Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017 Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Við Örn höfum oft rætt hvað það væri gaman að fara saman í smá- túr um landið og ákváðum loks að láta verða að því núna í júlí,“ segir Valdimar Guðmundsson tónlistar- maður sem hefur í dag tónleika- ferð um landið ásamt Erni Eld- járn. Alls ætla þeir að koma við á þrettán stöðum á nítján dögum og fyrsti viðkomustaður er Frysti- klefinn í Rifi. „Við Örn höfum spilað saman í langan tíma við hin ýmsu tilefni. Bæði höfum við komið fram tveir saman og svo hefur hann verið bassaleikari hljómsveitarinnar minnar í um tvö ár,“ segir Valdi- mar. Um lögin sem þeir ætla að flytja fyrir landsmenn segir Valdi- mar þá ætla að taka helstu lögin sem hann hefur sungið með hljóm- sveitinni sinni eða öðrum í bland við uppáhaldslög þeirra Arnar. „Við tökum lög sem við fílum og setjum í okkar búning. Þau verða úr öllum áttum, við Örn erum báð- ir með mjög breiðan tónlistar- smekk og svo þetta verður fjöl- breyttur lagalisti.“ Íslendingar góðu vanir Meðal staða sem þeir félagar ætla að heimsækja eru Drangsnes, Patreksfjörður, Hjalteyri, Seyðis- fjörður og Vopnafjörður. „Við höf- um spilað áður á sumum þessara staða, fundist skemmtilegt og vilj- um fara aftur. Svo hefur Örn talað fallega um einhverja þessara staða sem ég hef aldrei heimsótt eins og Vopnafjörð og Seyðisfjörð. Það verður gaman að koma þangað í fyrsta skipti til að spila,“ segir Valdimar. „Vonum að fólk verði hresst með okkur í sumar“  Valdimar Guðmundsson og Örn Eld- járn hefja tónleikaferðalag um landið „Hvað finnst ykkur um að stofna tónlist- arhátíð þar sem karlar eru ekki velkomnir þar til þeir hafa lært að haga sér?“ tísti sænski uppstand- arinn og útvarps- konan Emma Knyckare sl. sunnudag. Tillaga hennar kom dag- inn eftir að stjórnendur Bråvalla- tónlistarhátíðarinnar í Svíþjóð til- kynntu að hátíðin yrði ekki haldin að ári sökum mikils kynferðisof- beldis og fjölda nauðgana á hátíð- inni í ár. Samkvæmt frétt SVT bár- ust lögreglunni 23 tilkynningar um kynferðisofbeldi og fjórar nauðg- anir á hátíðinni. „Ég er búinn að fá nóg. Ofbeldið rústar hátíðinni og tónlistarástinni, en fyrst og fremst þolendum,“ segir Folket Koopman, skipuleggjandi hátíðarinnar, í yfirlýsingu. „Mér finnst ótækt að helmingur landsmanna þurfi að óttast um vel- ferð sína á tónlistarhátíðum. Lausn- in er að bjóða á næsta ári upp á rokkhátíð þar sem konur geta fund- ið til öryggis,“ segir Emma Knyck- are í samtali við Dagens Nyheter. Aðeins fyrir konur Emma Knyckare Óskarsverðlauna- leikkonan Olivia de Havilland, sem verður 101 árs á laugardag, hefur farið í mál við FX- sjónvarpsstöðina og Ryan Murphy framleiðanda vegna sjónvarps- þáttaraðarinnar Feud: Bette and Joan þar sem sjónum er beint að per- sónulegri óvild Bette Davis og Joan Crawford. Frá þessu greinir BBC. Í samtali við The Los Angeles Times, segir Havilland, sem frægust er fyrir leik sinn í Gone With the Wind, að þáttaröðin leggi henni orð í munn sem séu ónákvæm og andstæð orð- sporinu sem hún hafi öðlast á rúm- lega 80 ára ferli þar sem hún hafi ávallt neitað að taka þátt í slúðri um aðra leikara. Havilland, sem er eina sögupersóna þáttanna sem enn er á lífi, segir að framleiðendur hafi ekk- ert ráðfært sig við hana. Enginn slúðurberi Olivia de Havilland Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is „Þetta verður eins konar maraþon hjá okkur, að reyna að taka upp eins margar vínylplötur og hægt er,“ segir tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti Einarsson, sem gengur und- ir listamannsnafninu Ásgeir, um út- varpsverkefnið Beint á vínyl sem hann stendur fyrir í samvinnu við RÚV og Rás 2. Í dag verður Ásgeir í beinni út- sendingu á RÚV 2 og RÚV.is í svo- kölluðu hægvarpi stanslaust í heilan sólarhring. Í útsendingunni mun Ás- geir taka einfaldar og öðruvísi út- gáfur af eigin lögum og munu góð- kunn lög eftir aðra listamenn jafnvel fá að fljóta með. Ásgeir ætlar að taka upp eins margar 7" vínylplötur og mögulegt er á einum sólarhring. „Eins og fluga á vegg“ „Hugmyndin kom bara út af því að það er maður þarna við hliðina á okkur í upptökuverinu Hljóðrita að nafni Úlfar Jacobsen sem er búinn að fást við vínylgerð lengi og mig hefur alltaf langað til að gera eitt- hvað með honum,“ segir Ásgeir. „Síðan kemur þetta í kjölfarið á þessari hægvarpspælingu sem er búin að vera í gangi síðasta ár. Við reynum að tvinna þetta saman.“ Hægvarp eða Slow TV er fyr- irbæri sem á rætur að rekja til norska ríkisútvarpsins, NRK. Þar hefur sömu athöfninni; t.d. prjóna- skap eða fuglabjargi; verið útvarpað tímunum saman. Svipað hefur áður verið reynt í íslensku útvarpi, en fyr- ir um ári var beinni útsendingu af hringferð hljómsveitarinnar Sigur Rósar útvarpað yfir landið samfellt í heilan sólarhring. „Upphaflega vildum við bara taka upp rosalega margar vínylplötur, ekki í neinu maraþoni heldur bara yfir einhvern tíma – einhverja daga, vikur og safna upp hundruðum lítilla vínylplatna sem við gætum selt. Hvert eintak væri þá einstakt og enginn með eins plötu,“ segir Ás- geir. „Svo myndum við ekki einu sinni eiga upptökuna á tölvunni. Þeir sem fengu plöturnar væru þeir einu sem gætu hlustað á þær. Síðan þró- aðist þetta samhliða hægvarpinu með Sigur Rós. Pælingin varð að hafa beina útsendingu í sólarhring af okkur að vinna. Það verða engin samskipti við hlustendur eða áhorf- endur. Þetta verður ekki eins og sjónvarpsþáttur heldur myndavél eins og fluga á vegg.“ Alþjóðleg fjársjóðsleit Ásgeir segir það í meira lagi óvenjulegt að tónlist sé tekin beint upp á vínylplötu – venjulega sé unn- ið að upptökunni í margar vikur áð- ur en vínylgerðin fái hana í hend- urnar. „Ég held að þetta tíðkist ekki mikið. Það er alveg einstakt af því að ef ég ruglast eitthvað þá verður vínylplatan bara þannig. Þá fær kannski einhver vínylplötu með ein- hverju hálfkláruðu lagi.“ Ásgeir mun taka við ýmsum gest- um úr tónlistarsenunni á meðan út- sendingin stendur yfir. „Það verða nokkrir hljóðfæraleikarar þarna sem ég hef verið að vinna með. Ég hugsa að Steini bróðir komi þarna og Tómas Jónsson sem hefur verið að spila með mér í hljómsveit. Ég held að Guðmundur Pétursson hafi ætlað að mæta. Ég talaði við nokkra og þeir geta komið og farið að vild. Þegar þeir koma rennum við bara í eitthvað. Þetta verður ekkert æft. Þeir eru nú svo góðir hljóðfæraleik- arar og geta spunnið eitthvað.“ Eftir að plöturnar hafa verið tekn- ar upp verður þeim dreift til útgáfu- fyrirtækja sem Ásgeir er í sambandi við víðs vegar um heim og settar í eins konar ratleik eða alþjóðlegan fjársjóðsleik. Útsending Beint á vínyl byrjar í dag kl. 17 og mun standa í einn sól- arhring. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni á vef RÚV, á RÚV-2 og á YouTube-rás Ásgeirs. Vínyll daginn út og inn  Tónlistarmaðurinn Ásgeir tekur upp lög á eins margar 7" vínylplötur og honum er mögulegt á einum sólarhring í beinni útsendingu á RÚV og Rás 2 Morgunblaðið/Eggert Maraþon „Þetta verður eins konar maraþon hjá okkur, að reyna að taka upp eins margar vínylplötur og hægt er,“ segir tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti Einarsson sem gengur undir listamannsnafninu Ásgeir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.