Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017 Opnað verður fyrir umsóknir í myndlistarsjóð 10.júlí Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni sýningarverkefna allt að 500.000 kr. Styrkir til stærri sýningarverkefna, útgáfu-/rannsóknarstyrkir og aðrir styrkir allt að 2.000.000 kr. Úthlutað er tvisvar úr sjóðnum árið 2017 og er um síðari úthlutun að ræðaM yn dl is ta rs jó ðu r Úr seinni úthlutun verða veittir Upplýsingar um myndlistarsjóð, umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og leiðbeiningar er að finna á vefsíðu myndlistarráðs, myndlistarsjodur.is Úthlutað verður í september Umsóknarfrestur er til miðnættis 21. ágúst 2017 AF MÁLMI Hjalti St. Kristjánsson hjaltistef@mbl.is Eistnaflug er hægt og bítandi að þokast í átt að því að verða stór- hátíð. Dagskráin fer stækkandi ár frá ári og stærri og stærri hluti bæjarfélagsins í Neskaupstað er undirlagður. Víðsvegar um bæinn má finna staði sem bjóða upp á tónleikaaðstöðu, hvar böndin sem koma fram á hátíðinni geta troðið upp og aukið útbreiðslu tónlistar sinnar. Þetta er til þess fallið að gæða bæinn enn auknu lífu um- fram það að rokkarar séu eins og hráviði út um allan bæ. Það eykur að mati þess er ritar hátíðarbrag- inn og gerir þessa helgi að heild- rænni upplifun en ella. Nóg um það. Það er komið að hátíðardagskránni. Fyrsta hljóm- sveit sem litin var augum var Kronika. Ég átti á sínum tíma von á að það band risi hraðar og hærra en raun bar vitni. Ég skal ekki segja hvað veldur en það er allavega ekki frammistöðu Kron- iku að kenna. Bandið var ótrúlega þétt og gaman að heyra hvað mis- munandi uppruni hljómsveitar- meðlima spilaði vel saman. Indí- skotinn gítarinn á móti metalbassa og trommum og það tvennt á móti rappinu sem Reykjavíkurdóttirin Tinna Sverrisdóttir skilaði með ótrúlegri orku. Röskun skilaði áhorfendum álíka mikilli orku, en þó á allt ann- an hátt. Hreinræktað þungarokkið með hreinum og tærum tví- og jafnvel þríröddunum skilaði sér ótrúlega vel og var blaðamanni vel að skapi. Une misére er eins Svartur dauði, rokk og rapp Happafengur Tinna, söngkona Kroniku, er happafengur fyrir rokk- menninguna á Íslandi og gaman að fá ferskan andblæ úr nýjum áttum. konar súpergrúppa þar sem komnir eru saman meðlimir úr helstu hard-core hljómsveitum landsins. Þeir spiluðu þrælgott mót og uppskáru gífurlega góðar viðtökur gesta. Zhrine er íslensk svart-/dauðamálmssveit sem vert er að kynna sér nánar. Hún lék með þéttari settum sem undirrit- aður hefur séð, góður fulltrúi öfgafulls íslensks málms. Auðn er ein af framvarðar- sveitum íslensks svartmálms. Það vita nefnilega ekki allir að íslensk- ur svartmálmur er í miklum met- um víða um heim og þar er Auðn framarlega í flokki. Hljómsveitar- meðlimir einbeita sér að melódísk- ari nálgun en aðrar sveitir innan stefnunnar og eru frábærir fulltrúar Íslands utan landstein- anna. Hitnar í kolunum Þá var komið að næstu hljóm- sveit úr efstu línunni (næsta hedd- lænbandi), hinni sænsku Blood- bath. Þessi dauðarokkssúper- grúppa var meðal annarra stofnuð af Mikael Åkerfeldt og Anders Nyström sem heiðruðu Íslendinga með nærveru sinni á síðasta Eistnaflugi með hljómsveitinni Opeth. Hljómsveitin lenti því mið- ur í miklum tæknilegum örðug- leikum sem urðu til þess að dag- skránni seinkaði, en það var þó hvergi að heyra á frammistöðu hennar að eitthvað hefði farið úr- skeiðis. Satt best að segja var það ekki fyrr en örstutt hlé var gert svo söngvarinn gæti heyrt í sér að gestir áttuðu sig á að eitthvað væri að, slík var fagmennskan. Sú fagmennska skilaði þrælgóðum tónleikum sem verða lengi í minn- um hafðir. Næstu hljómsveit á svið þarf varla að kynna. Skipuleggj- endur hátíðarinnar hafa löngum verið duglegir að veiða upp hljóm- sveitir sem seint hefðu talist þær líklegustu til að stíga á svið og nú var komið að þeirri fyrstu þetta árið. Brain Police var mætt og tók algjörlega völdin. Það er deginum ljósara að drengirnir hafa engu gleymt og er óskandi að þeir geri meira af því að spila en verið hef- ur síðustu ár, því tilveran er bara skemmtilegri með Brain Police. Næst var komið að öðru af stóru íslensku nöfnunum í málm- heimum. Misþyrming er ásamt Auðn í framvarðarsveitinni fá- heyrðu. Hljómsveitin var stofnuð árið 2013, gaf út sína fyrstu plötu 2015 og hlaut góða dóma fyrir. Limir fara alla leið til að sverja sig inn í svartmálmssenuna og eru hinir ófrýnilegustu, alblóðugir og óþekkjanlegir vegna andlitsfarða. Í dag er ekki bara síðasti dag- ur Eistnaflugs heldur birtist líka fyrsta tilkynning um hljómsveitir næsta árs. Sænska svartmálms- sveitin Watain er þar fyrst á lista. Sú sveit hefur verið starfandi síð- an 1998. Hún sækir í sömu grunna og margar aðrar hljómsveitir úr sama flokki og hefur verið um- deild. Til að mynda voru meðlimir orðaðir við nýnasisma, sem þeir hröktu með þeim orðum að nýnas- ismi væri bara grín, örvæntingar- full tilraun þeirra sem vilja snúa út úr svartmálmi. Það er mikill happafengur fyrir svartmálm- shausa að fá Watain inn á Eistna- flug og gefur strax eitthvað að hlakka til. » Indískotinn gítar-inn á móti metal- bassa og trommum og það tvennt á móti rapp- inu sem Reykjavíkur- dóttirin Tinna Sverris- dóttir skilaði með ótrú- legri orku. Ljósmynd/Halldór Ingi Orkubolti Jenni í Brain Police náði áhorfendum vel á sitt band. Langt er síðan sveitin kom síðast fram. Blóðbað Anders Nyström, gítarleikari Bloodbath og Opeth, í góðum gír ásamt bassaleikaranum Jonas Renkse á tónleikum Bloodbath. Skáldin Sigurbjörg Þrastardóttir og Kristín Ómarsdóttir hafa verið á faraldsfæti undanfarnar vikur því stuttleikrit þeirra, Boltastrák- ar (Bolddrenge) og Trjágarðurinn (Træhaven), hafa verið sett upp í Danmörku og Svíþjóð. Í tilkynningu segir um leikritin að þau séu sérlega áhugaverð í ljósi umfjöllunarefna þeirra sem séu óhefðbundin í meira lagi. Leik- rit Sigurbjargar fjallar um síams- tvíbura sem undirbúa tennisleik – og vitjun augnlæknis – utanhúss og var það sett upp á leiklistarhá- tíðinni CPH STAGE í Kaup- mannahöfn á dögunum með dönsk- um leikurum og undir lok mánaðar verður það sett upp af Teater in- Site í Malmö með sænskum leik- urum. Það sama mun eiga við um leik- rit Kristínar sem fjallar um síð- asta korterið í lífi tveggja lesb- ískra kvenna sem þær verja með böðli sínum. Í tilkynningu segir að allt sé þetta hluti af norrænu leik- húsverkefni á vegum Dramafron- ten í samvinnu við Det Kongelige Teater. Síamstvíburar og böðull Síamstvíburar Frá flutningi á leikriti Sigurbjargar í Kaupmannahöfn, síamstvíburarnir á hlaupum, líklega að þjálfa sig fyrir tennisleik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.