Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.07.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017 Farið með svarið í ferðalagið Vegahandbókin • Sundaborg 9 • Sími 562 2600 • Vegakort • Þéttbýliskort • Ítarlegur hálendiskafli • 24 síðna kortabók • Vegahandbókar App • Þjóðsögur • Heitar laugar o.fl. o.fl. FERÐUMST OG FRÆÐUMST Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason Jóhann Ólafsson Neyðarlokan í dælustöð Veitna við Faxaskjól lokar fyrir útflæði óhreinsaðs skólps með bráða- birgðabúnaði sem notast hefur verið við frá því síðdegis á mið- vikudag. Aftur á móti verður lúgan tekin úr fljótlega eftir helgi, til að setja réttan búnað á hana og stilla hana af, og búast Veitur við að skólp fari í sjóinn á meðan. Hólm- fríður Sigurðardóttir, umhverfis- stjóri Veitna, segir ekki hægt að segja til um hversu langan tíma það taki að koma lokunni fyrir en hana þurfi að prófa bæði á flóði og fjöru. Fellur niður í annan flokk Frumniðurstöður mælinga heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur á magni saurgerla í fjörunni við dælustöðina leiða í ljós að gerla- magn er yfir viðmiðunarmörkum austan megin í fjörunni, alveg við stöðina, og fellur þar niður í annan flokk ef miðað er við reglugerð um baðstaði í náttúrunni. Heilbrigðis- efirlit og Veitur ráðleggja fólki að fara ekki ofan í fjöruna þar. Austar á Ægisíðu sem og vestan við dælustöðina er gerlamengun hins vegar undir viðmiðunarmörk- um. Sýnin voru tekin í fyrradag. Ný sýni voru tekin í gær. Heilbrigðiseftirlitið telur ekki líkur á að saurgerlamengun nái til Nauthólsvíkur sem er í 3,5 km fjarlægð frá dælustöðinni. Starfs- menn tóku þó sýni í Nauthólsvík í gær og fyrradag og munu frum- niðurstöður þeirra liggja fyrir í dag. Viðgerð reyndist tafsöm Viðgerðir á neyðarlúgunni hafa staðið meira og minna frá miðjum júní en ekki hefur tekist að fá hana til að virka rétt. Lúgan er aðeins þriggja ára gömul en þegar hún var könnuð í júní kom í ljós að legur eru ónýtar og öxlar illa farn- ir. Þennan búnað þarf að sérsmíða og er búið að því. Hólmfríður segir að viðgerðin hafi tekið lengri tíma en starfsmenn Veitna áttu von á. Hefðu átt að láta vita fyrr Ítrekað hefur verið reynt að ná sambandi við Dag B. Eggertsson vegna málsins á síðustu dögum án árangurs. S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs Reykjavíkur, telur að eftir á að hyggja hefði verið heppi- legra að láta vita fyrr af biluninni. Björn bendir á að tilkynningar sem þessar séu á forræði heil- brigðiseftirlits. Umræðan hafi ver- ið á þá leið að af þessu hefði mátt láta vita fyrr. „Heilbrigðiseftirlit starfar á grundvelli ákveðinna laga og hefur mikið sjálfstæði. Við er- um búin að fara yfir þetta með heilbrigðiseftirlitinu og það mat það sem svo að það stafaði ekki hætta af þessu. Hins vegar er þetta ógeðfellt fyrir fólk. Við för- um yfir í framhaldinu hvort það þurfi að breyta eitthvað verklagi varðandi tilkynningar um mál sem þessi,“ segir Björn og bætir við að öll svona mál séu til að læra af þeim. Óhreinsað skólp fer í sjóinn eftir helgi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sýnataka Saurgerlasýni voru í gær tekin í fjörunni við hreinsistöðina við Faxaskjól. Húsin við Ægisíðu blasa við. Sigurður Björn Blöndal Dagur B. Eggertsson  Saurgerlamengun yfir mörkum við hreinsistöðina við Faxaskjól en undir mörkum lengra frá Afkoma Árvakurs hf. á liðnu ári batnaði verulega frá árinu 2015. Tekjurnar jukust um 9%, námu 3,6 milljörðum króna, en gjöldin jukust um 6%. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, batnaði því mikið og nam 99 millj- ónum króna. Engu að síður var tap af rekstri fé- lagsins upp á tæpar 50 milljónir króna, en tapið nam 164 milljónum króna árið 2015. „Árið 2016 var í meginatriðum gott ár fyrir Árvakur þó að ekki tækist að skila rekstrinum réttum megin við núllið,“ segir Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs. „Árið einkenndist af tvennu, annars vegar batnandi rekstri, en miklar launahækkanir, ekki síst umsamdar launahækkanir á vinnumarkaði fyrstu mánuði árs- ins sem komu óvænt inn, skýra þann halla sem varð á rekstri Ár- vakurs. Hins vegar einkenndist ár- ið af sóknarhug þar sem ráðist var í ný verkefni, meðal annars kaup á Eddu-útgáfu, sem gefur til dæmis út Andrésblöðin, og kaup á út- varpsstöðvum. Við bindum miklar vonir við þessar nýju rekstrarein- ingar og reynslan af þessum mán- uðum sem liðnir eru frá því að þær komu til Árvakurs lofar góðu. Sem dæmi má nefna að hlustunin á K100 hefur tvöfaldast frá því að við kynntum nýja dagskrá fyrir nokkrum vikum og hófum að streyma útvarpinu í mynd á vefn- um. Morgunblaðið hefur haldið öfl- ugri stöðu sinni og er staða þess í raun einstök, hvort sem horft er á íslenska markaðinn eða sambæri- lega markaði í nágrannalöndum okkar. Mbl.is hefur líka einstaka stöðu í slíkum samanburði og hef- ur haldið áfram að vaxa og auka þjónustu við lesendur sína. Morg- unblaðið hefur sömuleiðis haldið áfram að auka þjónustuna við áskrifendur sína, nú síðast með því að bjóða þeim Hljóðmoggann, sem er upplestur á helstu fréttum, við- tölum og ritstjórnarefni hvers dags, sem er til dæmis hægt að hlusta á í gegnum smáforrit í sím- um.“ Haraldur segir að til að styðja þá sókn sem Árvakur hafi ráðist í hafi hlutafé verið aukið um 200 milljónir króna. Eignir Árvakurs námu 2.079 milljónum króna um síðustu ára- mót og eiginfjárhlutfall var 39%. Verulegur afkomubati hjá Árvakri á síðasta ári  Auknar tekjur og bætt rekstrarafkoma  Hlutafé aukið til að styðja frekari sókn  Hlustun á K100 hefur tvöfaldast Morgunblaðið/Ómar Uppbygging Árið 2016 einkenndist af sóknarhug og ráðist var í ný verkefni. Þannig festi Árvakur m.a. kaup á Eddu-útgáfu og tveimur útvarpsstöðvum. Haraldur Johannessen Tveir erlendir ferðmenn létu lífið hér á landi í gær í tveimur að- skildum slysum. Báðir hröpuðu þeir við göngu. Annar í Hljóðaklett- um við Jökulsárgljúfur en hinn í Kirkjufelli við Grundarfjörð. Ferðamaðurinn sem lést í Hljóða- klettum féll um 15 til 20 metra nið- ur af hamrabrún. Björgunarsveitir voru kallaðar út og aðstoðuðu lög- reglu á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gær. Segir þar að Landhelgisgæslan hafi sent þyrlu sína af stað en hún skömmu síðar verið afturkölluð eftir að mað- urinn hafði verið úrskurðaður lát- inn af læknum á vettvangi. Ekki er grunur um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti, að því er segir í tilkynningu lögregl- unnar. Nánari tildrög slyssins liggja ekki fyrir en rannsókn málsins heldur áfram. Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar að sinni. Féll 50 metra í Kirkjufelli Þá lést kona í Kirkjufelli við Grundarfjörð eftir að hafa fallið fimmtíu metra við göngu á fjallinu. Þyrla Landhelgisgæslunnar hífði konuna upp af slysstað en björg- unarsveitarmenn aðstoðuðu sam- ferðafólk hennar og þá sem komu að slysinu niður af fjallinu. Tveir ferðamenn fórust

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.