Morgunblaðið - 22.07.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Mönnum er enn í fersku minniþegar fjármálaráðherra
kvaddi sér hljóðs á dögunum og
vildi taka seðla úr umferð. Þetta
var liður í baráttu hans gegn krón-
unni en árásin var
svo fráleit að hann
dró í land daginn
eftir og hafði ekki
annað upp úr krafs-
inu aðhlátur al-
mennings. Bersýni-
legt er að
fjármálaráðherra
líkaði þetta illa svo
í gær stakk hann niður penna í
Fréttablaðinu og spurði hvort fjár-
málaráðherra mætti hafna krón-
unni, sem hann svo gerði með af-
dráttarlausum hætti.
Þá svaraði hann sjálfum sér ogsagði fjármálaráðherra mega
hafna krónunni. Rökin væru þau
að fjármálaráðherrar í nítján Evr-
ópulöndum hefðu „þegar hafnað
sínum miðli fyrir evruna“.
En ætli fjármálaráðherrar þess-ara nítján landa hafi hafnað
gjaldmiðli sínum á sama hátt og
Benedikt hafnar krónunni? Nei, að
sjálfsögðu ekki. Fjármálaráðherr-
ar þessara ríkja voru ekki í her-
ferð gegn eigin mynt, en þeir
héldu því fram á sínum tíma að
evran myndi þjóna Evrópu betur
og voru þá ekki síst að hugsa um
pólitískar aðstæður og frið í álf-
unni.
Nú hafa margir hins vegar átt-að sig á að evran var mistök
sem hefur farið hamförum um sum
evruríkin. En þetta eru mistök sem
erfitt hefur reynst að bakka út úr.
Staðreyndin er sú að fjár-málaráðherra getur ekki leyft
sér ítrekaðar árásir á eigin gjald-
miðil. Hann verður að velja á milli
embættisins og evrubolsins.
Benedikt
Jóhannesson
Embættið eða
evrubolurinn?
STAKSTEINAR
Matvælastofnun
hefur kært
lambsdrápið í
Breiðdal 3. júlí
síðastliðinn, til
lögreglu. Í
krufningar-
skýrslu kemur
fram að lambið
hafi hlotið mikla
áverka áður en það var aflífað.
Erlendir ferðamenn eltu lambið
um kílómetra leið, alveg niður að sjó,
þar sem þeir handsömuðu það og
skáru á háls. Alls voru ferðamenn-
irnir níu talsins, en kæra Mat-
vælastofnunar beinist þó aðeins að
einum mannanna.
Ábúendur á Núpi í Berufirði stóðu
mennina að verki og lögregla var
kölluð til. Í kjölfarið voru ferða-
mennirnir handteknir og sektaðir
fyrir eignarspjöll. Mönnunum var
gert að borga tjón eigendanna vegna
lambsmissisins og 120.000 kr. sekt í
ríkissjóð.
Nú hefur Matvælastofnun sem áð-
ur segir kært dýraníð til lögreglu.
Talið er að mennirnir séu farnir úr
landi, en viðurlög við broti sem
þessu geta numið árs fangelsi.
Misþyrm-
ingin kærð
til lögreglu
Eltu lambið uppi
og skáru það á háls
Fjárveiting hefur fengist til að þess
að hefja fyrsta áfangann við breikk-
un á Gjábakkavegi við Þingvelli í
haust. „Það er búið að velta þessu
mikið fyrir sér í samræðum við
Þingvallanefnd og þjóðgarðsvörð.
Fjárveiting liggur fyrir til að byrja á
framkvæmdum, á fyrsta áfang-
anum,“ segir Einar Magnússon,
verkefnastjóri hjá Vegagerðinni en
þröngur Gjábakkavegur er talin or-
sök þess að rúta fór útaf honum sl.
miðvikudag. Sagði framkvæmda-
stjóri rútufyrirtækisins veginn stór-
hættulegan. Áætlað er að hefja
framkvæmdirnar hjá þjónustu-
miðstöðinni við Þingvelli og verður
vegurinn breikkaður í þrjá til fjóra
kílómetra til austurs.
„Vegurinn verður breikkaður og
aðallega styrktur þannig að hann
beri þessa umferð svo þetta hangi
saman. Það verður að breikka hann
til að styrkja hann,“ segir Einar. Í
seinni áfanga viðgerðarinnar verður
ráðist í endurnýjun á bílastæðum á
svæðinu ásamt öðrum vega-
viðgerðum. Einar segir að breikkun
vegarins sé nauðsynleg í ljósi auk-
innar umferðar á svæðinu vegna
fjölda ferðamanna. Þá er ekki kom-
inn nákvæm dagsetning um hvenær
framkvæmdir hefjast. „Það er engin
dagsetning komin. Það er verið að
sækja um nauðsynleg leyfi,“ segir
Einar. mhj@mbl.is
Viðgerð á Gjábakkavegi hefst í haust
Framkvæmdastjóri rútufyrirtækis segir Gjábakkaveg vera stórhættulegan
Morgunblaðið/RAX
Hola Viðgerðir hefjast bráðlega.
Veður víða um heim 21.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 alskýjað
Bolungarvík 12 alskýjað
Akureyri 13 skýjað
Nuuk 16 léttskýjað
Þórshöfn 12 léttskýjað
Ósló 18 heiðskírt
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 19 heiðskírt
Helsinki 19 léttskýjað
Lúxemborg 25 heiðskírt
Brussel 25 heiðskírt
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 18 skýjað
London 20 léttskýjað
París 24 heiðskírt
Amsterdam 21 heiðskírt
Hamborg 21 léttskýjað
Berlín 25 heiðskírt
Vín 29 heiðskírt
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 30 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 32 heiðskírt
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 23 alskýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 27 léttskýjað
Chicago 27 heiðskírt
Orlando 29 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:05 23:05
ÍSAFJÖRÐUR 3:39 23:40
SIGLUFJÖRÐUR 3:21 23:24
DJÚPIVOGUR 3:27 22:42
Arctic Trucks
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
sími 540 4900
info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.is
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
Vandaðar plasthlífar á flestar gerðir bifreiða
sem hlífa bílnum gegn grjótkasti og varna
lakkskemmdum.
Sendum í póstkröfu hvert á land sem er!
• Húddhlífar
• Gluggavindhlífar
• Ljósahlífar
PLASTHLÍFAR