Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019
Valin verk úr safneign
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER
Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017
STEINA - ELDRÚNIR (PYROGLYPHS) 4.3. - 20.8.2017
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017
Opið daglega kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
Sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar.
Sjá dagskrá á heimasíðu safnsins www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Safnið er lokað helgina 8.-9. júlí vegna framkvæmda.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Fuglarnir, fjörðurinn og landið í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Hugsað heim á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14.öld
Spegill samfélagsins 1770
Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga frá 10-17.
Í verksmiðjunni á Hjalteyri verður í
dag, laugardag, klukkan 14 opnuð
sýningin Les silences de la fumée /
Kyrrð reyksins. Samtímis hefjast
sýningar á kvikmyndaverkinu
Road Movie eftir
Catherine Bay.
Sýningarstjóri
Kyrrðar reyksins
er David Zehla
og á sýningunni
eru verk eftir
frönsku og ís-
lensku lista-
mennina Noël
Dolla, Halldór
Ásgeirsson, Dav-
id Zehla, Eggert
Pétursson, Ragnhildi Láru Weiss-
happel, Jean-Charles Michelet og
Juliette Dumas. Meginþættir í sam-
setningu verka þeirra allra er skýr
sýn á frumþætti náttúrunnar, hvort
heldur er „eldur, grjót ellegar
plönturíki og vatn, allt myndar
þetta landslag. Hlutar náttúrunnar
í haldi, sem bergmálar okkar tíma.“
Kvikmyndin Road Movie fyllir
flokk gjörninga og dansverka um
karakterinn Mjallhvíti sem Cather-
ine Bay og samstarfsfólk hennar
hafa unnið að síðan 2002. Listakon-
an skerpir og fágar listræna nálgun
sína að heimi þar sem karakter
Mjallhvítar hefur sloppið frá tákn-
mynd sinni og tekur aftur yfir hug-
arheim þeirra sem á horfa.
Myndverk út frá
náttúrunni og
Road Movie
Kyrrð reyks Verk
eftir Noël Dolla.
Árleg djasshátíð í Skógum undir
Eyjafjöllum, Jazz undir fjöllum, verð-
ur haldin í fjórtánda sinn í dag. Sam-
kvæmt tilkynningu er þetta einstakt
tækifæri til að njóta góðrar og fjöl-
breyttrar tónlistar í lifandi náttúru
landsins eins og
hún gerist fegurst
og hafa fyrri há-
tíðir fengið frá-
bæra aðsókn.
Aðaltónleikar
hátíðarinnar fara
fram í félagsheim-
ilinu Fossbúð í
kvöld klukkan 21.
Þar ætlar Tómas
R. Einarsson
kontrabassaleik-
ari ásamt Latín-jazz hljómsveitinni
sinni að flytja tónlist af metsöluplöt-
unni Bongó. Söngvarar eru Sigríður
Thorlacius og Bogomil Font, Ómar
Guðjónsson leikur á gítar og á slag-
verk spilar Kristófer Rodriguez
Svönuson.
Yfir daginn verður boðið upp á tón-
list í Skógakaffi á milli klukkan 14 og
17. Þar flytja Sigurður Flosason
saxófónleikari, Sunna Gunnlaugs-
dóttir píanóleikari, Andrés Þór Gunn-
laugsson gítarleikari, Leifur Gunn-
Áhrifamestu djassmenn sögunnar
Bongó Sigríður Thorlacius, Sigtryggur Baldursson og Tómas R. Einarsson.
arsson kontrabassaleikari og Scott
McLemore trommuleikari sérstaka
dagskrá helgaða aldarafmælum
Dizzy Gillespie og Thelonious Monk.
Þeir voru báðir í hópi þekktustu og
áhrifamestu djassmanna sögunnar.
Á aðaltónleikana í Fossbúð er að-
gangseyrir 2.000 krónur en ókeypis
er á tónleikana í Skógakaffi þar sem
reiknað er með því að gestir geti
komið og farið að vild á meðan á tón-
listinni stendur.
Dansar ef grúvið er gott
Þeir sem þekkja til djasspíanóleik-
arans Monk vita að hann hafði ansi
sérstakan stíl. Í þetta sinn fellur það í
hlut Sunnu Gunnlaugsdóttur að leika
verk hans á píanóið, en hún er að
koma fram á Jazzi undir fjöllum í
fyrsta sinn. Hún segist ekki endilega
ætla að reyna að spila eins og hann.
„Það er einmitt svo fyndið með Monk,
sumir eru þeirrar skoðunar að það
eigi að spila hans músík eins og hann
spilaði hana en svo segja aðrir að tón-
listarmenn eigi að halda sínum stíl og
sinni persónulegu nálgun. En lögin
hans bera svo svakalega sterkan
keim að jafnvel þó að tónlistarmað-
urinn sé ekki endilega að reyna að
spila eins og hann þá kemur keim-
urinn hans svo sterklega í gegn í tón-
smíðum hans,“ segir Sunna. Hún seg-
ir alltaf gaman að grípa í lög eftir
Monk og Gillespie og að þetta sé
skemmtileg blanda. „Þó að þeir hafi
verið samtímamenn voru þeir mjög
ólíkir listamenn og ólík stemning í
lögunum þeirra.“
Frægt er að Monk hafi stundum
tekið upp á því að standa upp frá pí-
anóinu til þess að taka nokkur spor á
meðan hljómsveitin hans lék og
blaðamaður spyr hvort Sunna ætli að
feta í þau fótspor. „Það hef ég nú ekki
gert áður. Ætli það fari ekki bara eft-
ir því hversu vel bandið grúvar,“ seg-
ir hún sposk að lokum.
thorgerdur@mbl.is
Jazz undir fjöllum haldin í 14. sinn
Árleg djasshátíð í Skógum Sunna
Gunnlaugsdóttir tekst á við Monk
Sunna Gunn-
laugsdóttir
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Í vikunni var opnuð í salnum Flóa í
Hörpu litrík og fjölbreytileg sýning
sjö ungra og ólíkra myndlistar-
manna undir yfirskriftinni Háflæði.
Listamennirnir eru þau Aðalheiður
Daly, Qwick, Dýrfinna Benita, Ýmir
Grönvold, Kristín Morthens, Rögn-
valdur Skúli og Nanna MBS. Flest
eru þau að mála og hátt í fjörutíu
málverk eru á sýningunni, auk
teikninga og skúlptúra. „Svo er ég
með innsetningu og rýmisverk,“
segir Nanna.
Listamennirnir voru flestir með á
fyrri Háflæðissýningunni í Hörpu
fyrir fjórum árum, ásamt reynslu-
boltanum Tolla sem sýndi þá með
vaxtarsprotunum. Hefur eitthvað
breyst í verkunum síðan þá?
„Já, við höfum breyst auk þess
sem tveir nýir hafa bæst í hópinn,“
svara þau. „Sum okkar hafa síðan
lokið myndlistarnámi eða byrjað
nýtt nám, sum erlendis, og við höf-
um öll haldið áfram að vinna mark-
visst að listinni.“
Þau segjast flest hafa þekkst í
mörg ár en engu að síður sé áhuga-
vert að sjá hvernig þau hafa þróast í
ólíkar áttir í sköpuninni. „Mörg höf-
um við verið um tíma í götulist, sum
farið meira út í abstrakt – ætli við
höfum ekki flest prufað að mála á
veggi og sum gert mikið af því, og
það eru rosalega ólík element á þess-
ari sýningu. Það má sjá hér lands-
lagsmyndir, aðstraktverk, tímaverk
… það er mikill leikur í sýningunni,“
segja þau samtaka og bæta við að
samruninn sé ekki útpældur þarna í
salnum og það sé mikilvægt, í því fel-
ist viss orka og gleði.
Flöturinn tengir þau saman
Í texta í sýningarskránni skrifar
Goddur, Guðmundur Oddur Magn-
ússon prófessor, að þessi kynslóð
sem hér sýnir vilji skapa sér rými
fyrir frjálst flæði án útskýringa eða
réttlætinga fræðikenninga þar sem
skrifin verða fyrirferðarmeiri en
listaverkin. Listamennirnir sjö taka
heilshugar undir þau orð Godds. En
þegar spurt er um það hvort þau eigi
sér sameiginlega uppsprettu svarar
Kristín að þau spretti öll af tvívíðum
fleti, það megi kalla það málverk.
„Það er grunnurinn þótt við séum
ekki öll í þeim miðli nú á þessari sýn-
ingu. Það er flöturinn sem tengir
okkur.“
Um það að sýna í Hörpu, þessu
glæsihýsi íslenskrar menningar,
segja þau það svolítið súrrealískt en
eru afar þakklát fyrir að fá þetta
tækifæri. „Þetta er stórt og flott
rými, með glæsilegu útsýni, og við
erum heppin að fá að sýna hérna.
Verkin taka öll svip af rýminu á ein-
hvern hátt og það er spennandi að
koma með þau hingað inn,“ segja
þau og bæta við að í húsið komi fjöldi
gesta daglega og þeir muni nú rek-
ast óvænt á verkin og það verði for-
vitnilegt að upplifa það stefnumót.
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamennirnir „Landslagsmyndir, abstraktverk, tímaverk … það er mikill leikur í sýningunni,“ segja þau.
„Það eru rosalega ólík ele-
ment á þessari sýningu“
Sjö ungir myndlistarmenn með verk á Háflæði í Hörpu