Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 1
Leyndarmálinum landið
Fötin í
útileguna
Tólf Íslendingar segja frá leynistöðunum sínum víða um
land og því sem er ómissandi að prófa á ferðalaginu 14
9. JÚLÍ 2017SUNNUDAGUR
ga kvenna-attspyrnunnar
Það er hægt aðvera bæði töffog hlýtt 26 Sa
kn
Sirkus fyrir allaSirkus Íslandstjaldar öllu til ísumar meðþrjár glænýjarsýningar 16 Vagga knatt-spyrnu kvennaá Íslandi er áÍsafirði 4
L A U G A R D A G U R 8. J Ú L Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 163. tölublað 105. árgangur
SVARTUR
DAUÐI, ROKK
OG RAPP
ÁSTRÍÐAN
ÞARF AÐ VERA
FYRIR HENDI
KOLBEINN RENNIR LISTAVERK 12EISTNAFLUG Í NESKAUPSTAÐ 45
Aldraðir
þurfa að
leita annað
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Þrjár félagsmiðstöðvar eldri borgara verða
lokaðar í þrjár til fjórar vikur í sumar vegna
manneklu. Ákveðið var á fundi borgarráðs
22. júní að afnema sumarlokanir á félags-
miðstöðvum eldri borgara en ekki tókst að
standa við það. Bólstaðarhlíð 43, Dalbraut
18-20 og Slétturvegur 11 verða allar lokaðar
í sumar og þeirri síðastnefndu verður lokað
strax á mánudag. „Þetta eru allt saman
staðir sem eldri borgarar venja komur sínar
á og margir eru ekki akandi og eiga erfitt
með að fara annað í mat eða sækja matar-
þjónustu,“ segir Gísli Jafetsson, fram-
kvæmdastjóri Félags eldri borgara í
Reykjavík, en borgin mun bjóða eldri borg-
urum upp á heimsendan mat. Að sögn S.
Björns Blöndal, formanns borgarráðs, mun
akstursþjónusta eldri borgara vera til staðar
til að koma eldri borgurum á aðrar félags-
miðstöðvar.
Félagslega hliðin nauðsynleg
Gísli segir að það sé miður að tilkynnt sé
um lokunina með svo stuttum fyrirvara enda
hafi félaginu verið tilkynnt eftir borgarráðs-
fund 22. júní að ekki yrði af sumarlokunum.
„Það er sérstakt að tilkynna þetta núna
þegar komið er fram í júlímánuð. Okkur hjá
félaginu var tilkynnt að opið yrði í styttri
tíma en að það yrði ekki lokað,“ segir Gísli.
Hann bætir jafnframt við að þrátt fyrir að
hægt sé að fá heimsendan mat sé félagslega
hliðin á félagsmiðstöðvunum afar nauðsyn-
leg. „Þetta er svo stór félagslegur þáttur hjá
fólki, að koma saman í hádeginu og hittast.
Þetta er stór breyting á rútínunni hjá fjölda
fólks,“ segir Gísli. Berglind Magnúsdóttir,
skristofustjóri velferðarsviðs, segir að sviðið
hafi gert allt sem mögulegt var til að reyna
að manna stöðurnar.
MÞremur félagsmiðstöðvum eldri... »4
Þrjár félagsmiðstöðvar eldri
borgara verða lokaðar í sumar
Þegar hásumartíðin kallar á fólk út úr húsum sín-
um er sannarlega misjafnt hvað það tekur sér fyr-
ir hendur. Sumir fara á handahlaupum um græna
grasbala á meðan aðrir leggjast flatir og glápa
upp í himininn. Svo eru það þeir sem nýta bjart-
viðrið til að lesa góða bók, á göngu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Misjafnt hafast mennirnir að
Blíðviðri og ganga nýtt til bóklesturs
„Það verður að
fara eftir þessu,
það er engin önn-
ur leið,“ segir
Halldór Benja-
mín Þorbergsson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins, um
tilmæli í dreifi-
bréfi Fjármála-
eftirlitsins þar sem eftirlitið ítrekar
að sjóðfélagar sem ráðstafa hluta í
séreignarsjóð ráði sjálfir í hvaða sér-
eignarsjóð það verður.
Eins og Morgunblaðið hefur
fjallað um hefur verið ágreiningur
um það hvort hægt sé að leggja svo-
kallaða tilgreinda séreign inn í ann-
an sjóð en þann sem tekur við skyld-
ugreiðslum.
„Þetta er þeirra túlkun á þessu, en
það liggur alveg ljóst fyrir að mark-
mið samningsaðilanna, SA og ASÍ, í
kjarasamningum var að þetta við-
bótariðgjald myndi fara í skyldu-
tryggingarsjóðina. Það liggur hins
vegar fyrir að það er ekki enn búið
að breyta lífeyrissjóðslögunum eins
og til stóð að gera í vor, en stendur
til að gera á haustþingi. Á meðan svo
er, þá standa málin svona, en skiln-
ingur samningsaðila er sá sami. Það
er ekkert nýtt í þessu. Þetta hefur
legið fyrir frá fyrstu mínútu. Túlk-
unin er óskýr þar til lögunum hefur
verið breytt.“ »20
Verða að
fylgja FME
Óskýr túlkun á
tilgreindri séreign
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landsvirkjun hefur tryggt sér næga
gufu fyrir báðar vélar Þeistareykja-
virkjunar og talsvert umfram það.
Boranir hafa gengið vel og telja sér-
fræðingar fyrirtækisins að borhol-
urnar átján gefi gufu til framleiðslu á
að minnsta kosti 115 megavöttum
rafmagns en vélarnar tvær sem tekn-
ar verða í notkun í haust og á fyrri
hluta næsta árs framleiða 90 MW.
Farið er að sjá fyrir endann á
byggingu Þeistareykjavirkjunar.
Báðar vélasamstæðurnar eru komnar
á sinn stað og sú fyrri er nánast tilbú-
in til prófana sem geta þó ekki hafist
fyrr en í september þegar virkjunin
verður tengd við meginflutningskerfi
landsins.
Þær borholur sem hafa verið látnar
blása vegna afkastamælinga duga
fyrir 85 megavatta virkjun. Vantar
því aðeins gufu fyrir 5 MW til við-
bótar. Þá á eftir að mæla fjórar holur
sem þegar hafa verið boraðar og lofa
góðu og síðustu holuna í þessari lotu
sem verður boruð á næstu vikum.
Sérfræðingar fyrirtækisins telja að
holurnar átján sem boraðar hafa ver-
ið gefi 115 MW, varlega áætlað. »14
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þeistareykir Sautján af átján vinnsluholum virkjunarinnar gefa vel af sér.
Unnið er að því að leggja gufuleiðslur frá síðustu holunum.
Næg gufa fyrir báðar vélarnar
Verið að bora síðustu vinnsluholuna
á Þeistareykjum fyrir fyrsta áfanga
Stefán Eiríksson borgarritari segir
að Veitur ohf. verði að svara því hvort
lögum um upplýsingarétt um um-
hverfismál hafi verið brotin þegar
ákveðið var að upplýsa almenning
ekki um bilun í neyðarloku í dælustöð
fyrirtækisins við Faxaskjól. Í 10.
grein laganna segir að stjórnvöldum
sé ævinlega skylt að hafa frumkvæði
að upplýsingagjöf sé ástæða til að
ætla að frávik vegna mengandi efna í
umhverfi geti haft í för með sér hættu
eða skaðleg áhrif á umhverfi eða
heilsu fólks eða dýra.
Stefán segist ekki geta svarað því
hvenær æðstu embættismönnum
borgarinnar var gert viðvart um bil-
unina.
„Ég var allavega ekki með upplýs-
ingar um þetta fyrr en það kom fram
í fjölmiðlum.“ Að sögn Stefáns var
lauslega rætt um málið á fundi
borgarráðs síðastliðinn fimmtudag.
Ekki hefur náðst í Dag B. Eggerts-
son borgarstjóra vegna málsins þrátt
fyrir margítrekaðar tilraunir. »2
Veitur svari
fyrir meint
lögbrot
Borgarritari frétti
af málinu í fjölmiðlum