Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 27
á Kirkjuteigi hjá Jóhanni Jónssyni 1947-51. Þá varð Gunnar annar eig- enda verslunarinnar: „Ég keypti hana með Stefáni Runólfssyni, for- manni Ungmennafélags Reykjavík- ur, en ég æfði þá frjálsar íþróttir. Tveimur árum síðar keypti ég hans hlut og rak verslunina til 1956.“ Gunnar vann í kjötdeild Clausens á Laugavegi 22 1956-57 og var síðan með eigin rekstur með Jóhanni Jónssyni 1957-60. Hann rak Voga- ver í Gnoðarvogi í félagi við Árna Kjartansson 1960-75 og byggði Hólagarð í Lóuhólum og rak kjör- búðina í verslunarmiðstöðinni þar 1975-90. Gunnar og Sigurður, sonur hans, keyptu Sælgætisgerðina Opal hf., árið 1988 og ráku hana til 1996 er þeir seldu fyrirtækið til Nóa-Síríus. Gunnar og Sigurður höfðu leigt verslunina í Hólagarði frá 1990 en seldu síðan þá fasteign 1998. Þeir stofnuðu Kjötsmiðjuna ehf. árið 1990 og breyttu síðar húsnæði Opals fyrir Kjötsmiðjuna sem Sigurður hefur rekið síðan, en þar starfar Gunnar enn: „Ég er nú ekki á fullu frá morgni til kvölds en er hér í hlutastarfi með tiltekin verkefni sem ég hef gaman af.“ Gunnar starfaði í viðskipta- og neytendanefnd Sjálfstæðisflokksins í mörg ár, sat í stjórn Kaupfélagsins Þórs hf. á Hellu 1986-88, í stjórn Fé- lags kjötverslana 1966-74 og for- maður þess 1967-74, í varastjórn Kaupmannasamtaka Íslands 1970- 71, í stjórn Kaupmannasamtaka Ís- lands 1971-82 og var formaður þeirra 1973-82. Hann sat í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna 1980- 92, var fyrsti formaður Bræðra- félags Árbæjarsafnaðar 1971-73 og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins 1974, félagsendurskoðandi Mat- kaups hf. 1962-86, formaður Mat- kaups hf. 1986-90, formaður Fast- eignavers hf. um skeið frá 1990, í sambandsstjórn VSÍ 1976-85 og í framkvæmdastjórn VSÍ 1982-85. Gunnari hafa verið veittar við- urkenningar frá samtökum kaup- manna allra landa á Norðurlöndum. „Árið 2001 stofnuðum við nokkrir eldri kaupmenn í Reykjavík Kaup- mannaklúbbinn, sem í daglegu tali er nefndur „Lávarðadeildin“. Við komum saman í hverjum mánuði, fáum okkur kaffi, rifjum upp gamla tíma, spjöllum um landsins gagn og nauðsynjar og færum allt til bókar.“ Fjölskylda Gunnar kvæntist 26.12. 1958 Jónu Guðríði Valdimarsdóttur, f. 2.8. 1934, húsfreyju. Foreldrar hennar: voru Valdimar Valdimarsson, f. 15.2. 1906, d. 28.7. 1979, bifreiðastjóri hjá Olíuverslun Íslands, og k.h., Anna Þórarinsdóttir, f. 8.7. 1905, d. 16.1. 1995, húsfreyju. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Gunnars og Jónu Guðríðar eru 1) Anna Lilja, f. 31.10. 1954, hjúkrunarfræðingur, rekstrarhag- fræðingur og ráðuneytisstjóri, bú- sett í Garðabæ en maður hennar er Ingi Karl Ingason hugbúnaðar- ráðgjafi hjá Advania og á hún tvö börn frá fyrra hjónabandi; 2) Sig- urður Valdimar, f. 8.6. 1959, for- stjóri Kjötsmiðjunnar hf., búsettur í Garðabæ, en kona hans er Gyða Björnsdóttir húsfreyja og eiga þrjú börn; 3) Brynja Björk, f. 24.7. 1965, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík en maður hennar er Haukur Valdi- marsson gullsmiður og eiga þau þrjú börn, og 4) Ásta, f. 14.12. 1969, hjúkrunarfræðingur í Kópavogi, en maður hennar er Gunnar Örn Arn- arson kjötiðnaðarmaður og eiga þau fjögur börn. Hálfbróðir Gunnars, sammæðra, er Þórir Ragnarsson, f. 13.9. 1938, fyrrv. bókavörður í Reykjavík. Hálfbræður Gunnars, samfeðra, eru Snorri Örn Snorrason, f. 10.1. 1948, tónlistarkennari og fararstjóri í Reykjavík, og Sigurður Ingvi Snorrason, f. 22.4. 1950, hljóðfæra- leikari í Mosfellsbæ. Foreldrar Gunnars: Snorri Daníel Halldórsson, f. 30.5. 1910, d. 24.5. 1998, leigubílstjóri í Reykjavík, og Lilja Þórðardóttir, f. 15.1. 1911, d. 13.8. 1991, hárgreiðslumeistari Leikfélags Reykjavíkur. Úr frændgarði Gunnars Snorrasonar Gunnar Snorrason Rannveig Brynjólfsdóttir húsfr. Rvík Magnús Pálson húsb. í Rvík Guðrún Magnúsdóttir húsfr. í Rvík Þórður Magnússon bókbindari í Rvík Lilja Þórðardóttir hárgreiðslum. Leik- félags Reykjavíkur Magnhildur Halldórsdóttir húsfr. í Rvík Magnús Magnússon steinsmiður í Rvík Sigurður Yngvi Snorrason klarinettleikari Snorri Örn Snorrason tón- listarkennari og leiðsögumaður Þórir Ragnars- son fyrrv. bókavörður við Þjóðarbók- hlöðu Halldóra Halldórsdóttir húsfr. í Rvík og í Danmörku Svavar Halldórsson sölum. hjá Garðari Gíslasyni hf. Björn Halldórsson leigubílstj. í Rvík. Egill Halldórsson vagnstj. hjá SVR. Guðrún Halldórsdóttir húsfr. í Rvík. Bjarni Halldórsson heildsali í Rvík. Guðrún Bene- diktsdóttir húsfr. í Rvík. Rafn Viggósson húsgagna- bólstrari Halldóra Benedikts- dóttir húsfr. í Rvík Magdalena Benedikts- dóttir húsfr. í Rvík Guðrún Snorradóttir húsfr. í Rvík Bjarni Sigurðsson sjóm. í Rvík Sigríður Bjarnadóttir húsfr. í Rvík Halldór Þórðarson skósmiður í Rvík Snorri Daníel Halldórsson leigubílstj. og frístunda- málari Ólafía Þórarinsdótir húsfr. í Biskupstungum Þórður Halldórsson b. í Arnarholti, Hrauntúni og Hólabrekku í Biskupst. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017 hafðu það notalegt Njóttu þess að gera baðherbergið að veruleika miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 FINGERS 70x120 cm Ryðfrítt stál JAVA 50x120 cm Ryðfrítt stál COMB 50x120 cm Ryðfrítt stál Sesselja Sigmundsdóttir fædd-ist 5.7. 1902, dóttir Sigmund-ar Sveinssonar, bónda á Brúsastöðum, gestgjafa í Valhöll á Þingvöllum og húsvarðar við Mið- bæjarskólann, og Kristínar Sím- onardóttur húsfreyju. Eiginmaður Sesselju var Þjóð- verjinn Rudolf Richard Walter Noah, tónlistarmaður og kennari. Hann varð hægri hönd Sesselju í starfi hennar en var handtekinn af breska hernum 1940 og fékk ekki aftur dvalarleyfi hér fyrr en 1949. Það sama ár gengu þau í hjónaband, en níu ára fjarvera hafði markað sín spor. Hann vildi að þau flyttust út þar sem þau fengju betri skilning á starfi sínu en Sesselja vildi ekki yf- irgefa ævistarf sitt hér. Hann fór af landi brott 1953 og þau sáust ekki aftur, skildu ekki formlega og skrif- uðust á þar til hann lést 1967. Sesselja ættleiddi tvö börn, Hólm- fríði Sigmunds, f. 1932, og Elfar Björn Sigmundsson, f. 1943, og ól upp 14 fósturbörn. Lífsstarf Sesselju var samfelld hugjónabarátta sem bar vott um mikla fórnfýsi, dugnað og kjark. Ung ákvað hún að helga starfskrafta sína veikum og umkomulausum börnum. Með það í huga stundaði hún nám í uppeldisfræði og barna- hjúkrun í Þýskalandi og Sviss. Sesselja stofnaði barnaheimili að Sólheimum á afmælisdaginn sinn ár- ið 1930. Heimilið var sumarbúðir sem saman stóðu af nokkrum tjöld- um. Nú eru Sólheimar rúmlega hundrað manna vistvænt byggð- arhverfi fatlaðra einstaklinga og ófatlaðra þar sem starfrækt eru sjálfstæð fyrirtæki, vinnustofur og þjónustumiðstöð fyrir íbúana. Sesselja var auk þessa merkilegur frumkvöðull lífrænnar ræktunar á Norðurlöndum og hún hefur oft ver- ið nefnd fyrsti íslenski umhverfis- sinninn. Árið 1990 kom út bókin Mér leggst eitthvað til – Saga Sesselju Sigmundsdóttur og Sólheima, eftir Jónínu Michaelsdóttur. Sesselja lést 8.11. 1974. Merkir Íslendingar Sesselja Sig- mundsdóttir 95 ára Rannveig Jónsdóttir 90 ára Einar Karlsson Guðrún Marta Jónsdóttir Hrefna Guðmundsdóttir Þorbjörg Sigtryggsdóttir 85 ára Ásdís Sörladóttir Gunnar Snorrason Þorbjörg Ólafsdóttir 80 ára Edda Magnúsdóttir 75 ára Bjarni Hannesson Eiríkur Sigurðsson Garðar Halldórsson Margrét Ólafsdóttir Rannveig Árnadóttir 70 ára Garðar Svavarsson Ingibjörg Þorgilsdóttir Kristín E. Þórólfsdóttir Ólafía Kristín Jónsdóttir Ólafur Guðmundsson Pétur Jökull Hákonarson Regína Pétursdóttir Þórdís Guðmundsdóttir 60 ára Ásta Gunnarsdóttir Dís Kolbeinsdóttir Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Jón Þór Kristmannsson Kolbrún Jónsdóttir Ólafur Karl Óttarsson Steinar Ástráður Jensen Thi Kim Nguyen Valdís Viðarsdóttir 50 ára Bryndís Marteinsdóttir Guðrún Eiríksdóttir Helga Hafsteinsdóttir Helgi Hilmarsson Henrik Eyþór Thorarensen Ingibjörg Rúna Jónsdóttir Katrín Helgadóttir Magnús Gunnarsson Ólafur Georgsson Sigurður Jóhannsson Sigurður R. Guðjónsson Torbjörn Andersen Viktoría V. Guðbjörnsdóttir Vilberg Margeirsson Þórunn G. Jónsdóttir 40 ára Aníta Mist Sigfúsdóttir Birna H.O. Ómarsdóttir Dorota Kardas Egill Pálsson Elías Einar Guðmundsson Freyja Hilmisdóttir Gunnar Axel Hermannsson Gunnar Ingvi Þórisson Ingunn M. Ágústsdóttir Jamison Kenneth Turnbull Jónhallur B. Benediktsson Juljana Sulaj Katarzyna Zardzin Kolbrún Ottósdóttir Lýdía Huld Grímsdóttir Róbert Örn Hjálmtýsson Seema Gurung Sigurður Jónsson Stefanía Guðmundsdóttir Steinunn Elsa Bjarnadóttir 30 ára Benedikt Guðmundsson Birgir Freyr Jónsson Birna Dís Eiðsdóttir Luis Pascual B. Sanchez Magnús Bragi Ingólfsson Michal Stypulkowski Sigurgeir Smári Jónsson Tanja Podréziené Grischott Til hamingju með daginn 30 ára Magnús ólst upp á Akureyri, býr þar, lauk prófi í lögfræði frá HÍ og er lögfræðingur hjá Rík- isskattstjóra á Akureyri. Maki: Kristjana Páls- dóttir, f. 1984, kennari við VMA. Börn: Páll Magnússon, f. 2011, og Arndís Margrét Magnúsdóttir, f. 2012. Foreldrar: Ingólfur Bragason, f. 1955, og Arn- dís H. Magnúsdóttir, f. 1959. Magnús Bragi Ingólfsson 30 ára Birna ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BA-prófi í ritlist og heim- speki og er að ljúka MA- prófi í mannauðsstjórnun. Maki: Abdallah E.S. Als- hbaki, f. 1987, íslensku- nemi. Börn: Feras Jakob Als- hbaki, f. 2014, og Laila Sól Alshbaki, f. 2016. Foreldrar: Eiður Páll Sveinn Kristmannsson, f. 1968, og Gná Guðjóns- dóttir, f. 1963. Birna Dís Eiðsdóttir 30 ára Birgir Freyr ólst upp í Reykjavík, býr þar og starfar í frístundamið- stöðinni Vinaseli. Maki: Aga Em Maziara, f. 1990, starfsmaður á Hót- el Borg. Bróðir: Sverrir Örn Jóns- son, f. 1981, sjúkraflutn- ingamaður. Foreldrar: Jón Gunn- arsson, f. 1957, og Sigríð- ur Guðný Sverrisdóttir, f. 1959. Þau eru búsett í Reykjavík. Birgir Freyr Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.