Morgunblaðið - 08.07.2017, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 08.07.2017, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 2017 ✝ Auður ÓskAradóttir fæddist 20. mars 1962 á fæðingar- heimili Reykjavík- ur. Hún lést á heil- brigðisstofnun Vestfjarða 2. júlí 2017 eftir hetjulega baráttu við krabba- mein. Auður Ósk var dóttir Ara Auðuns Jónssonar, f. 15. ágúst 1933, d. 29. nóvember 1974, og Kol- brúnar Gerðar Sigurðardóttur, f. 28. desember 1936. Systkini Auðar eru átta talsins; Hafdís, Louisa, Jón Valur, Jón Marías, Bryndís Rut, Kolbrún, Bjarni og Arna Hrönn. Auður Ósk lætur eftir sig tvo syni; Ara Auðunn Pétursson, f. 8. ágúst 1987, og Daníel Þór Þorsteinsson, f. 24. mars 1989, sambýliskona hans er Elma Sturludótt- ir. Auður Ósk missti dóttur sína, Elsu Kristínu Hauksdóttur, sjö ára, úr hvítblæði 17. ágúst 1986. Auður Ósk flutti til Ísafjarðar eftir andlát dóttur sinn- ar og ól hún syni sína upp í faðmi fjallanna ásamt því að vera virk í samfélagi sínu. Hún var virk í sjálfboðaliða- starfi Rauða kross Ísafjarðar í yfir tuttugu ár, tók þátt í íþróttastarfi æskunnar í gegn- um syni sína og hélt utan um er- lenda háskólanemendur sem námu við Háskólasetur Vest- fjarða. Auður Ósk verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju á morgun, sunnudaginn 9. júlí 2017, kl. 14. Elsku systir mín, nú verður þú borin til grafar á morgun á Ísafirði, sunnudaginn 9. júlí á degi upprisunnar. Ég sit hér á Húsinu á Ísafirði, hlusta á Leonard Cohen, horfi á mynd- ina af okkur þar sem þú reimar skóna mína á spítalanum þegar ég var lítil og minningarnar rifjast upp. Hvað ert þú að gera núna? Ertu kannski að hlusta á tónlistina þína eða að horfa á þættina þína eða kannski að segja enn einn brandarann eða jafnvel að prjóna peysu? Mikið vildi ég geta tekið upp símann og talað við þig eða faðmað þig og geta sagt við þig ég elska þig. Þegar ég var lítil vildi ég vera dóttir þín og skildi ekki af hverju Elsa var það en ekki ég en ég man líka að margir héldu að þú ættir mig og Elsu Krist- ínu. Alltaf vildi ég vera með þér því mér leið svo vel í kringum þig. Ég man líka þegar ég fór á hárgreiðslustofu og sagðist vilja alveg eins klippingu og Auður systir. Já svona leit ég mikið upp til þín og geri enn. Eitt af því sem ég reyni að tileinka mér er viðhorf þitt til lífsins og náungakærleikurinn. Þú máttir hvergi aumt sjá og ef einhver þurfti hjálp þá varst þú mætt. Alls staðar þar sem þú birtist var gaman, þú hafði einstakt lag að gera allar samkomur skemmtilegar með húmor þín- um og hlátri. Verkefni lífsins bönkuðu upp á hjá þér oftar en einu sinni, æðruleysi þitt, sterki persónu- leikinn þinn, fallegt viðhorf þitt til lífsins og þrjóskan þín kom þér í gegnum þau verkefni. Aðdáunarvert var að fylgjast með þér fara í gegnum síðasta verkefnið sem þú fékkst í hend- urnar. Ég skildi þig ekki alltaf alveg, af hverju þú vildir hlífa mér og öllum öðrum við því verkefni en nú skil ég það. Þannig var þín persónugerð og þú vildir ekki leggja of mikla byrði á mig og aðra. Oft áttum við spjall um að ég myndi flytja til Ísafjarðar til þín því fólkið þar væri svo gott og einnig var það ósk þín að vera þar í meðferð, deyja þar og vera jörðuð þar. Ég var ekki sammála en ég skil þig núna Auður. Vá hvað Ísfirðingar eru yndislegir og samkenndin hér mikil. Á sjúkrahúsinu var svo vel hugsað um þig af kærleika og ást af hjúkrunarfræðingun- um, sjúkraliðunum og læknun- um. Mikið sakna ég þín elsku stóra systir mín. Alveg undir það síðasta varstu að hugga mig og passa mig eins og þú hefur gert allt mitt líf. Þú hefur hvatt mig áfram þegar ég hef hrasað, að standa aftur upp og halda áfram með bros á vör og ekki að líta aftur fyrir öxl. Röddin þín var svo sterk og hún mun hljóma áfram í eyrum mínum inn í framtíðina. Þessi dagur er runninn upp þar sem þú ferð á vit nýrra æv- intýra með Elsu Kristínu og pabba. Það er mín huggun að vita af því að þú ert með þeim en ekki ein. Ég ætla að sleppa þér en minning um þig verður áfram sterk hjá mér, Konna, Elsu Karen, Völu og Söruh. Þú ert og verður ein af okkur. Hvíldu í friði, elsku Auður systir. Ég passa strákana þína. Ást er þú, Arna Hrönn systir. Leiðin liggur vestur í fjörð- inn sem við elskuðum til að kveðja elsku frænku en hún háði hetjulega barráttu við þennan illvíga sjúkdóm og kvartaði aldrei frá því ég kynnt- ist henni og öðrum eins dugn- aðarforki í vinnu hef ég aldrei kynnst. Hún var einkar lunkin að eiga við ölvað fólk og mann- skapurinn komst ekkert upp með að brjóta reglur þegar hún sá til eins og þegar hún náði mér á Krúsinni í denn með flöskuna innanklæða og þá kom þessi gullmoli frá henni „Steinka, maður tekur ekki kaffi með sér til Brasilíu.“ Við áttum margt sameigin- legt en við elskuðum að vera í margmenni og tala nú ekki um kökuhlaðborð, skutlast á rúnt- inn og fylgjast með mannlífinu – hvað væri verið að bralla, ís í hamró, ódýrar búðir, bíó á mánudögum, jólabörn og „jed- dúa mía“ allt jólaskrautið sem þú áttir, heilt jólaland, við elsk- uðum lífið, algjörir þvermóðsku- hundar, að borða góðan mat ásamt kaffi og sígó í eftirrétt. Þú varst svo kærleiksrík og hjálpsöm og elskaðir alla í kringum þig og allir þekktu þig og dáðu og húmorinn þinn var einstakur. Nú ertu komin til englanna og afi og Elsa munu passa þig. Megi guðs englar fylgja þér og þú verður ávallt í huga mér. Þín frænka Steinunn (Steinka). Komið er að kveðjustund, elsku vinkona. Ég þakka þér fyrir fimmtíu ára vináttu og tryggð. Margt hefur verið brallað og mörg verkefni verið leyst þótt oft hafi blásið og gefið á, þá gátum við líka glaðst og mikið höfum við hlegið saman. Þú áttir marga vini og sam- ferðafólk en dýrmætust voru börnin þrjú; Elsa Kristín, Ari Auðunn og Daníel Þór. Nú ert þú komin til Elsu þinnar, litla söngfuglsins þíns, sem kvaddi okkur aðeins sjö ára gömul eftir fimm ára veik- indi. En flottu strákarnir þínir eiga eftir að spjara sig. Ég veit að þeir hafa alla burði og getu til þess. Elsku Ari Auðunn, Daníel Þór, Elma, Kolbrún og öll fjöl- skyldan, ykkur votta ég mína dýpstu samúð. Minning þín lifir og geri ég orð þín að lokaorðum mínum: „Standið saman og styðjið hvert annað.“ Þín Sólveig (Solla). Þín vinatryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Nú er hún Auður Ara, kær fjölskylduvinkona, búin að kveðja. Harðri snarpri baráttu við óvelkominn gest er lokið. En lífsviljann og þrekið átti hún svo sannarlega í þessa ójöfnu baráttu. Auður var bara stelpuskott er við fjölskyldan kynnumst henni og fjölskyldu hennar, Nonni bróðir hennar og Gummi Atli bróðir æskuvinir og hún kom um tíma í málningarvinnu með fjölskyldunni og hefur allt- af verið okkar. Í fjölda ára vann hún hjá Dúa bróður og Gróu á veitingastöðum þeirra og pott- þétt var hún alltaf til vinnu og hörkudugleg. Þar var ekki gerður mannamunur, hvort sem kúnninn var háttsettur eða ein- hver sem minna mátti sín. Hún var glaðlynd og opinská og átti létt með að kynnast fólki og umgangast það, vinur vinna sinna og trygglynd sínum. En hún bar svo sannarlega ekki áhyggjur sínar á torg. Lífsganga hennar var ekki alltaf létt, hún var vart af barnsaldri er hún missti föður sinn í sjóslysi og setti sá harm- ur mark á hennar lífsgöngu, eins er hún missti einkadóttur sína, Elsu Kristínu, aðeins sjö ára gamla og var það hennar hjartasár sem greri aldrei. Auð- ur eignaðist tvo syni, þá Ara Auðun og Daníel og stóð hún sig einstaklega vel og með sóma við uppeldi þeirra og hún ein með þá. Þeir voru sólargeislar hennar og hún skildi eftir sig fallegt lífsverk í sonum sínum. Þeir eru virkilega flottir dreng- ir, ljúfir, hlýir, hugulsamir og skemmtilegir og miklir mann- kostir í þeim. Við höfum átt margar samverustundir og rætt um lífið og tilveruna í gegnum tíðina og ég dáðist að baráttu- þreki hennar í vetur er hún skellti sér á mannamót, þótt slöpp væri, lét aldrei að deigan síga, ekta ísfirskur baráttujaxl vinkonan. Auður var svo sannarlega Ísafjarðardóttir og nú er Ísa- fjörður fátækari við fráfall hennar, enda setti hún sinn svip á mannlífið hér. Elsku Ari og Danny boy, við sendum ykkur hjartans einlæg- ustu samúðarkveðjur vegna frá- falls mömmu og þér, Kolla mín, vottum við innilega samúð vegna dótturmissis og ykkur systkinum Auðar. Guð gefi ykk- ur styrk og megi góðu minning- arnar lýsa ykkur í söknuði og sorg. Bjarndís. Kominn er tími á kveðju- stund, Auður mín. Okkur óraði aldrei fyrir að tími okkar saman yrði ekki lengri. Það voru ekki ófáar gleðistundirnar sem við áttum saman í gegnum árin. Þú varst svo sannarlega traustur vinur og hrókur alls fagnaðar. Þú hafðir svo ótrúlega mikla hlýju og ást að gefa öllum, og máttir ekkert aumt sjá. Elsku Auja mín, ég er svo þakklát að hafa fengið að deila þessu ævintýri með þér. Ég veit þú ert komin á betri stað og þú tókst að þér að fara á undan til að athuga hvort það sé ekki ör- rugglega grand hinum megin. Við hittumst, við tengdumst og áttum yndislegar stundir saman. Kærar þakkir, elsku vinkona mín, fyrir að vera sam- ferða mér. Hvíl í friði, Auja mín, ég á eftir að sakna þín. Kæru Ari , Daníel, ættingjar og aðrir aðstandendur. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum ykkar erfiðu tímum. Kær Kveðja. Björg Bryndís Jónsdóttir. Það er erfitt að trúa því að hún Auður okkar sé farin. Hún var sterkur karakter og ekkert að barma sér þrátt fyrir að lífið væri oft óréttlátt hélt hún ótrauð áfram og stóð upp aftur og aftur. Auður missti föður sinn ung sem hafði eðlilega mikil áhrif á fjölskylduna, hún eignaðist dótturina Elsu Krist- ínu 17 ára gömul, en Elsa dó úr hvítblæði aðeins sjö ára. Það var erfiður tími fyrir Auði, því- lík var sorgin. Loks komu svo gullmolarnir, Ari og Daníel sem þurfa nú að kveðja móður sína langt um aldur fram. Auður greindist með mein í vélinda fyrir rúmu ári og voru henni ekki gefnar góðar líkur á bata. Hún var samt alltaf þrautseig, bjartsýn og jákvæð og ætlaði að hrista þetta af sér eins og margt annað. Auður var ráðagóð og alltaf til í að bjarga málum, hver sem þau voru. Hlátur hennar ómar í eyrum okkar, hún hreinlega hló sig í gegnum ótrúlegustu hluti og ekki síst veikindi sín síðasta árið. Alltaf hafði hún samt tíma fyrir vini sína, vildi allt fyrir þá gera og ávallt var gott að leita til hennar. Þegar við vorum á dögunum að vinna í annarri minningargrein um bekkjar- bróður okkar Rúnar, sögðum við oft, nú vantar Auði, hún hefði vitað þetta, hún var svo mannglögg og minnug. Þau voru ófá diskótekin sem við tjúttuðum á og bömpuðum. Við áttum líka marga skrautlega og skemmtilegar samverustundir á kaffihúsum síðustu ár, en Auður hafði afskaplega gaman af að klæða sig upp í búninga, elskaði allt bleikt og nýtti hvert tæki- færi sem gafst til að ganga með hatt. Árlegt smörrebröd á hót- elinu var ómissandi og þá var Auður í essinu sínu, enda jóla- barn fram í fingurgóma. Auður var hrein og bein, ef einhver gerði á hlut hennar fékk sá hinn sami að heyra það óþvegið, ekk- ert var skafið af og skipti þá litlu hver átti í hlut. Hún var líka hlý og fljót að bjóða faðm- inn ef einhver átti bágt, hafði ríka réttlætiskennd og átti auð- velt með að kynnast fólki. Hún var mikil handavinnukona, hekl- aði mikið og prjónaði lopapeys- ur. Erlendu háskólanemarnir hér á Ísafirði sóttu mikið í Ísól, kaffihúsið sem hún rak, en þar seldi hún veitingar, bakaði kök- ur og kenndi nemendunum ís- lensku og að prjóna lopapeysur. Hún leyfði þeim að nota eldhús- ið og þvottavélina ef því var að skipta og var alltaf til í að að- stoða. Auður var stolt af sonum sín- um og vildi allt fyrir þá gera, en lagði samt mikla áherslu á þeir yrðu sjálfbjarga og sjálfstæðir einstaklingar. Elsku Ari og Daníel, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og vonum að þið öðlist styrk til að halda ykkar markmiðum í lífinu og gerið mömmu ykkar stolta. Það er mjög erfitt að kveðja Auði og við sendum ættingjum og að- standendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minning henn- ar mun lifa. Fyrir hönd árgangs 1962 á Ísafirði, Ingibjörg Snorradóttir Hagalín. Auður systir er fallin frá. Við blasir þessi blákalda staðreynd sem erfitt verður að sætta sig við. Ég varð þess heiðurs að- njótandi að eiga hana sem stóru systur sem allt gat og vissi. Hún var ekki gömul þegar hún rogaðist með mig um allar triss- ur í vagninum og á handleggn- um, passaði svo sannarlega vel upp á litla bróður sem hún var svo stolt og ánægð með að eiga. Allar götur síðan hefur hún fylgst vel með mér og minni fjölskyldu, gefið kjarngóð ráð og umvafið okkur hlýju og kær- leika. Dugleg var hún að hrósa börnum okkar Silju og fylgdist vel með þeim í leik og starfi. Auður var mannvinur og átti auðvelt með að rétta öðrum hjálparhönd þegar á þurfti að halda en viðurkenningin frá Rauða krossinum fyrir 20 ára starf ber þess glöggt merki. Auður hins vegar átti erfiðara með að þiggja hjálp eða aðstoð frá öðrum ef hún þurfti á að halda. Hún mátti ekkert aumt sjá og var alltaf tilbúin til að- stoðar náunganum. Systir mín var hrókur alls fagnaðar þegar sá gállinn var á henni og var alltaf skemmtilegt og gefandi að vera í kringum hana, hlátur- mild, stríðin og alltaf að gera að gamni sínu. Auður eignaðist þrjú börn, Elsu Kristínu, Ara Auðunn og Daníel Þór. Líf Auðar var ekki alltaf dans á rósum en fyrsta barn hennar, Elsa Kristín, lést úr hvítblæði aðeins 6 ára gömul. Óhætt er að segja að sorgin og söknuðurinn hafi nánast yfir- bugað systur okkar á sínum tíma og átti hún erfitt með að lifa með þeirri staðreynd að litla fallega barnið hennar væri látið. Auður var stolt og ánægð með að vera Ísfirðingur, þótti vænt um bæinn sinn og bæj- arbúa og vildi í raun hvergi annars staðar búa. Þegar Auður veiktist vildi hún leita sem mest aðstoðar hjá sjúkrahúsinu í bænum og þegar að því kom að hún færi í líknandi meðferð ósk- aði hún eftir því að fá að eiga síðustu stundirnar þar í faðmi strákanna sinna, systkina og nánustu vina. Ég kveð Auði systur sem var mér svo kær og þakka fyrir þær stundir sem við áttum sam- an. Minningarnar um góða og skemmtilega systur munu lifa í hjarta mínu um ókomna tíð. Ég bið góðan Guð um að styrkja Ara og Daníel á þessum erfiðu tímum, móður mína og systkini. Bjarni bróðir. Dásamlega skemmtilega og fallega mágkona mín er farin frá okkur. Ég hef þekkt Auði meira en helming ævi minnar. Mér þótti afar vænt um hana og vorum við góðar vinkonur. Það var aldrei leiðinlegt að vera í kringum Auði, hún var alltaf eldhress og til í allt. Það eru ótal dýrmætar stundir sem við höfum átt saman og undanfarna daga höfum við fjölskyldan farið í gegnum ótal myndaalbúm sem geyma gersemar. Þá er minn- isstæð Spánarferð sem við fjöl- skyldan fórum saman með Auði og strákunum hennar, Ara og Daníel, í þrjár vikur. Við skemmtum okkur svo vel öll saman og vorum við Auður svo hrifnar að við ætluðum að kaupa hús þarna saman og fara þangað á hverju ári, það varð þó ekki raunin, við fórum aldrei aftur þangað saman en minn- ingarnar ylja. Stelpurnar okkar hjóna hafa átt mikið og gott samband við Auði og það var svo magnað hvað hún var stolt af öllum þessum frænkum og frændum sínum, tala nú ekki um strákana sína sem hún sá ekki sólina fyrir. Thelma dóttir okkar hjóna tengdist Ísafirði snemma á ung- lingsárunum og var það Auður sem kynnti hana fyrir bænum sínum með því að fá hana í vinnu til sín, það var ekki aftur snúið því Thelma var gjörsam- lega heilluð og mörg sumur í röð hafa þær brallað þar ým- islegt saman. Kamilla og Soffía munu líklega ekki ná þessari tengingu því Ísafjörður verður aldrei samur. Elsku yndislega Auður mín, mikið á ég eftir að sakna þín og yndislega smitandi hlátur þíns. Ég trúi því og treysti að það sé fjör hjá þér, pabba þínum og Elsu þinni núna. Elsku Ari, Daníel og fjöl- skylda, mín innilegasta samúð. Elsku Auður, takk fyrir allar peysurnar og takk fyrir að hafa verið stelpunum mínum svo góð, takk fyrir allt. Þú munt lifa áfram í hjörtum okkar alla tíð. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Þín mágkona, Silja. Auður Ósk Aradóttir Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Útfarar- og lögfræðiþjónusta Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.