Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 18
EM KVENNA Í FÓTBOLTA 201718 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Laufey Ólafsdóttir, fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, verð- ur einn af búningastjórum ís- lenska kvennalandsliðsins á Evr- ópumótinu í Hollandi í sumar. Laufey lék á sínum tíma með Val, ÍBV og Breiðabliki auk þess að leika 26 landsleiki fyrir A-landslið kvenna. Hún segir starf búninga- stjórans talsvert frábrugðið hlut- verki leikmannsins. „Þegar Freyr tók við liðinu fyrir nokkrum árum heyrði hann í mér og spurði hvort ég hefði áhuga á að koma í þetta verkefni með honum. Ég hafði aldrei verið í svona búningastarfi áður en fannst þetta spennandi. Maður þekkir þetta umhverfi auð- vitað sem leikmaður þannig að það er gaman að prófa að vera bak við tjöldin.“ Laufey hefur starfað í bókhalds- deild Útilífs undanfarin ár og seg- ir það skemmtilega tilbreytingu að geta farið í ferðir með landsliðinu þrátt fyrir að álagið geti oft á tíð- um verið mjög mikið. „Mér finnst alveg rosalega gaman að geta far- ið í ferðir með stelpunum þótt það geti oft verið mikið að gera,“ segir Laufey og bætir við að búninga- teymið vinni vel saman. „Við erum þrjár sem hjálpumst að með þetta. Ragnheiður Elísdóttir er aðalmað- urinn, enda búin að vinna hjá KSÍ í 20 ár, og við hinar reynum að vera henni innan handar.“ 20 milljón króna búnaður Á næstu dögum verður fatnaður og annar búnaður fluttur flugleiðis til Hollands svo allt verði eins og best er á kosið þegar stelpurnar koma þangað síðar í mánuðinum. „Við erum búin að pakka stórum hluta búnaðarins og gerum ráð fyrir að senda þetta út núna fljótlega. Þetta eru svona 150 kassar og töskur sem vega ein- hver hundruð kílóa,“ segir Laufey sem telur að heildarverðmæti bún- aðarins sé í kringum 20 milljónir króna. Spurð hvert hlutverk búninga- stjóra íslenska landsliðsins sé seg- ir Laufey að þær stöllur láti sér ekkert óviðkomandi. „Það má eig- inlega segja að við skiptum okkur af öllu sem ekki tengist fótbolta. Við sjáum um fötin fyrir þær, pössum að þær fái nægan mat, fyllum á vatnið og svo framvegis. Þetta er vinna allan sólarhring- inn.“ Mættar snemma á leikdegi Á leikdegi hefst undirbúningur snemma hjá búningastjórunum enda í mörg horn að líta. Dagur- inn er yfirleitt tekinn snemma þar sem búningastjórarnir hittast og skipuleggja sig. „Allur leikdagur- inn fer í að gera klárt og hefst það strax um morguninn þegar við byrjum að stilla saman strengi. Við mætum síðan mjög snemma á völlinn og gerum búningana, vatn- ið og annað sem stelpurnar þurfa tilbúið,“ segir Laufey, sem telur að liðið geti farið langt í mótinu, jafnvel alla leið í undanúrslitin. „Við förum í undanúrslit, sjáum svo til hvað gerist eftir það. Ég hef fulla trú á stelpunum.“ Morgunblaðið/Kjartan Þorbjörnsson Búningastjórar Laufey og Ragnheiður stilltu sér upp hjá búnaðinum. Lauf- ey segir að heildarverðmæti búnaðarins sé í kringum 20 milljónir króna. Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Í landsleik Laufey á að baki 26 landsleiki fyrir A-landslið kvenna, hluti þeirra leikja var á EM 2013. Hún heldur nú á stórmót í nýju hlutverki. Fyrrverandi landsliðs- kona búningastjóri á EM  Munu taka með sér 150 töskur og kassa fulla af búnaði og er verðmæti búnaðarins talið vera um 20 milljónir króna Aron Þórður Albertsson Axel Helgi Ívarsson Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í knattspyrnu, leikur einnig með Vfl Wolfsburg í Þýskalandi. Hún hefur spilað með liðinu frá árinu 2016 þegar hún gekk til liðs við það frá Rosengård í Svíþjóð. Hún segir afar skemmti- legt að vera hluti af stóru liði eins og Wolfsburg. „Þetta er auðvitað eitt stærsta lið Evrópu og maður reynir því að njóta þess að spila með því,“ segir Sara. Til marks um hversu stórt félag Wolfsburg er eru nánast allir leikmenn liðs- ins í landsliðsverkefnum. „Ég held að til dæmis núna séu einungis fjórir leikmenn á æfing- um með liðinu og restin er í lands- liðsverkefnum.“ Ástfangin af sjúkraþjálfara Sara byrjaði nýverið með þýska sjúkraþjálfaranum Alexander Jura, sem starfar sem sjúkraþjálf- ari hjá kvennaliði Wolfsburg. Áður en hann tók við því starfi spilaði Alexander sem framherji hjá FT Braunschweig, liði í neðri deildum í þýsku knattspyrnunni. Sara segir að þau Alexander hafi kynnst í gegnum félagið enda eyði þau bæði talsverðum tíma þar. „Við störfum náttúrlega á sama stað og erum þar af leiðandi mjög mikið í kringum hvort ann- að. Við kynntumst því í gegnum klúbbinn,“ segir Sara. Hún dvaldi og ferðaðist um landið með Alex- ander áður en landsliðið kom sam- an fyrr í vikunni og heimsóttu þau meðal annars Gullfoss, Brúarfoss og Kerið. Spurð hvort henni finnist ekki sérstakt að starfa á sama stað og kærastinn segist Sara ekki hafa velt því fyrir sér. „Það er nú víst þannig að ástin spyr hvorki um stað né stund,“ sagði Sara hlæj- andi að lokum. Ástin spyr hvorki um stað né stund  Sara Björk kynntist kærasta sínum hjá knattspyrnustórveldinu Wolfsburg Kærustupar Sara Björk og Alexander Jura starfa bæði hjá knattspyrnuliðinu Wolfsburg. Þau ferðuðust saman um landið áður en landsliðið kom saman fyrr í vikunni og heimsóttu meðal annars Gullfoss, Brúarfoss og Kerið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.