Morgunblaðið - 22.07.2017, Page 1
!"
#
L A U G A R D A G U R 2 2. J Ú L Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 175. tölublað 105. árgangur
RAGNHILDUR
MEÐ MJÖG
SVARTAN HÚMOR
MIKILL STUÐNINGUR Í HOLLANDI
ÍSLAND MÆTIR SVISS SÍÐDEGIS 14FRAMLEIÐANDI 12
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrirhugað glæsihótel í Landssíma-
húsinu við Austurvöll verður í fyrsta
lagi opnað rúmu ári á eftir áætlun.
Heimildarmaður blaðsins, sem
þekkir til Landssímareitsins, segir
vanhæfni í borgarkerfinu skýra taf-
ir. Stjórnkerfið ráði ekki við málið.
Framkvæmdir við einstaka þætti
séu bannaðar, þótt þær séu í sam-
ræmi við gildandi deiliskipulag.
Viðmælendur blaðsins í verktaka-
geiranum, bankakerfinu og ferða-
þjónustu nefndu mörg lík dæmi.
Fjöldi aðila hafi tapað fé við fjárfest-
ingar í miðborginni að undanförnu
vegna óþarfa tafa. Til dæmis hafi
veitingamenn þurft að borga laun án
tekna vegna óvæntra tafa. Þá hafi
fjárfestar orðið af leigutekjum.
Landssímaverkefnið er umfangs-
mikið byggingarverkefni. Bent var á
að hver mánuður í töfum mundi
kosta framkvæmdaaðila stórfé.
Verktaki sem ræddi við blaðið í
trausti nafnleyndar tók dæmi af
embættismanni sem stöðvaði fram-
kvæmdir vegna þess að það yrði ekki
nóg dagsbirta í íbúð. Byggingin hefði
hins vegar verið að fullu í samræmi
við reglugerð. „Menn eru farnir að
skipta sér af smæstu smáatriðum,
sem aldrei var spurt um. Það er ekki
hlutverk embættismanna,“ sagði
verktakinn um ástandið.
Tafirnar kosta mikið fé
Verktaki segir hægagang í borgarkerfinu stórskaða fyrirtæki Embættis-
menn fari út fyrir hlutverk sitt Framkvæmdir við Austurvöll hafa tafist mikið
MLandssímareiturinn »9
Tölvumynd/THG arkitektar
Breytt útlit Kynnt hefur verið útlit
bygginga á Landssímareitnum.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég hélt að þetta væri eftir einhvern
garðyrkjumann en fannst skrýtið
lagið á pottunum sem þetta var
ræktað í,“ segir Arnar H. Gestsson,
annar eigandi jarðarinnar Miðdals 1
í Kjós, en umhverfissóðar hafa verið
þar á ferð og skilið eftir allskonar
rusl, meðal annars sundurskotna
plastpoka með garðúrgangi, gaskúta
og gamalt baðherbergi sem hefur
verið hent nánast í heilu lagi.
Blaðamaður greindi lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu frá þessum
garðúrgangi og taldi hún afar líklegt
að um mold úr kannabisræktun væri
að ræða.
„Það koma bara einhverjir þarna
sem tíma ekki að borga eitt til tvö
þúsund krónur í Sorpu. Það hefur
líka einhver verið að standsetja bað-
herbergi og farið með ruslið á mína
lóð. Ég þurfti að biðja lögregluna
fyrir mánuði að fjarlægja gaskúta
sem skildir voru eftir á landinu,“
segir Arnar. Hann telur sundur-
skotna plastpokana og skothylki
vera eftir skotveiðimenn, sem hafi
farið í óleyfi inn á landið til að æfa
sig. „Ég er langþreyttur á ágangi og
umgengni fólks á landinu og er þeg-
ar byrjaður undirbúning að því að
landið verði girt auk þess að kaupa
hlið til þess að loka óboðna gesti úti.“
Kannabis-
mold á
víðavangi
Morgunblaðið/Ófeigur
Úrgangur Kannabisplöntum og
mold hent og liggur á víðavangi.
Eigandi Miðdals
þreyttur á sóðum
KÞBAVD-vagninn, sem sigraði í hönnunarkeppni Strætó í byrjun júlí, var af-
hjúpaður við strætóbiðstöðina í Mjódd í gær. Stendur skammstöfunin
KÞBAVD fyrir frasann „konur þurfa bara að vera duglegri“, og er að sögn
höfundar, Lenu Margrétar Aradóttur, kaldhæðin ádeila í jafnréttisumræð-
una. Glatt var á hjalla hjá farþegum er gengu inn í strætisvagninn. Alls bár-
ust um 1.700 tillögur í keppnina og rúmlega 50.000 manns greiddu atkvæði.
Jómfrúarferð KÞBAVD-strætisvagnsins
Morgunblaðið/Hanna
Algjör um-
skipti hafa orðið
á gosdrykkja-
markaði und-
anfarin ár og
sala á sykur-
lausum gos-
drykkjum aukist
á kostnað sykr-
aðra.
Aukninguna
má rekja til auk-
innar sölu á kolsýrðu vatni, sem er
orðið næstmest seldi vöruflokk-
urinn á markaðnum. Kóladrykkir
eru þó enn vinsælastir en sala syk-
urlausra kóladrykkja hefur aukist.
Coca Cola er enn vinsælast. »18
Sykurlaust gos tek-
ur fram úr sykruðu
Sala á kolsýrðu
vatni hefur aukist.
Deilur standa á milli fyrrverandi
sóknarprests á Staðastað, séra Páls
Ágústs Ólafssonar, og kirkjuráðs.
Snúast deilurnar um hvenær Páli sé
skylt að afhenda prestsbústaðinn.
Að sögn Biskupsstofu var Páli
gefinn frestur til 12. júlí sl. til að
skila húsinu. Páll neitaði hins vegar
með svarbréfi 3. júlí síðastliðinn að
afhenda lykla að íbúðarhúsinu.
Lýsti hann því yfir að ábúðarlög
ættu við og að hann gæti setið stað-
ið fram á vor 2018.
Oddur Einarsson, framkvæmda-
stjóri kirkjuráðs, segir þá dagsetn-
ingu, sem var gefin fráfarandi
sóknarpresti til að skila húsnæðinu,
vera liðna. Undirbúa þurfi húsið
fyrir næsta prest. Ekki hefur verið
búið í prestsbústaðnum síðan mygla
kom upp í honum veturinn 2015.
Varð sr. Páll þá að flytja í Borgar-
nes með fjölskyldu sína. »16
Deilur á milli fyrrverandi sóknarprests og
kirkjuráðs um afhendingu Staðastaðar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mannlaust Enginn hefur búið í
prestsbústaðnum í eitt og hálft ár.
Tillaga að breytingu á deiliskipu-
lagi Öskjuhlíðar vegna Perlunnar
hefur verið auglýst á heimasíðu
Reykjavíkurborgar.
Í breytingunni felst m.a. að gera
byggingarreit fyrir nýtt mannvirki
norðan Perlunnar sem er að mestu
neðanjarðar og tengist núverandi
byggingu og breyta staðsetningu á
nýjum hitaveitutanki. Aukinn
ferðamannastraumur þýðir að ekki
er lengur æskilegt að nýta núver-
andi geyma undir heitt vatn.
Nýbyggingin verður samtals um
750 fermetrar að stærð og mun
hýsa stjörnuver, „Planetarium“,
sem er ætlað mikilvægt hlutverk í
náttúrusýningu Perlunnar.
Það sem verður sýnilegt ofan-
jarðar er efsti hluti hringlaga sí-
valnings, um 18 metra í þvermál
með hallandi þaki. Húsið verður
klætt ljósu sinki. »10
Nýbygging sem rís við Perluna í Öskjuhlíð
hýsir stjörnuver nýrrar náttúrusýningar
Morgunblaðið/Ómar