Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Áfram var leitað í gær að mann-
inum sem fór í Gullfoss á miðviku-
dag, án árangurs. „Fókusinn hefur
verið á að leita með drónum á lík-
legum stöðum í ánni, með báta til-
tæka ef það myndi eitthvað sjást
sem ástæða væri til að skoða nán-
ar,“ segir Davíð Már Bjarnason,
upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í
samtali við Morgunblaðið.
„Það var ákveðið að halda áfram
leit á morgun [í dag]. Næsta lota í
leit mun samanstanda af slöngu-
bátum, drónum og svifnökkva, auk
þess sem óskað hefur verið eftir
sérhæfðum straumvatnsbjörgunar-
mönnum,“ segir Davíð Már.
Hann segir rúmlega 200 einstak-
linga hafa tekið þátt í leit björg-
unarsveitanna síðan á miðvikudag
og að vel hafi gengið að manna leit-
ina við Hvítá. „Við erum með rúm-
lega þrjú þúsund á útkallsskrá og
það gengur yfirleitt mjög vel að
manna leitir. Það hefur ekki verið
mannekla í þessari leit.“
Davíð Már segist búast við því
að áfram verði leitað með svipuð-
um hætti í dag og að drónar spili
lykilhlutverk í leitinni. „Drónarnir
hafa gjörbylt svona leitum. Þeir
komast hraðar yfir og eru mjög
góð viðbót við aðrar leitaraðferðir.“
Lífsháski við leitina
Í gær lentu þrír menn frá björg-
unarsveitinni Björg á Eyrarbakka í
háska við leitina, eftir að bátur
þeirra varð vélarvana við Bræðra-
tungubrú í Hvítá. Hending réði því
að aðrir nærstaddir björgunar-
sveitarmenn athuguðu með hópinn
og sáu þá björgunarsveitarmenn-
ina þrjá fasta við net undir brúnni,
sem strengt var upp vegna leit-
arinnar, og náðu að bjarga þeim í
land.
Ekki er ljóst hvort ástæða þykir
til þess að skoða öryggismál við
Gullfoss í ljósi atburðarins. „Það er
bara hlutur sem á eftir að skoða.
Þetta er akkúrat sumarleyfismán-
uður og sveitarstjórn hefur ekki
fundað síðan þetta gerðist. Ég get
lítið sagt, en að sjálfsögðu verður
allt skoðað,“ segir Valtýr Valtýs-
son, sveitarstjóri Bláskógabyggð-
ar.
„Það er búið að vera að vinna
mikið að aðgengismálum að Gull-
fossi og Umhverfisstofnun er búin
að vera í fararbroddi með það.
Menn munu leggjast yfir þetta og
skoða allar forsendur. En fyrst er
náttúrlega að fá allar staðreyndir
upp á borð og meta þær með rök-
legum hætti,“ segir Valtýr.
Halda áfram leit við Gullfoss
Þrír björgunarsveitarmenn hætt komnir á ánni Athugað verður hvort ástæða
sé til að skoða öryggismál við Gullfoss Drónar hafa gjörbylt leitum sem þessum
Morgunblaðið/Eggert
Leitað Björgunarsveitarmenn frá
Eyrarbakka lentu í háska í gær.
Kveikt var í bíl í gær sem stóð utan
við sjúkrahúsið Vog við Stórhöfða í
Reykjavík. Lögreglan hefur ákveð-
inn einstakling grunaðan um athæf-
ið, en sá stakk af frá vettvangi. Hans
var leitað í gær. Ekki er vitað með
hvaða hætti maðurinn kveikti í bíln-
um, sem varð alelda á skammri
stundu, að sögn sjónarvotta.
Eldurinn læsti sig í næsta bíl á
bílastæðinu og eru báðir bílarnir
gjörónýtir. Þá náði kona ásamt litlu
barni naumlega að forðast það að
eldurinn bærist í bíl þeirra. Að sögn
lögreglu voru þau hætt komin.
Starfsmönnum á sjúkrahúsinu var
verulega brugðið eftir íkveikjuna, en
sumir þeirra óttuðust að eldur myndi
berast í húsið.
Kviknaði í tveimur bílum við Vog
Lögregla leitar
brennuvargsins
Ljósmynd/Aðsend
Bílabruni Báðir bílarnir eru taldir gjörónýtir eftir íkveikjuna. Sá rauði varð að sögn sjónarvotta fljótt alelda.
Tveir sölumenn voru handteknir á
höfuðborgarsvæðinu í fyrradag
fyrir að hafa selt svikna vöru, flíkur
sem ekki reyndust í þeim gæða-
flokki sem þeir höfðu fullyrt við
grandalausa kaupendur.
Í tilkynningu lögreglu segir að
sölumennirnir, erlendir ríkisborg-
arar, hafi selt fatnað á förnum vegi.
„Við húsleit á dvalarstað mann-
anna, sem eru á þrítugs- og fertugs-
aldri, var lagt hald á nokkra tugi
jakka. Þar var einnig að finna fjár-
muni, en lögreglan skilaði pen-
ingum til eins viðskiptavina þessara
óprúttnu sölumanna, en sá hafði
keypt af þeim nokkra jakka í góðri
trú,“ segir lögreglan.
Sölumenn hand-
teknir fyrir að selja
svikna vöru
Maður sem slasaðist við vinnu sína í
Plastgerð Suðurnesja í gær hefur
verið úrskurðaður látinn. Var það
staðfest af lögreglunni á Suður-
nesjum. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu var maðurinn að
hreinsa vél, sem steypir frauð-
plastskassa, þegar hún fór skyndi-
lega af stað og varð hann undir
einu af mótunum. Hann þurfti önd-
unaraðstoð þegar sjúkraliðar komu
á vettvang og lést af áverkum sín-
um á slysadeild. Ættingjar manns-
ins, sem var á fertugsaldri og pólsk-
ur að uppruna, hafa verið upplýstir.
Maður látinn eftir
vinnuslys í Keflavík
Maðurinn sem
lést í Gullfossi á
miðvikudag, og
leitað hefur verið
að síðan þá, hét
Nika Begades.
Hann var 22 ára
Georgíumaður,
búsettur í Reykjanesbæ og hafði
stöðu hælisleitanda hér á landi.
Nika var einhleypur og barnlaus.
Vinir hans hérlendis aðstoð-
uðu lögreglu við að hafa uppi á
fjölskyldu hans í Georgíu og láta
hana vita af afdrifum hans. Ekki
hafa fengist upplýsingar um það
hversu lengi Nika hafði dvalið
hérlendis.
22 ára frá
Georgíu
MAÐURINN SEM LÉST
Nika Begadas
Dagskrá Hinsegin daga í Reykjavík var kynnt í
Stúdentakjallaranum í gær. Fjölmargir við-
burðir verða á dagskránni frá 8.-13. ágúst, á
meðan hátíðin stendur yfir.
„Það eru alltaf ákveðin þáttaskil þegar dag-
skráin er birt og búið að setja punktinn þar, ekki
hægt að breyta neinu í því. Nú fara næstu vikur í
að tryggja það að allt sem er í blaðinu muni eiga
sér stað,“ segir Gunnlaugur Bragi Björnsson,
einn skipuleggjenda hátíðarinnar.
Gleðigangan fer fram hinn 12. ágúst og hefur
gönguleiðinni verið breytt vegna framkvæmda
neðan Arnarhóls. „Við erum að snúa henni við.
Göngunni verður stillt upp á Hverfisgötunni og
hún byrjar formlega á gatnamótum Hverfisgötu
og Ingólfsstrætis, svo er gengið niður Hverfis-
götuna að Lækjargötu, tekin vinstri beygja og
endað á Sóleyjargötunni þar sem gangan hefur
byrjað síðustu ár,“ segir Gunnlaugur. Útihátíðin
verður svo haldin í Hljómskálagarðinum og þar
reiknar Gunnlaugur með gífurlegri stemningu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðigangan verður öfug þetta sumarið
Kynning í gær á Hinsegin dögum – Reykjavík Pride 2017
Allt slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins var kallað út í álverið í
Straumsvík síðdegis í gær eftir að
skammhlaup varð í rafstreng sem
liggur frá tölvuhúsi í skrifstofuhús.
Þegar fyrsti bíll mætti á vettvang
var stórum hluta slökkviliðsins snú-
ið við. Bjarni Már Gylfason, upplýs-
ingafulltrúi Rio Tinto í Straumsvík,
sagði að engin hætta hefði verið á
ferðum og enginn eldur kviknað út
frá skammhlaupinu.
Skammhlaup í raf-
streng í Straumsvík
Morgunblaðið/Ófeigur
Straumsvík Slökkvilið á vettvangi.