Morgunblaðið - 22.07.2017, Side 9
Tölvumynd/THG arkitektar
Breytt ásýnd Svona mun Landssímahúsið líta út eftir breytingu, samkvæmt nýjustu tillögu arkitekta.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkur hefur samþykkt að
auglýsa umsókn THG arkitekta að
breytingu á deiliskipulagi Lands-
símareits við Austurvöll í Reykjavík.
Kynningin gefur til kynna hvernig
fyrirhugað Iceland Parliament Hot-
el mun líta út. Fyrstu áætlanir gerðu
ráð fyrir að hótelið yrði opnað næsta
vor. Nú stefnir í að hótelið verði opn-
að rúmu ári síðar.
Reiturinn heitir eftir gamla
Landssímahúsinu. Hann afmarkast
af Thorvaldsensstræti, Kirkju-
stræti, Aðalstræti og Vallarstræti.
Ásamt því að snúa að Austurvelli
liggur reiturinn að Ingólfstorgi og
Víkurgarði. Bent skal á að stórhýsi á
Aðalstræti 9 er ekki hluti af reitnum.
Á Landssímareitnum eru sögu-
legar byggingar. Samkvæmt deili-
skipulagslýsingu var Thorvaldsens-
stræti 2 til dæmis byggt 1878 og
Thorvaldsensstræti 4, gamla Lands-
símahúsið, byggt 1931. Talið sé að
kirkja hafi risið í Víkurgarði fljót-
lega eftir kristnitöku. Við kirkjuna
hafi verið grafreitur sem notaður
var um 800 ára skeið.
Sýni Kvosinni virðingu
Freyr Frostason, arkitekt hjá
THG arkitektum, hefur unnið að
hönnun reitsins í 18 mánuði.
Hann segir hönnunina fylgja sam-
þykktu deiliskipulagi. Gerðar hafi
verið smávægilegar breytingar.
„Við viljum láta nýbyggingar falla
vel inn í eldri byggð. Og bera virð-
ingu fyrir umhverfinu og Kvosinni.
Við fylgjum deiliskipulagi hvað varð-
ar byggingarmagn, form, hæðir og
jafnvel liti. Breytingarnar eru meira
tæknilegs eðlis. Þetta er sambland
af eldri byggð, friðuðum húsum og
nýbyggingum. Það verða gerðar litl-
ar breytingar á útliti Landssíma-
hússins. Það þarf hins vegar að gera
við steinklæðningu á húsinu og verð-
ur hún hugsanlega sett í ljósari lit.
Samkvæmt deiliskipulagi má hækka
þakið. Risinu verður lyft eins og gert
var á Hótel Borg á sínum tíma. Á
jarðhæð verður veitingastaður sem
snýr að Austurvelli.“
Minnir á Alþingishúsið
Freyr segir aðspurður að milli
Landssímahússins og nýbygginga
við Kirkjustræti verði gafl af við-
byggingu frá árinu 1967, sem að
öðru leyti verður rifin. Viðbyggingin
hefur húsnúmerið Thorvaldsens-
stræti 6. Á jarðhæð nýbyggingar í
Kirkjustræti hefur verið teiknuð
steinklæðning sem minnir á stein-
hleðslurnar í Alþingishúsinu.
„Þakform og hæð nýbygginga við
Kirkjustræti tekur mið af eldri
byggingum við syðri enda götunnar.
Jarðhæðin verður opin í báðar áttir,
að gamla Víkurgarðinum og Aust-
urvelli. Þar verður veitingastaður,
kaffihús og verslanir,“ segir Freyr.
Á þaki nýbyggingar, sem kemur í
stað viðbyggingarinnar frá 1967,
verða tvær inndregnar hæðir.
„Við sjáum fyrir okkur létta bygg-
ingu með stórum glerflötum svo
gestir geti notið útsýnisins. Það
skapar léttleika fyrir reitinn og sjón-
ræn áhrif byggingarinnar eru lág-
mörkuð,“ segir Freyr.
Norðan við fyrirhugaða glerbygg-
ingu er skrifstofuhús, Aðalstræti 11,
sem er hæsta byggingin á reitnum.
Freyr segir að skv. deiliskipulagi
eigi þar að vera inndregin hæð.
Teiknuð hafi verið létt bygging með
mænisþaki. Gert sé ráð fyrir svítu á
hæðinni, með svölum allan hringinn.
Við Ingólfstorg verða nokkrar
byggingar sem tilheyra reitnum.
Tvær þeirra, Aðalstræti 7 og
Vallarstræti 4, eru friðuð hús. Þau
verða gerð upp og verður Vallar-
stræti 4, sem er rauðmálað og norð-
an við Austurstræti 11, fært í upp-
runalegt horf. Á jarðhæð þessara
húsa verður verslun og þjónusta. Á
milli þessara húsa kemur nýbygg-
ing, Vallarstræti 2, í anda eldri húsa.
Freyr segir gamla Kvennaskólann
verða færðan í upprunalega mynd.
„Húsið hefur nú aðeins tvær götu-
hliðar. Tvær hliðar voru fjarlægðar
og eru hluti af sal Nasa. Við ætlum
að endurbyggja þessar hliðar þannig
að húsið standi sjálfstætt með fjór-
um hliðum. Það verður glerbygging
á milli, sem slítur húsið frá viðbygg-
ingu. Fær meiri reisn eins og hæfir.“
Að sögn Freys verður Thorvald-
sensstræti 2, sem nú síðast hýsti
skemmtistaðinn NASA, end-
urbyggt. Salurinn verði færður í
mynd gamla Sjálfstæðissalarins,
þegar Sjálfstæðisflokkurinn var þar.
NASA verði áfram tónleikasalur.
Landssímareiturinn að mótast
Reykjavíkurborg kynnir tillögu að breyttu deiliskipulagi Tónleikasalur á Nasa verður færður í
upprunalega mynd Sjálfstæðissalarins Nýbyggingar breyta ásýnd Kirkjustrætis og Vallarstrætis
Torg Móttakan mun snúa að torgi á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Ingólfstorg Í Vallarstræti koma nýbyggingar milli gömlu timburhúsanna.
Kirkjustræti Samkvæmt eldri tillögu hefði götuhornið litið svona út. Fyrri drög Svona litu hugmyndir arkitekta út á fyrri stigum.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Icelandair
Hotels, segir stefnt að því að
opna hótelið vorið 2019. Það
liggi ekki fyrir hver endanlegur
kostnaður við verkefnið verður.
Það eigi eftir að bjóða verkið út.
Starfsmenn hótelsins verði
um 40 og herbergin 160. Byggt
verði hágæða hótel. Á jarðhæð
verði veitingastaður sem snýr
að Austurvelli. Þá verði verslun,
kaffihús og bar á jarðhæð í hús-
um við Kirkjustræti. Hótelið
muni ekki hafa afnot af bygg-
ingum við Vallarstrætið.
Landssímareiturinn er í eigu
Lindarvatns ehf. sem er í jafnri
eigu Icelandair Group hf. og
Dalsness ehf.
Opnað 2019
HERBERGIN VERÐA 160
Kvenfélagið Hringurinn hefur fært
bráðamóttökunni á Landspítala
Fossvogi að gjöf ómtæki til skoð-
unar á börnum. Er ómtækið eitt
þeirra þriggja sem Hringurinn færir
Landspítalanum á þessu ári. Var
tækið formlega afhent í vikunni og
er þegar komið í notkun, segir í til-
kynningu frá Landspítalanum.
Er ómtækið eitt það fullkomnasta
sem völ er á til að skoða og meta
mögulega innvortis áverka hjá börn-
um sem orðið hafa fyrir slysum.
Árlega leita um 13.000 börn á
bráðamóttökuna í Fossvogi með
áverka eftir slys. Hættulegir áverk-
ar koma ekki alltaf strax í ljós „og
því getur skipt sköpum að greina
sem allra fyrst lífsógnandi leynda
áverka og geta strax hafið viðeigandi
meðferð og eftirlit“, segir í tilkynn-
ingu. Afar mikilvægt sé því að hafa
rétt tæki til staðar á bráðamóttöku
til að flýta greiningum á alvarlegum
áverkum hjá börnum.
Eru stjórnendur bráðamóttöku-
nnar afar þakklátir Hringnum fyrir
gjöfina. Ljósmynd/Landspítalinn
Hringurinn gefur
nýtt ómtæki