Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017
www.gilbert.is
SJÓN ER SÖGU RÍKARI !SIF NART 1948
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Eitthvað veldur þér áhyggjum í dag
og óróleiki gerir vart við sig. Bíddu í tvær vik-
ur með að setja fram kröfur þínar. Þolinmæði
þrautir vinnur allar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þrátt fyrir að þú hafir þörf fyrir að taka
til í kringum þig hentar dagurinn best til
hvíldar og skemmtunar. Taktu þér tíma til
þess að hugsa um málið og helst leysa það
sem fyrst.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Manneskjan sem þú ert að bíða eft-
ir er líka að bíða eftir þér! Þú þarft að brjótast
út úr mynstrinu. Láttu samt ekki hugfallast
því annars gæti gott tækifæri farið for-
görðum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gamlir vinir líta inn og þið eigið
skemmtilega stund saman. Fylgstu með nýj-
ungum svo þú verðir ekki á eftir. Hví ekki að
nýta ungu kynslóðina til að kenna þér?
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Farðu fram á við og þú munt afreka.
Eitthvað er að angra þig, ekki láta það á þig fá
því það gengur á ýmsu í öllum lífsins ævintýr-
um.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þó að það væri augljóslega betra ef
allir færu að þínu dæmi á það ekki eftir að
gerast. Taktu enga ákvörðun fyrr en þú hefur
skoðað allar hliðar málsins gaumgæfilega.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur verið óþægilegt að láta róta of
mikið upp í málum sem þú telur að þú hafir
afgreitt fyrir löngu. Tæmdu vasana áður en
þú stingur í þvottavélina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Allt sem tengist vinnunni og
vinnuumhverfinu ætti að breytast til batn-
aðar á næstunni. Aðrir taka eftir þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt auðveldara með að sjá
málin frá fleiri en einni hlið en áður. Flýðu frá
kæfandi fólki og fyrirtækjum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reynið að fá sem mest út úr sköp-
unarþrá ykkar og það á bæði við um leik og
starf. Fjölskylduviðburðir krefjast þess að þú
breytir út af venjunni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Í huga þínum ertu bara að biðja
um hjálp, en það sem hinn aðilinn heyrir eru
skipanir.Vandaðu þig við að vera ekki eins
hvass/hvöss.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú væri tilvalið að gera út um gömul
deilumál og grafa stríðsöxina. Fólk vill leggja
þér lið núna, gefa þér gjafir, gera þér greiða
og lána þér hluti.
Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns-
son:
Lítið drykkjarílát er.
Inniheldur pelinn.
Á lampanum, sem birtu ber.
Ber það á sér delinn.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn:
Á mjólkurglasi mig fæ nært.
Mælt glas líkt og pelans hola.
Lampaglasið karli kært,
þeim kökudropaglasasvola.
Árni Blöndal svarar:
Vasapeli víst er glas
Viskí helli’ í glasið
Innihaldið einnig glas
og svo lampaglasið.
Gefðu vinum glasið í
gleði vekur dropinn þá
hóf er best að hafa því
hættu valdið getur sá.
Helgi Seljan sendi lausn – „vand-
ræðalega orta“:
Glasið drykkjarílát er
oft í glas úr pela fæst.
Lampaglasið birtu ber
bera ýmsir glas sér næst.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig:
Laus við þref og þras,
þanka, grufl og mas,
gátu létta las,
líst nú best á glas.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Drykkjar glasið ílát er.
Eitt er glas í pela.
Lampaglasið lýsti mér.
Lögur í glasi dela.
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Vatnsglas drykkjarílát er.
Eitt glas rúmar pelinn.
Lampaglasið birtu ber.
Bera glas mun delinn.
Þá er limra:
Hún Þura var dauðleið á þrasi
og þreytt á bónda síns masi,
en því linnti þó,
þegar hann dó,
hann tók þá að tjá sig í glasi.
Og að síðustu kemur Guðmundur
með laugardagsgátuna:
Mál er að móki linni
og morgunverkum ég sinni.
Lausn hygg ég fljótt nú finni
flestir á gátu minni:
Á skipunum oft er harla há.
Í heiti flokksins bundin.
Getulausum er lítil hjá.
Léttir þeim, sem dóma fá.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
„Svona, upp með þig,
það er glas“
Í klípu
„ÞAÐ ERU FIMM STIG SORGAR
– SEX, EF ÞÚ TELUR HEFND MEÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„LÍÐUR ÞÉR EKKI BETUR EFTIR
AÐ HAFA FARIÐ Í HEITT BAÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að velta fyrir sér
hvort að hann myndi
nokkurn tímann spyrja.
ANNAR
MÁNUDAGUR…
ANNAR HUNDLEIÐINLEGUR
VENJULEGUR MÁNUDAGUR
HÆ GRETT BÍDDU, ÉG ER
KOMINN Á SKRIÐ!
ANNAR VENJULEG-
UR, LEIÐINLEGUR,
HVERSDAGSLEGUR
MÁNUDAGUR!
AFSAKIÐ, ER
EINHVER AÐ NOTA
ÞENNAN STÓL?
NEI, GJÖRÐU
SVO VEL!
TAKK!
Kínverska fyrirtækið Mobike hefurstofnað hjólaleigu í bresku borg-
unum Manchester og Salford. Blaða-
maður Guardian gleðst mjög yfir
þessari nýbreytni og segir þessa
hjólaleigu skera sig úr þeim sem
starfi í öðrum borgum þar sem hann
þekki til. Það eru engar skilastöðvar
heldur er hægt að leggja Mobike-
hjólinu hvar sem er, hvort sem það er
fyrir utan húsið heima hjá þér, við
barinn, bíóið eða lestarstöðina. Hjólið
þarf bara að vera í borgunum tveim-
ur og ekki hindra aðra umferð.
x x x
Þessi hjól eru líka ódýr, það kostaraðeins 70 krónur að leigja hjólið í
hálftíma. Þannig er það vel þess virði
að hoppa aðeins á hjólið og hjóla í
fimm mínútur, leið sem hefði kannski
tekið 20 mínútur gangandi.
x x x
Kerfið verðlaunar góða hegðun.Notendur byrja með 100 punkta
og ef punktastaðan fer niður í núll þá
fær viðkomandi ekki að nota hjólin.
Þeir sem segja frá öðrum sem skilja
hjólin eftir á miðri götu eða í garð-
inum sínum fá punkta. Þú tapar 20
punktum ef þú skilur hjólið eftir á
óaðgengilegum stað, 15 punktum ef
þú gleymir að læsa því og 100 punkt-
um ef þú yfirgefur hjól eftir að hafa
verið stöðvaður af lögreglunni. Ef þú
notar þinn eigin lás eða brýtur lög á
meðan þú ert á hjólinu verður
punktastaða þín núll og þú mátt ekki
leigja hjól frá Mobike aftur.
x x x
Flugfélagið WOW hefur sett upphjólaleigu á átta stöðum í mið-
borginni. Fyrsti hálftíminn kostar
þar 400 krónur en eftir það kostar
hver hálftími 600 krónur. Þetta er
talsvert dýrara en þjónusta Mobike
og líka dýrara en í London en þar
kostar dagpassi um 270 krónur, að
því er fram kemur í grein Guardian.
Passinn í París kostar um 200 krónur.
Heldur dýrara er að leigja hjól í sól-
arhring í Austin í Texas eða um 1.250
krónur. Vonandi kemur hátt verð hér
á landi ekki í veg fyrir að fólk noti
þjónustu hjólaleigunnar enda er gam-
an að kynnast umhverfinu á hjóli,
hvort sem maður er ferðamaður eða
heimamaður. vikverji@mbl.is
Víkverji
Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég á engin gæði nema
þig.“ (Sálm. 16:1-2)