilboðum í samkeppnisútboð um margmiðlunarverkefni og verkframkvæmd sem felur í sér fullnaðarhönnun, útfærslu, uppsetningu og lokafrágang á samþykktri hugmynd að sýningu í stækkaðri Gestastofu á Hakinu á Þingvöllum. Fyrir liggur samþykkt heildarhugmynd sýningarinnar, mark- mið, markhópar, efnistök, frásagnarliðir og helstu miðlunarleiðir sem gestir munu upplifa. Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 21. júlí 2017 kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum. Nauðungarsala Tilboð/útboð RaðauglýsingarSmáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólhýsi Til sölu pokamarkísa 3.2m.l Nánari upplýsingar í síma: 897-7992. Húsviðhald atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ Ingvar Emils-son haffræð- ingur fæddist á Eskifirði 3. októ- ber 1926. Hann lést á sjúkrahúsi í Mexíkóborg 21. október 2016, eftir erfiða baráttu við lungnabólgu. Ingvar var fæddur á Eskifirði og ólst þar upp til 13 ára aldurs, ásamt þremur systkinum sínum, Bryndísi Emilsdóttur, f. 31. október 1928, d. 6. september 2002, Huldu Emilsdóttur söngkonu, f. 25. ágúst 1930, og Birni Jón- atan Emilssyni, f. 28. maí 1934, látinn 13. nóvember 2014. Foreldrar þeirra voru Emil Björnsson ráðuneyt- isfulltrúi og Laufey Jónatans- dóttir sem fluttu frá Eskifirði til Reykjavíkur og bjuggu þar. Ingvar lauk námi frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1946 á 100 ára afmæli Mennta- skólans. Ingvar stundaði nám í haffræði og veðurfræði í Nor- egi árin 1946 til 1953. Árið 1950 kvæntist Ingvar Ástríði Guðmundsdóttur, f. 23. ágúst 1926, d. 28. júní 2015, og eignuðust þau Kristján og Tryggva Ingvars- syni, sem sigldu með móður sinni til móts við Ingv- ar, sem veitti for- stöðu nýstofnaðri hafrannsókn- arstofnun Háskól- ans í Sao Paulo. Þar voru þau í 10 ár og þar fæddist yngsta barn þeirra Elín Margrét. Það- an flutti Ingvar með konu sinni og dóttur til Kúbu, þar sem hann starfaði í sex ár, en drengirnir Kristján og Tryggvi fluttu til Íslands til að stunda nám þar. Árið 1970 fluttu þau til Mexíkó-borgar, þar sem þau hjónin bjuggu alla tíð síðan en 1988 fór Ingvar á eftirlaun frá Sameinuðu þjóðunum, og fljót- lega gerðist hann forstöðu- maður hafrannsóknarskipa háskólans í Mexíkó (UNAM), en það starf stundaði hann til dauðadags á síðastliðnu hausti. Minningarathöfn um Ingvar fer fram í Dómkirkjunni í dag, 5. júlí 2017, klukkan 14. Hann verður jarðaður við hlið eig- inkonu sinnar í Hólavalla- kirkjugarði í Reykjavík. Í dag verður gerð útför heið- ursmannsins Ingvars Emilssonar haffræðings sem lézt á sjúkrahúsi í Mexíkóborg í október 2016. Ingvar á að baki langan og heilla- drjúgan starfsferil við hafrann- sóknir í Suður-Ameríku. Skömmu eftir að hann hafði lokið háskóla- prófi í haffræði frá í Ósló, var hann sendur á vegum norskra stjórnvalda til að koma upp haf- rannsóknum við háskólann í São Paulo í Brazilíu, þar sem hann varð svo forstöðumaður hafrann- sóknastofnunar skólans. Leiðin lá þaðan til Kúbu og síðan til Mexíkó 1970, þar sem hann kom upp tveimur hafrannsóknaskipum, einu fyrir Kyrrahaf og öðru fyrir Mexíkóflóa. Ingvar settist að í Mexíkó og stjórnaði hafrannsókn- um ríkisháskólans í Mexíkóborg (UNAM) og útgerð skipanna allt til dauðadags, þá orðinn níræður. Mexíkanar treystu engum manni betur en Ingvari til að annast skipin og ýttu til hliðar öllum reglum um hámarksaldur og starfslok opinberra starfsmanna. Ingvari var margt til lista lagt. Áratugum saman kenndi hann t.d. verðandi sjóliðsforingjum í mexíkanska flotanum að hnýta hnúta, eins og við kunnum bezt á Íslandi. Hann þekkti því alla æðstu yfirmenn flotans og naut þeirra kynna við rekstur hafrann- sóknaskipanna. Fundum okkar Ingvars bar fyrst saman, er ég fór ásamt fleiri mönnum til að kanna áhrif jarð- skjálftans í Mexíkó 1985. Þegar við komum til Mexíkóborgar í lok september, einum þremur vikum eftir skjálftann mikla, ríkti mikil ringulreið í borginni. Hefði okkur orðið lítt ágengt, ef Ingvar hefði ekki tekið okkur opnum örmum og greitt götu okkar. Fékk hann m.a. vin sinn dr. Cinna Lomnitz, jarðskjálftafræðing við UNAM, til að liðsinna hópnum. Þegar stjórnmálaafskiptum mínum lauk vorið 1991, vorum við Ingvar í sambandi. Hvatti hann mig til að koma til Mexíkó sem gistiprófess- or veturinn 1991-1992. Dr. Cinna Lomnitz, nú einnig látinn, tók að sér að sjá um samskipti við stofn- anir ríkisháskólans, en Ingvar um að útvega húsnæði fyrir okkur hjón. Við dvöldumst í Mexíkóborg í nærri heilt ár. Erum við sam- mála um, að það hafi verið eitt mesta sæluskeið lífs okkar, ekki sízt vegna þess hversu Ingvar og Ása, elskuleg kona hans sem lézt árið 2015, tóku vel á móti okkur. Það var gott að koma í heimsókn í sumarhöll þeirra í Tepoztlan, nið- ur á miðsléttunni, en þar var lofts- lag hlýrra og betra en í stórborg- inni uppi á hásléttunni. Þannig áttum við góða daga saman, og lentum í ýmsum ævintýrum á ferðum okkar í eigin bíl um þetta stórkostlega land, sem Ingvar hafði gert að öðru föðurlandi sínu. Ingvar var engu að síður þjóðholl- ur maður og vildi Íslandi allt hið bezta. Ræddum við því oft um landsins gagn og nauðsynjar, en þau hjón töluðu mjög fallega ís- lenzku, sem myndi vart heyrast nú á Fróni. Hin seinni ár hittumst við reglulega, annaðhvort hjá Kristjáni, syni hans í Orlando, eða í veizlum, sem Kristján hélt á Ís- landi, þegar allir voru saman- komnir þar. Við Kristján, svo og hin systkinin Elín og Tryggvi, höfum orðið góðir vinir. Það er gott að eiga þau að og rifja með þeim upp góðar minningar um heiðurshjónin Ingvar og Ásu. Edvarð Júlíus Sólnes. Ingvar Emilsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.