Morgunblaðið - 05.07.2017, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017
Bítillinn Paul McCartney hefur náð
samkomulagi við Sony-fyrirtækið
um útgáfuréttinn að tónlist Bítl-
anna. Frá þessu greinir The Gu-
ardian. McCartney höfðaði í janúar
mál gegn Sony-fyrirtækinu sem á
réttinn fyrir bandarískum dóm-
stólum og fór fram á að fá aftur út-
gáfuréttinn að 267 lögum Bítlanna.
Seint í síðustu viku upplýsti
Michael Jacobs, lögmaður McCart-
ney, Edgardo Ramos, dómara máls-
ins, um að deiluaðilar hefðu „útkljáð
málið með trúnaðarsamningi.“ Ja-
cobs fór fram á það við dómarann
að málinu væri vísað frá dómi. Sam-
kvæmt bandarískum lögum frá
árinu 1976 geta listamenn sagt upp
útgáfusamningum og endurheimt
höfundarrétt sinn 35 árum eftir
gerð samningsins eða eftir 56 ár
þegar um er að ræða lög sem samin
voru fyrir 1978. Breskur dómstóll
komst í desember að þeirri nið-
urstöðu að bresk höfundarréttarlög
giltu um breska listamenn í Banda-
ríkjunum, en í Bretlandi geta út-
gáfufyrirtæki átt útgáfurétt að tón-
list í allt að 70 ár eftir lát
listamanns. Á næsta ári eru liðin 56
ár síðan fyrsta smáskífa Bítlanna,
„Love Me Do“ kom út.
REUTERS
Bítillinn Paul McCartney hefur góða ástæðu til að gleðjast.
Paul McCartney og
Sony ná samkomulagi
Forsvarsmenn Warner Bros og dán-
arbús J.R.R. Tolkiens hafa komist að
samkomulagi í 80 milljóna Banda-
ríkjadala dómsmáli sem snerist um
stafrænan söluvarning í tengslum
við Hringadróttinssögu og Hobbit-
ann.
„Það gleður deiluaðila að þeim
hafi tekist að leysa úr ágreiningnum
með vinsamlegum hætti og þeir
hlakka til að vinna saman í framtíð-
inni,“ segir í tilkynningu sem War-
ner Bros sendi The Hollywood Re-
porter. Samkvæmt frétt The New
York Times um málið hyggjast deilu-
aðilar ekki greina frá innihaldi
samkomulagsins.
Í dómsmálinu sem dánarbú Tolki-
ens höfðaði 2012 var því haldið fram
að Warner Bros stæði ekki við sam-
komulag sem gert hafði verið 1996
með þeim afleiðingum að arfleifð
Tolkiens hlyti skaða af. Það sem fór
sérstaklega fyrir brjóstið á forsvars-
mönnum dánarbúsins var markaðs-
setning á netfjárhættuleiknum Lord
of the Rings: The Fellowship of the
Ring: Online Slot Game sem dánar-
búið frétti fyrst af í gegnum ruslpóst.
„Aðdáendur hafa opinberlega tjáð
áhyggjur sínar af því að Hringa-
dróttinssögu sé spyrt saman við sið-
ferðislega vafasaman (og tvímæla-
laust óbókmenntalegan) netheim og
fjárhættuspil,“ segir í kærunni. Þar
kemur fram að dánarbúið hefði að-
eins heimilað Warner Bros að selja
„áþreifanlega persónulega hluti“ á
borð við styttur, dúkkur, borðbúnað
og föt. Dánarbúið heimilaði aldrei
„raftæknilega eða stafræna notkun.“
Warner Bros semur við dánarbú Tolkiens
Rithöfundurinn J.R.R. Tolkien.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ósk mín er sú að a.m.k. einn skúlp-
túrinn verði eftir á Íslandi til fram-
búðar,“ segir norska listakonan
Torild Storvik Malmedal um níu
stóra marmara- og glerskúlptúra
sem hún sýnir um þessar mundir í
Nauthólsvík. „Sjö skúlptúrum er
raðað upp í hring að fyrirmynd forn-
minjanna Stonehenge í Bretlandi
með einn skúlptúr í miðjuna sem er
eins og lítill hellir. Undirlagið sam-
anstendur af svörtu muldu hrauni
sem myndar kontrast við hvítu
skúlptúrana,“ segir Malmedal og
bendir á að einum skúlptúrnum hafi
verið komi fyrir framan við veitinga-
staðinn Nauthól.
Yfirskrift sýningarinnar er Capt-
ure in Blue eða Fangað í blátt og
hefur hún nú þegar ratað víða. „Það
er bæði dýrt og vandasamt að
ferðast með skúlptúrana milli landa,
en sýningin er á ákveðnu ferðalagi
frá norðri til suðurs. Marmarinn í
verkunum er upprunninn frá annars
vegar Eide á vesturströnd Noregs
og Carrare á Ítalíu þaðan sem
Michelangelo fékk sinn marmara á
sínum tíma,“ segir Malmedal sem
hefur margra ára reynslu af því að
vinna í marmara. „Það eru mörg ár
síðan ég fór að þróa skúlptúrana í
minni gerð og þá þegar lét ég mig
dreyma um að stækka verkin,“ segir
Malmedal, en skúlptúrarnir í Naut-
hólsvík eru um þriggja metra háir.
Minnir á ísinn sem bráðnar
Sýningin hefur nú þegar ratað
m.a. til Finnmerkur, Þrándheims og
Svalbarða. Frá Íslandi liggi leiðin
síðan til Fredrikstad í Noregi, síðar
til Danmerkur og loks til Ítalíu. „Á
flestum stöðum höfum við þurft að
hanna sérstaka lýsingu til að verkin
nytu sín, en þess þurfti ekki á Ís-
landi sökum þess að bjart er allan
sólarhringinn yfir sumarið,“ segir
listakonan sem var viðstödd opn-
unina fyrir skemmstu.
„Markmið sýningarinnar er að
minna áhorfendur á þær breytingar
sem eru að verða á náttúrunni
vegna hlýnunar jarðar. Skúlptúr-
arnir minna á jöklana sem eru að
hverfa, á ísinn sem er að bráðna og
verður horfinn í framtíðinni. Ég
byrjaði að vinna verkin í núverandi
stærð 2015 og síðan þá hefur um-
ræðan um hlýnun jarðar orðið sífellt
brýnni,“ segir Malmedal sem leitaði
sér m.a. innblásturs í íshelli í jökli á
Svalbarða. „Ísinn skapar ein-
staklega fallega liti og mynstur. Ég
reyni að fanga þessa töfrastund íss-
ins í miðju bráðnunarferli,“ segir
Malmedal og tekur að hún sé ekki
síður upptekin af fagurfræði skúlp-
túranna.
Allar nánari upplýsingar um sýn-
inguna, sem stendur til 16. ágúst,
má nálgast á vefnum arttorild.com.
„Reyni að fanga
töfrastund íssins“
Torild Storvik Malmedal sýnir skúlptúra í Nauthólsvík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heillandi Marmarinn í skúlptúrum Malmedal kemur frá Eide á vesturströnd Noregs og Carrare á Ítalíu.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástSnickers vinnuföt í
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 8SÝND KL. 10.20
SÝND KL. 5, 8, 10. 40
2D KL. 4, 6
3D KL. 4
ENSK TAL.
KL. 6, 8, 10