Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 186. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Lést í umferðarslysi
2. N1 bjargaði viðskiptavini Costco
3. Villimennskutexta Kúkú …
4. Andlát: Þórir Jónsson
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sænska tríóið Krilja heldur tón-
leika í Norræna húsinu í kvöld kl. 20.
Krilja er sérstakur gestur nýrrar tón-
leikaraðar Norræna hússins og flytur
hefðbundna sígaunatónlist frá Rúss-
landi og Austur-Evrópu. Mörg lag-
anna eru frá 19. öld og sveiflast milli
ljóðrænnar melankólíu og funheitrar
ákefðar, eins og því er lýst í tilkynn-
ingu. Textar laganna eru á róma-
tungumáli eða rússnesku og fjalla
m.a. um sorg, fátækt, eymd, ást og
ástríðu. Útsetningarnar eru eigin
túlkanir og spuni tónlistarmannanna,
söngkonunnar Maritu Johansson,
Jonas Liljeström fiðluleikara og
gítarleikarans Emils Pernbladl.
Sígaunatónlist í
Norræna húsinu
Hjómsveitin Ahmad Jamal Project
kemur fram á tónleikum djassklúbbs-
ins Múlans á Björtuloftum í Hörpu í
kvöld kl. 21. Norski kontrabassaleik-
arinn Andreas Dreier leiðir á tónleik-
unum tríó sitt í flutningi á tónlist sem
innblásin er af píanóleikaranum
Ahmad Jamal og tríói hans í tónleika-
ferð þess, Cross County Tour, sem
stóð yfir á árunum 1958-1961.
„Með því að staðfæra þetta píanó-
tríó yfir í gítartríó opnast dyr inn í nýj-
an hljóðheim og litapalettu. Elegans,
cool og jazz þar sem að-
almarkmiðið er að
skemmta sér,“ segir í til-
kynningu um
tónleikana.
Með Dreier
leika gít-
arleikarinn
Andrés Þór
Gunn-
laugs-
son og
Einar
Scheving
trommu-
leikari.
Tríó Dreier innblásið
af tríói Ahmads Jamals
Á fimmtudag Suðaustan og austan 8-15 m/s, en heldur hægari
vindur eftir hádegi. Þurrt norðanlands framan af degi, annars víða
rigning eða skúrir. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Norðvesturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 8-13 m/s og rigning
með köflum. Hægari breytileg átt á Norðurlandi og rofar til, en lík-
ur á skúrum síðdegis. Yfirleitt þurrt austanlands. Hiti 8 til 17 stig.
VEÐUR
Knattspyrnumennirnir Arn-
ór Ingvi Traustason og Guð-
laugur Victor Pálsson eru
báðir á leið á nýjar slóðir.
Arnór Ingvi er á leið frá Rap-
id Vín og mætti til Aþenu í
gær til þess að ganga frá
lánssamningi við lið AEK á
meðan Guðlaugur Victor
Pálsson er á leið í lækn-
isskoðun hjá FC Zürich í
Sviss eftir að hafa fallið úr
efstu deild með Esbjerg í
Danmörku í vor. »1
Fara til Sviss og
til Grikklands
„Þetta hefur eiginlega gerst of hratt
hjá okkur. Þar fyrir utan var ævin-
týralegt að við tryggðum okkur sætið
í lokaumferðinni. Fyrst og fremst var
það gaman og nú tekur
næsta verkefni við
sem verður afar
krefjandi fyrir
alla, leik-
menn jafnt
sem félag-
ið,“ sagði
Aðalsteinn
Eyjólfs-
son,
þjálfari
þýska
hand-
knatt-
leiks-
liðsins
TV Hütten-
berg. »4
Aðalsteinn á siglingu
með Hüttenberg
„Það hefði ekki skipt neinu á móti
hverjum við hefðum lent. Þetta eru
allt frábær lið sem eru deild ofar en
við og vanir hraðari leik og meiri
gæðum. Við erum að rembast við að
fara upp á það stig,“ segir Kristófer
Sigurgeirsson, þjálfari Leiknis
Reykjavík í 1. deild, sem mætir Ís-
landsmeisturum FH í undanúrslitum
Borgunarbikarsins í fótbolta. »2
Leiknismenn hvergi
bangnir í bikarnum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Síðasta sporið hefur verið stigið í
Ballettskóla Sigríðar Ármann í
Reykjavík eftir 65 ára farsælt
starf. Ásta Björnsdóttir skólastjóri
hefur ákveðið að láta nú staðar
numið, en hún hefur kennt þar í 35
ár og stýrt skólanum síðan móðir
hennar hætti árið 1997.
Sigríður Ármann, móðir Ástu,
stofnaði skólann árið 1952. „Hún
var einn af frumkvöðlum ball-
ettsins á Íslandi,“ segir Ásta, en
Sigríður samdi meðal annars
fyrsta íslenska ballettinn, Eldinn,
við tónlist eftir Jórunni Viðar og
hlaut Grímuna 2004 fyrir frum-
kvöðulsstarf á sviði danslistar.
Unnu saman í 20 ár
Mæðgurnar störfuðu saman í
skólanum í 20 ár og mörkuðu hug-
myndafræði hans með það að leið-
arljósi að ballett væri uppbyggileg,
spennandi og skemmtileg listgrein.
Eins og gefur að skilja hefur mik-
ill fjöldi nemenda frá þriggja til
tuttugu og fimm ára stundað nám í
skólanum undanfarin 65 ár auk
þess sem Ásta útskrifaði nokkra
kennara og fékk enska prófdómara
til þess að dæma og útskrifa kenn-
araefnin, sem hún hafði verið með
í stífu námi og þjálfun.
„Það sem stendur upp úr er
gleðin við að kenna öllum þessum
börnum og ungu fólki og sýna
þeim fram á töfra ballettsins,
kenna þeim hvað hann er skipu-
lagður og kröfuharður en um leið
byggður á skemmtilegum vinnu-
aðferðum, vinna með þeim til þess
að verða alltaf betri og betri,“ seg-
ir Ásta. „Það er mikil gleði fólgin í
því að kenna þeim sem tilbúin eru
að leggja á sig eins mikla vinnu og
þarf til þess að ná árangri í ball-
ett.“
Ballett hefur verið sem rauður
þráður í lífi Ástu. „Ég fékk ballett
með móðurmjólkinni og fylgdist
oft með mömmu kenna ballett áð-
ur og því var nærtækt að fara
sömu braut,“ segir Ásta, sem fór
meðal annars í kennaranám í ball-
ett til Englands, þar sem hún út-
skrifaðist 1982. „Ballett hefur ver-
ið mitt líf.“
Ásta leggur áherslu á að skólinn
hafi gengið mjög vel, sérstaklega
nú síðustu ár, „en hætta skal leik
þá hæst stendur. Þessi ákvörðun
gerist samt ekki átakalaust í sál-
inni og ég þarf að taka á honum
stóra mínum, en þetta er líka
spurning um að þora að taka
stökkið“, segir hún. „Ég ætla að
njóta þess að taka mér frí í nokkra
mánuði áður en ég ákveð hvaða
spor ég stíg næst.“
Næstu spor utan ballettsins
Ballettskóli Sig-
ríðar Ármann
heyrir sögunni til
Ljósmyndir/Guðni B. Guðnason
Ballettskóli Sigríðar Ármann Frá 65 ára afmælissýningu skólans í Borgarleikhúsinu í ár. Þessum kafla er lokið.
Mæðgur Sigríður Ármann og Ásta
Björnsdóttir unnu saman í 20 ár.
Þrjár kynslóðir Sigríður Tryggvadóttir, Hafdís Björk Jónsdóttir og Mjöll
Jónsdóttir hafa allar stundað nám í Ballettskóla Sigríðar Ármann.