Morgunblaðið - 22.07.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Öskjuhlíðar vegna Perlunnar hefur
verið auglýst á heimasíðu Reykja-
víkurborgar.
Í breytingunni felst m.a. að gera
byggingarreit fyrir nýtt mannvirki
norðan Perlunnar sem er að mestu
neðanjarðar og tengist núverandi
byggingu og breyta staðsetningu á
nýjum hitaveitutanki. Einnig felst í
tillögunni færsla á núverandi stígum
og lagning nýrra stíga sem eru í
samræmi við vinningstillögu í hug-
myndasamkeppni um skipulag
Öskjuhlíðar frá 2014.
Nýtt hlutverk Perlunnar
Breytingarnar koma meðal ann-
ars til vegna þess að Perlan hefur
fengið nýtt hlutverk sem aðsetur
náttúrusýningar. Perlan var tekin í
notkun árið 1991. Hún var byggð of-
an á hitaveitutankana eftir teikning-
um Ingimundar Sveinssonar arki-
tekts.
Nýbyggingin verður samtals um
750 fermetrar að stærð og mun hýsa
stjörnuver, „planetarium“, sem er
ætlað mikilvægt hlutverk í framtíð-
arnýtingu hússins. Það sem verður
sýnilegt ofanjarðar er efsti hluti
hringlaga sívalnings um 18 metrar í
þvermál með hallandi þaki, sem rís
hæst tæpa 7,5 metra yfir gólfkóta
aðalhæðar Perlunnar. Húsið verður
klætt ljósu sinki.
Í greinargerð sem fylgir deili-
skipulagstillögunni og unnin er af
starfsmönnum Landmótunar kemur
fram að áhættugreining hafi verið
gerð á starfsemi Veitna umhverfis
Perluna í Öskjuhlíð. Niðurstaða
greiningarinnar bendir til þess að
framtíð reksturs hitaveitutanka sé
betur komið í mannvirkjum sem
ekki tengjast mikilli umferð ferða-
manna. Viðhald, rekstur og endur-
nýjun geymanna í núverandi mynd
sé annmörkum háð. Aukinn ferða-
mannastraumur og ný mannvirki
svo nærri hitaveitugeymum Veitna
sé ekki æskilegur kostur. Til langrar
framtíðar megi tryggja Reykvíking-
um heitt vatn í nýjum geymum sem
gengið er þannig frá að þeir ógni
ekki öryggi vegfarenda þó leki komi
að geymum.
Í dag eru sex hitaveitutankar í
Perlunni en þeir tryggja nægt miðl-
unarrými hitaveitu í vesturborginni.
Tveir tankanna eru fullir af 35-40°C
heitu „retúrvatni“ sem ósættanlegt
sé að geyma áfram nærri þeim mikla
fólksfjölda sem heimsækir Perluna.
Nokkur vinna hefur farið í að
velja nýja staðsetningu fyrir tank
eða tanka sem rúma vatn sem sam-
svarar tveimur tönkum Perlunnar,
þ.e. um 7.800 rúmmetra tankrými.
Skoðaðir voru fimm valkostir að
staðsetningu. Heppilegasti kostur-
inn var talinn sá að reisa einn tank
norðaustan við Perluna. Um er að
ræða tank sem er um 33 metrar að
þvermáli og allt að 10 metrar að
hæð. Gert er ráð fyrir að mögulega
verði tankurinn að hluta til neðan-
jarðar. Möguleiki er á að nýta tank-
inn sem áningarstað fyrir útivist svo
sem útsýnispalla eða til klifurs.
Æskilegt sé að hafa tankinn í lit sem
fellur vel að umhverfinu, t.d. sama lit
og sígræni gróðurinn í Öskjuhlíð-
inni.
Tillöguna má skoða á vef Reykja-
víkurborgar. Einnig í þjónustuveri
Reykjavíkurborgar að Borgartúni
12-14. Athugasemdafrestur er til og
með 17. ágúst 2017.
Nýtt mannvirki reist við Perluna
Nýbyggingin mun hýsa stjörnuver nýrrar náttúrusýningar Ekki þykir lengur ásættanlegt að hafa
heitt vatn í geymum Perlunnar vegna fjölda fólks á staðnum Lagt til að nýr geymir verði byggður
Mynd/Landmótun
Nýtt útlit Hér má sjá hinn sýnilega hluta af áætlaðri viðbyggingu við Perluna. Hún verður samtengd aðalbyggingu Perlunnar neðanjarðar.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
borgarráðsfulltrúa Framsóknar og
flugvallarvina um að skipaður verði
starfshópur sem geri úttekt á
stöðu húsnæðisaðbúnaðar hjá
börnum í borginni.
Hópurinn á að skila niðurstöðum
og tillögum að leiðum til úrbóta
eigi síðar en 1. október í haust.
Tillagan var fyrst flutt í borgar-
ráði 22. júní sl. og var þá ákveðið
að leita eftir umsögn velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar um hana.
1.022 eru á biðlista
Í umsögn velferðarsviðs, sem er
undirrituð af Regínu Ásvaldsdótt-
ur sviðsstjóra, kemur fram að hinn
1. júlí sl. voru alls 1.022 umsækj-
endur á biðlista eftir félagslegu
húsnæði í Reykjavík.
Flestir eru einhleypir án barna
eða um 76% umsækjenda. Á bið-
listanum eru 218 einstæðir foreldr-
ar og 33 hjón eða sambúðarfólk. Er
það 24% af heildarbiðlistanum.
Fjöldi barna sem eiga foreldra á
biðlista eftir húsnæði er 372 tals-
ins. Af þeim 251 barnafjölskyldum
sem eru á biðlistanum eru 118
metnar í mikilli þörf.
Þá kemur fram í greinargerðinni
að barnafjölskyldum á biðlista
fjölgaði um 47 milli áranna 2016 og
2017. Fjölskyldum í mikilli þörf
fjölgaði um 15 milli ára. Í heildina
fjölgaði um 206 einstaklinga á bið-
lista frá í fyrra.
Mikilvægt að greina aðstæður
„Velferðarsvið telur mikilvægt
að greina vel aðstæður þeirra
barnafjölskyldna sem eru á biðlista
eftir félagslegu húsnæði og vinna
að tillögum til úrbóta í samstarfi
við Félagsbústaði og helstu hags-
munaaðila í samræmi við fyrir-
liggjandi húsnæðisáætlanir
Reykjavíkurborgar,“ segir í um-
sögn velferðarsviðs.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknar
og flugvallarvina fagnaði samþykkt
tillögunnar með bókun. Umsögn
velferðarsviðs sýndi að staða ein-
stæðra foreldra hefði greinilega
versnað mikið á undanförnum ár-
um.
118 barnafjölskyldur á
biðlista eru í mikilli þörf
Morgunblaðið/Jim Smart
Borgin Mikilvægt er talið að fjölga
félagslegum íbúðum í Reykjavík.
Úttekt gerð á stöðu húsnæðisaðbúnaðar hjá börnum í borginni
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu hafa fengið bréf frá Minja-
stofnun Íslands eftir að svæð-
isskipulagsstjóri
höfuðborgarsvæðisins, Hrafnkell Á.
Proppé, óskaði eftir umsögn hennar
vegna vinnslutillögu um breytingar
á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæð-
isins. Í henni er gerð grein fyrir legu
Borgarlínu og uppbyggingu í kring-
um hana. Í lögum um menning-
arminjar nr. 80/2012 er farið fram á
skráningu menningarminja og sam-
ráð við Minjastofnun Íslands áður en
gengið sé frá aðal- og/eða deili-
skipulagi.
Hrafnkell segir að líklega verði
ekki þörf á að rífa hús og að breyt-
ingarnar vegna Borgarlínu verði að
mestu á þegar röskuðu landi innan
götukerfisins. Meiri ástæða sé til að
huga að minjum á óröskuðu landi.
Í umsögn Minjastofnunar kemur
m.a. fram að hún geti ekki metið
áhrif framkvæmdanna á fornleifar,
hús og mannvirki, fyrir þurfi að
liggja fullnægjandi skráning á
áhrifasvæði framkvæmdanna.
Minjaskrár þurfa uppfærslu
„Flest sveitarfélögin hafa látið skrá
menningarminjar skv. lögum en t.d.
100 ára reglunni þarf að fylgja eftir
þar sem ár frá ári falla hús og forn-
leifar undir þá reglu og því þarf að
uppfæra minjaskrár. Minjastofnun vill
því minna á að fara að lögum,“ segir
Guðný Gerður Gunnarsdóttir minja-
vörður.
Bæjarritari Garðabæjar, Guðjón
Erling Friðriksson, hefur ekki mikl-
ar áhyggjur af stöðu skráninga þar
sem engar fornminjar eða friðuð hús
sé að finna í bæjarfélaginu á því
svæði þar sem Borgarlína kemur til
með að liggja, en skipulagsnefnd
Garðabæjar muni þó fjalla um málið.
ernayr@mbl.is
Uppfærsla minjaskrá vegna Borgarlínu
Cocoa Mint 9028 umgjörð
kr. 14.900,-
Sérðu þetta?
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
TOPPUR ehf
Bifreiðaverkstæði
TOPPUR er viðurkennt
þjónustuverkstæði fyrir
Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is